Morgunblaðið - 20.01.2006, Page 62

Morgunblaðið - 20.01.2006, Page 62
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ELLA, ÉG SKAL GERA HVAÐ SEM ER EF ÞÚ FERÐ Á STEFNUMÓT MEÐ MÉR VÁ! ÞETTA VORU ANSI MÖRG NÚLL ÞÚ GÆTIR ALLTAF SELT SJÁLFS- VIRÐINGUNA KLUKK LEIKURINN ER BÚINN FÍFLIÐ ÞITT! ÞAÐ VAR UM DIMMA OG STORMASAMA NÓTT... MÉR GENGUR ILLA MEÐ NÝJU SÖGUNA MÍNA LÆKNIR, ÉG GET EKKI BURSTAÐ Í HONUM TEN- NURNAR! HANN NEITAR AÐ OPNA MUNNINN! ÉG ER MEÐ SVOLÍTIÐ ÚTI Í BÍL SEM GÆTI HJÁLPAÐ SVONA JÁ. BARA TVO SNÚNINGA Í VIÐBÓT ÞANNIG AÐ FORELDRAR ÞÍNIR ERU Á ÖNDVERÐUMEIÐI VARÐANDI KOSNINGARNAR JÁ, ÞAU TAKA ÞESSU VIRKILEGA ALVARLEGA ÉG HEF ÁHYGGJUR AF ÞEIM VERTU ALVEG RÓLEG. ÞAU ERU BÚIN AÐ VERA GIFT LENGI. ÞAU FINN EINHVERJA LAUSN SÆL, EKKI MÁ ÉG GIST HJÁ YKKUR NÆSTU TVO MÁNUÐI STOPPAÐU! VIÐ ÞURFUM EKKI AÐ SLÁST JÚ, ÞÚ HELDUR HLÍFISKILDI YFIR MORÐINGJA EN RÓSA SEGIR AÐ ÞÚ SÉRT LEIGUMORÐINGI OG VINNIR FYRIR EINRÆÐISHERRA JÁ, EL CONDOR. ÉG SÉ UM AÐ FRAMFYLGJA LÖGUM HANS ÉG SKIL. ÞÁ ÞURFUM VIÐ VÍST AÐ SLÁST Dagbók Í dag er föstudagur 20. janúar, 20. dagur ársins 2006 Finnur Árnason, for-stjóri Haga, út- skýrði muninn á matvöruverzlunum fyrirtækisins í viðtali við Viðskiptablað Morgunblaðsins í gær. Finnur sagði: „Bónus er með minnsta vöru- úrvalið, stystan af- greiðslutímann og í raun minnsta þjón- ustu. Í verslunum 10- 11 eru nokkrar versl- anir opnar allan sólar- hringinn og þjónustan þar er allt önnur. Svo kemur Hagkaup þar sem við bjóðum upp á tífalt meira vöruúrval í matvöru og mestu þjón- ustuna.“ x x x Víkverji var búinn að átta sig áþessu með afgreiðslutímann og vöruúrvalið. En hann sér engan mun á þjónustunni í Bónusi og 10-11. Það vill svo til að 10-11-búð er næsta matvöruverzlun við heimili Víkverja. Og vissulega þykir skrifara mjög þægilegt að geta farið þangað seint á kvöldin ef eitthvað vantar í nestið hjá krökkunum morguninn eftir. Hann sættir sig út af fyrir sig alveg við að borga dálítið hærra verð fyrir þau þægindi. En hann hefur bara aldrei orðið var við neina þjónustu í 10-11. Afgreiðslufólk- ið, sem yfirleitt er tveir eða þrír ungling- ar, veitir Víkverja enga þjónustu aðra en þá að stimpla vörurnar hans inn í kassann og taka við greiðslunni hjá honum. Og það er nú bara lágmarksþjón- usta, sem menn þurfa að veita ef þeir reka búð. Meira segja í Hagkaupum á Víkverji í mesta basli að finna starfsfólk, sem getur sagt honum hvar súkkulaðirúsínurnar eru, en ekki skal hann þó gera lítið úr þjón- ustu ostaborðsins, kjöt- og fisk- borðsins og allra hinna borðanna. x x x Sama matvörubúðin stendur alltafupp úr hjá Víkverja. Það er Melabúðin á Hagamel. Þar fara saman ótrúlegt vöruúrval í ekki stærri búð, frábær þjónusta og sízt lakara verð en í t.d. Hagkaupum eða Nóatúni. Finnur Árnason boðar að kaupmönnunum á horninu fækki. Víkverji vonar að risunum takist aldrei að drepa Melabúðina. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is  Austurríki |Maria Altmann stendur hér við eftirmynd af málverki Gustav Klimt, Portrett af Adele Bloch-Bauer, en fyrirmyndin að málverkinu var frænska hennar. Upprunalega málverkið auk fimm annarra voru gerð upptæk af nasistum í síðari heimsstyrjöldinni og hengd upp í galleríi í Belvadere-kastala í Aust- urríki. Samanlagt virði málverkanna í peningum er ríflega 9,3 milljarðar króna. Síðastliðinn mánudag dæmdu austurrískir dómstólar austurrísk stjórnvöld til að skila þessum listmunum, sem stolið var af fjölskyldu Mariu af nasistum. AP Endurheimtir fjölskyldudýrgripir MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Anda sannleikans, sem heimurinn getur ekki tekið á móti, því hann sér hann ekki né þekkir. Þér þekkið hann, því hann er hjá yður og verður í yður. (Jóh. 14, 17.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.