Morgunblaðið - 27.08.2006, Page 17

Morgunblaðið - 27.08.2006, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2006 17 Bændasamtök Íslands ætlaað láta gera úttekt á þvíhvernig eignarhald á jörð- um hefur breytzt á síðustu árum og meta áhrif þeirrar þróunar á ábúð og nýtingu jarða og sveit- arfélögin, sem þær eru í. Haraldur Bendiktsson á Vestra- Reyni, formaður bændasamtak- anna, segir að þetta mál hafi kom- ið inn á síðasta búnaðarþing og ljóst, að það hafi brunnið misjafn- lega á bændum og landeigendum eftir landshlutum. Til dæmis hefðu menn fyrir sér Borgarfjörð og Suðurland, þar sem fólk hefur byggt upp jarðir í öðru en hefð- bundnum landbúnaði. Sagði Har- aldur ekki ástæðu til annars en fagna því. Hins vegar hefðu menn nefnt dæmi þess að jarðir væru mark- visst keyptar og búskapur legðist þar af, en slíku fylgdi mikil röskun fyrir sveitirnar og nefndi Har- aldur í því sambandi fjallskil og alla félagslega þjónustu. „Þetta eru tveir hópar: Annar kaupir lönd til að byggja þau upp á fastri búsetu, en svo er hinn, sem kaupir jarðir til þess að safna þeim. Við viljum kortleggja þessa hluti til þess að sjá hvar við stönd- um og hvert leiðin liggur. Það hefur lengi verið svo, að menn hafa fjárfest í jörðum í sam- bandi við laxveiði, en nú virðast menn veðja á fleira; hækkandi landverð og nýtingu fleiri hlunn- inda, eins og varma og vatnsfalla. Sagðist Haraldur hafa það á til- finningunni að þessi hópur færi stækkandi; að nokkrir ein- staklingar eða félög væru eig- endur að mörgum jörðum, en sagðist ekki hafa neinar tölur á bak við þá tilfinningu. „Eitt af því sem við viljum fá fram með úttektinni er, hvort jarðir á Íslandi séu að safnast á færri hendur í varhugaverðum mæli og hvernig ábúð er þá hátt- að. Er okkur nauðsynlegt að setja einhverjar reglur um þessi mál? Við sjáum strangar takmarkanir í Noregi og enn strangari í Dan- mörku sem byggjast á búsetu manna á jörðum sínum. Hjá okkur gerðist tvennt sem jók hraðann á hlutunum; jarðalög- unum var breytt þannig að frelsi í viðskiptum með land jókst og bankarnir komu inn á markaðinn með aukið lánsfé. Það var vissulega tímabært að jarðarverð hækkaði, en okkur er nauðsynlegt að reyna að sjá, hvert þróunin leiðir okkur. Við viljum að hún styrki sveitirnar, en ekki sjá hana leggja jarðir í eyði og byggð- ir í rúst bara af því að það er góð- ur fjárfestingarkostur af ein- hverjum öðrum ástæðum.“ Vill kanna jarðakaupin Haraldur Benediktsson segir tímabært að jarða- verð hækkaði, en þróunin eigi að styrkja sveitirnar en ekki leggja í rúst. Bændasamtökin gera úttekt á jarðakaupunum Morgunblaðið/Ásdís AÐ SÖGN Haraldar Benedikts- sonar, formanns bændasamtak- anna, er skilgreining á búskap orð- in það umfangsmikil, að fjöldi manna getur nú kallað sig bændur. Í svari sínu segist hann komast næst framleiðslulandbúnaðinum með þessum tölum; um 800 kúa- bændur (791 fær beingreiðslur vegna mjólkurframleiðslu), 1800 sauðfjárbændur (1794 bein- greiðsluhafar eru í sauðfjárrækt), 20–30 framleiðendur fuglakjöts, 13 svínabú, 25–30 loðdýrabú og 40–50 garðyrkjubændur og plöntu- framleiðendur. Samkvæmt samantekt ríkisskatt- stjóra voru þeir, sem stunduðu jarð- yrkju, garðyrkju og búfjárrækt, 3.652 árið 2003 og 3.570 árið eftir. Samkvæmt yfirliti Hagstofu Ís- lands störfuðu 4.020 við landbúnað 2005; 2.770 karlar og 1.250 konur. 4.020 starfa við landbúnað Meira á morgun » Í Morgunblaðinu á morgun, mánudag, verður umfjölluninni umjarðakaupin haldið áfram með efni frá Vopnafirði; samtölum, sem þær Bergþóra Njála Guðmundsdóttir og Steinunn Ásmunds- dóttir tóku við bændur og mann sem fjárfestir í jörðum í Vopnafirði. Dags.: Tími: Samningatækni og ákvörðunartaka . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14 . og 15 . sept . kl . 12:00 – 18:00 Skilvirk samskipti . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 28 . og 29 . sept . kl . 09:00 – 13:00 Stjórnandinn og forystuhlutverkið . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12 . okt . kl . 08:30 – 14:30 Mannauðsstjórnun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26 . og 27 . okt . kl . 12:00 – 18:00 Frammistöðustjórnun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 9 . nóv . kl . 12:00 – 18:00 Að laða fram það best (The Coaching Clinic) . . . . . . . . . . . . . . 23 . og 24 . nóv . kl . 08:30 – 14:30 Breytingastjórnun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 30 . nóv . kl . 12:00 – 18:00 Nánari upplýsingar veitir: Guðrún Helga Hamar Verkefnastjóri Sími: 599 6404 gudrunhelga@ru.is Ofanleiti 2, 3. hæð 103 Reykjavík Sími: 599 6200 Fax: 599 6201 www.stjornendaskoli.is STjórnun Fyrir ATvinnulíFið NÁmsLíNa skráning er hafin – Hægt er að skrá sig í einstaka hluta námslínu á vef stjórnendaskólans. Nánari upplýsingar er að finna á www.stjornendaskoli.is F A B R IK A N 2 0 0 6 Leiðbeinendur: Aðalsteinn Leifsson, Þórhallur Gunnarsson, Guðrún Högnadóttir, Ásta Bjarnadóttir, Finnur Oddsson og Hulda Dóra Styrmisdóttir STJÓRNENDAAKADEMÍA STJÓRNENDASKÓLA HR Stjórnendaskóli HR býður nú upp á vandaða og öfluga námslínu þar sem kennd eru stjórnunarfræði eins og þau gerast best. Námið er fyrst og fremst ætlað fólki sem er í stjórnunarstöðu innan fyrirtækja/stofnana, og stefnir að framúrskarandi árangri í leik og starfi. Tækniþróunarsjóður kynningarfundur í Húsi atvinnulífsins 30. ágúst Rannís Rannsóknamiðstöð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, www.rannis.is Tækniþróunarsjóður boðar til opins kynningarfundar í Húsi atvinnulífsins , Borgartúni 35 miðvikudaginn 30. ágúst kl. 8:30-10:00 Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum en umsóknarfrestur í sjóðinn er til 15. september. Dagskrá: ● Ragnheiður Héðinsdóttir Samtökum iðnaðarins er fundarstjóri. ● Sveinn Þorgrímsson formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs gerir grein fyrir hlutverki sjóðsins. ● Snæbjörn Kristjánsson og Oddur Már Gunnarsson starfsmenn Rannís fjalla um umsóknar- og matsferli sjóðsins. Boðið verður upp á morgunverð á fundinum. Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra og starfar samkvæmt lögum nr. 4/2003 um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins. Sjóðurinn fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs. Umsækjendur geta verið fyrirtæki, einstaklingar, rannsóknastofnanir og háskólar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.