Morgunblaðið - 27.08.2006, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2006 61
menning
Námskeið / Sýningar / Tónlist / Milongas
TANGO ON ICELAND
Tangofestival
Reykjavík
31. ágúst - 3. september
2006
UPPLÝSINGAR og SKRÁNING á www.tango.is eða í síma 551 5103
HÉR er á ferðinni þriðja breiðskífa
Idol-sigurvegara en Stjörnuleitinni
hefur nú verið hætt í bili, og ég skil
illa af hverju, því að vinsældirnar
hafa verið gríðarlegar. En ef marka
ber nýlegar blaðagreinar þá er
kostnaður víst umtalsverður af
þessu apparati, og margar af þess-
um Idol-plötum hafa að sönnu fallið í
grýttan jarðveg, sölulega sem list-
rænt séð.
Snorri Snorrason, eða Snorri, ger-
ir ýmislegt fleira en að leggja hér til
rödd, leikur á hljómborð auk þess
sem hann semur lög og texta, en af
ellefu lögum á Snorri þrjú. Rödd
Snorra liggur um margt furðulega;
er skringilega nefmælt. Hann hefur
mjög gott vald á henni hins vegar, og
á auðvelt með að klífa háu tónana.
Hann tekur rokkaðri lögin nokkuð
létt en í rólegri lögunum er þó eins
og hann sé hálfráðvilltur. Af hans
eigin lögum er
opnunarlagið,
„Farin burt“
það besta og
„Himinninn og
við“ er og sæmi-
legt. Sama er
ekki hægt að
segja um „Undir rós“, sem er arfas-
lakt. Snorri er með þennan klassíska
fullorðinsrokksöng á hreinu, er með
hörkurokkrödd, rödd sem hefð sómt
sér fyllilega í sveit eins og Boston
eða Foreigner. Enda syngur hann „I
want to know what love is“ með síð-
astnefndu sveitinni eins og að
drekka vatn. Frammistaða hans er
annars ansi mismunandi eftir efni.
Hann er úti á túni í laginu „Galdur“,
hljómar öruggur í „Chiquitita“ og
„Kveðja“, sem er fínasta útgáfa af
lagi Williams-bræðra, „I can’t cry
hard enough“. „Fuzzy“ með Grant
Lee Buffalo er hins vegar tekið af lífi
án dóms og laga. Platan fer þannig
víða í efnisvali, en þessi fjölbreytni
er henni bæði bölvun og blessun.
Allt sem ég á liggur einhvers stað-
ar mitt á milli platna Kalla Bjarna og
Hildar Völu, hinna tveggja sigurveg-
ara Stjörnuleitarinnar. Í fyrsta lagi
er hún bókstaflega mitt á milli hvað
lagaval snertir; plata Kalla Bjarna
var eingöngu með frumsömdu efni,
plata Hildar var eingöngu með töku-
lögum en hér er farið bil beggja. Í
öðru lagi er hún gæðalega séð mitt á
milli. Plata Kalla Bjarna var mis-
heppnuð en plata Hildar Völu frá-
bærlega heppnuð. Plata Snorra er of
ójöfn til að teljast undir þrekvirki en
góðir sprettir eru þó það margir að
hér er enginn óskundi á ferð. Aðdá-
endur Snorra geta því vel við unað
en það er hyggilegast fyrir okkur
hin að nálgast hana með gát.
Víða farið
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Lög og textar eru eftir ýmsa höfunda, inn-
lenda sem erlenda. Snorri Snorrason
syngur, bakraddar og leikur á hljómborð.
Aðrir hljóðfæraleikarar og söngvarar eru
þau Vignir Snær Vigfússon (gítar, hljóm-
borð), Eiður Arnarsson (bassi), Þórir Úlf-
arsson (hljómborð, píanó, Hammond),
Benedikt Brynleifsson (trommur), KK
(munnharpa), Margrét Eir (bakraddir),
Regína Ósk (söngur í „Himinninn og
við“), Andrzej Kleina (fiðla), Zbigniew
Dubik (fiðla), Guðmundur Kristmundsson
(lágfiðla) og Sigurður Bjarki Gunnarsson
(selló). Stjórn upptöku var í höndum
Vignis Snæs Vigfússonar. Stjórn upptöku
á laginu „Allt sem ég á“ var í höndum
Óskars Páls Sveinssonar og þar leika
undir og syngja þau Hafþór Guðmunds-
son, Friðrik Sturluson, Guðmundur Pét-
ursson, Kjartan Valdemarsson, Óskar
Páll Sveinsson, Kristjana Stefánsdóttir
og Gospelkór Reykjavíkur (undir stjórn
Óskars Einarssonar). Sena gefur út.
Snorri – Allt sem ég á
Arnar Eggert Thoroddsen
Dvergarnir sjö úr Disn-ey-myndinni um
Mjallhvíti sáu ástæðu til að senda frá
sér fréttatilkynningu í tilefni þess að
á þingi stjarnfræðinga var ákveðið
að skilgreina Plútó sem dverg en
ekki stjörnu. Hljóðaði yfirlýsing
dverganna á þá leið að þeim þætti
ekki slæmt ef hundurinn sem fylgt
hefur Mikka Mús allt síðan
1930, sama ár og
plánetan Plútó var
uppgötvuð, yrði
áttundi dverg-
urinn í hópnum.
Mikka mun þykja þetta
tilstand allt hið bjánalegasta og segir
Plútó engan áhuga hafa á stjarn-
fræði, nema þá helst að hann ýlfri á
tunglið endrum og sinnum.
Hvorki Mikki né dvergarnir tjáðu
sig um það af hverju Plútó hvorki tal-
ar né klæðist fötum, ólíkt Guffa sem
mun þó líka vera hundur.
Fólk folk@mbl.is