Morgunblaðið - 27.08.2006, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Falleg 153 fm íbúð í lyftuhúsi ásamt stæði í
bílageymslu. Íbúðin er með tvennum svölum
og miklu útsýni út á Faxaflóann og til Snæ-
fellsness. Samliggjandi stofur og þrjú svefn-
herbergi, flísalagt baðherbergi með kari og
sturtuklefa.
Verð 39,9 mkr.
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
EIÐISTORG - SELTJARNARNESI
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 – Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Einbýlishús mjög vel staðsett á stórri
hornlóð. Húsið er 154 fm, tvær hæð-
ir og lítill kjallari ásamt 58 fm bílskúr.
Í því eru 4 herbergi, samliggjandi
stofur og tvö baðherbergi o.fl. Frá-
bær staðsetning. Verð 50,0 m. kr.
VALHÚSABRAUT - SELTJARNARNESI
Parhús á tveimur hæðum og inn-
byggður bílskúr, alls 182,7 fm. Húsið
er mjög vel staðsett og allar innrétt-
ingar sérstaklega vandaðar. Fallegur
garður og stór verönd, heitur pottur.
Mjög gott útsýni. Verð 51,0 m. kr.
BAKKASMÁRI - KÓPAVOGI
Efri hæð 166 fm og innbyggður bíl-
skúr 29 fm í tvíbýlishúsi á frábærum
útsýnisstað rétt við Borgarspítalann.
Þrjú herbergi, stofa og borðstofa,
baðherbergi með hornkari, þvotta-
hús inn af eldhúsi o.fl. Mjög rúmgóð
og fallega innréttuð íbúð. Verð 47,0
m. kr.
ÁLAND - FOSSVOGI
Falleg 119 fm efsta hæð í fjórbýlis-
húsi efst við Skaftahlíð. Íbúðin er
mjög björt og rúmgóð, þrjú herbergi,
samliggjandi stofur, baðherbergi
með tengi fyrir þvottavél, tvennar
svalir o.fl. Útsýni og fallegur garður.
Laus fljótlega.
Verð 30,0 m. kr.
SKAFTAHLÍÐ
Hæð og bílskúr 151,5 fm rétt við
miðbæinn. Mjög rúmgóð íbúð með
nýju eldhúsi, þrjár samliggjandi stof-
ur og stór verönd yfir bílskúr.
Áhugaverð eign á góðum stað.
Verð 41,0 m. kr.
ÖLDUGATA
Glæsileg 4ra herbergja íbúð á 9.
hæð með útsýni til austurs og suð-
urs ásamt stæði í bílskýli. Stórar
svalir með vandaðri glerlokun. Íbúð-
in er fullgerð en án gólfefna en þó er
búið að flísaleggja gólf í baðher-
bergi. Íbúðin skiptist í hol, þvotta-
hús, eldhús með kirsuberjainnrétt-
ingu og vönduðum tækjum, baðher-
bergið er flísalagt og með kari, sturt-
uklefa og innréttingu, rúmgóð stofa
og 3 herbergi sem öll eru með skáp-
um. Sjónvarps og símatenglar eru í
öllum herbergjum. V. 32,9 m. 434
HÖRÐUKÓR - 9. HÆÐ
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal,
löggiltur fasteignasali.
HEILSÁRSHÚS
Í NÁGRENNI GEYSIS Í HAUKADAL
Sölusýning í dag 27. ágúst kl. 14–17.
Sýnum í dag 5 sumar/ heilsárshús rétt austan við Geysi. Um að ræða annars vegar fjögur
75 fm hús ásamt svefnlofti (alls ca 95 fm) og hinsvegar eitt ca 95 fm finnskt bjálkahús.
Húsin standa öll á ca 7000 fm eignalóðum með mjög metnaðarfullum frágangi á öllu
umhverfis húsin, m.a. fullfrágengnum hellulögðum bílastæðum, stórum veröndum, búið
að planta miklu magni af trjáplöntum o.fl. Húsin eru tilbúin til afhendingar, fullbúin að
engu undanskildu með ýmist flísum á gólfi eða vönduðu parketi og eru hitalagnir í gól-
fum. Allar innréttingar eru mjög vandaðar og fylgja húsunum vönduð húsgögn, ísskápar,
uppþvottavélar og öll helstu heimilstæki ásamt rúmum í öllum herbergjum. Sturtuklefar á
baðherbergjum. Heitt og kalt vatn. Húsin standa rétt við Tungufljótið austan Geysis og er
mjög stutt í alla þjónustu og afþreyingu. M.a. er 9 holu glæsilegur golfvöllur í göngufæri
við húsin, stutt í sund, verslanir, hestaleigu, fjórhjólaleigu o.fl. þ.h., svo ekki sé talað um
falleg útivistarsvæði. Aðeins í 1 klst. fjarlægð frá Reykjavík.
Verð húsanna er kr. 24,0 millj. Seljandi getur útvegað lán allt að kr. 16-17 millj.
ATH! LEIÐARLÝSING: Ekið í gegnum Geysissvæðið austur og beygt niður til hægri rétt áður en
ekið er yfir brúna á Tungufljóti. Sjá skilti.
Sveinn Eyland frá Fasteign.is verður á staðnum, s. 6-900-820.
Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra
stað þetta fallega einbýlishús. Eignin er
185 fm með innb. bílskúr og séríbúðar-
herb. í kjallara. Frábært skipulag, rúmgóð
herbergi, fallegar innréttingar. Eign sem
hefur verið nostrað við. V. 46 millj. Nr.
116917-1
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Bjarmahlíð - HF. - Glæsilegt
Sérlega fallegt þrílyft einbýlishús á þessum
vinsæla stað í miðbæ Hafnarfjarðar. Húsið
er 147,4 fm með bílskúr. Skipting eignar-
innar: Miðhæðin: Forstofa, eldhús með
borðkróki, 2 stofur og baðh. Rishæðin: Hol
og 4 svefnh. Kjallari: Geymsla, þvottahús
og stórt svefnh., köld útigeymsla og bíl-
skúr. Þetta er sérlega falleg eign sem svo
sannarlega er hægt að mæla með. Fallegur og gróinn garður. V. 35 millj.
Mjósund - HF.
EINAR K. Guðfinnsson ráð-
herra skrifar lærdómspistil í Blað-
ið 10. ágúst sl. og
fjallar góðlátlega um
ólán Spánverja að
hafa tekið upp evru
og gengið í Evrópu-
sambandið og geta
ekki eins og Íslend-
ingar fiktað í stýri-
vöxtum og fellt geng-
ið í efnahagslegum
ólgusjó. Hvílíkt ólán.
Að senjór Zapatero á
Spáni geri sitt besta
á ríkisfjármálasviðinu
en hendur hans séu
bundnar Evrópusam-
bandinu sem heldur
vöxtum lágum til að auka fram-
leiðni í hægagangshagkerfum
bandalagsins og geti ekki böðlast
á fólkinu eins og hin vaxtagrimma
ríkisstjórn Íslands af því að Evr-
ópusambandið kemur í veg fyrir
það.
Sæluvíma Einars ráðherra er
ómæld þegar hann sér muninn á
sæluríkinu okkar í norðri þar sem
stýrivextir Seðla-
banka Íslands stefna
nú í um 18%, meðan
fólk á Spáni getur
farið út í banka og
fengið íbúðalán með
um 3% ársvöxtum,
óverðtryggt. Hvílík
sóun að leyfa fólkinu
að fá lán með svo lág-
um vöxtum því það er
skynsamlegra að pína
fólkið með háum vöxt-
um og verðbótum
virðist ráðherrann
hugsa.
Samkvæmt pistl-
inum er Spánn í dag ríki sem hef-
ur komið böndum á brjálæðislegar
skyndiákvarðanir misviturra
stjórnmálamanna með því að taka
þátt í starfi Evrópusambandsins
sem kemur í veg fyrir að rokið sé
með ríkisfjármálin, vaxta- og
gengismálin upp til skýjanna eða
niður til fjandans. Á Spáni er sem
sagt verið að sigla jafnan sjó í
efnahags- gengis og vaxtamálum
meðan á Íslandi er sífellt verið í
einhverju fíflalegu fikti við þessa
málaflokka sem stórskaðar al-
menning og myndar lúalegar
smugur fyrir valdastéttina til að
búa sér til glufur í allri flækjunni
til að aura sjálft saman peningum.
Hvað varð um alla milljarðana
sem mynduðust í 30% gengisfell-
ingunni í vor eða sem hafa aflast í
öllu verðbótakerfinu og hverjir
græða á hækkun stýrivaxtanna?
Á Spáni streyma inn peningar
frá ferðamönnum og einnig þús-
undir milljarða frá erlendum fár-
festum sem vilja fjárfesta á Spáni
stöðugleikans, öfugt við Ísland. Ef
þessi gífurlegi fjöldi fjárfesta héldi
eitt augnablik að peningar þeirra
væru ekki öruggir á Spáni fyrir
gengisfikti þá mundi enginn fjár-
festir fjárfesta þar. Þeir vita að
þar eru peningar þeirra vel
geymdir í fjárfestingum og að allt
fjárfestingaumhverfið mun haldast
stöðugt og ekki skaða fjárfest-
ingar þeirra öfugt við það sem
menn verða sífellt fyrir á Íslandi.
Íslenska valdastéttin vill ekki
erlenda fjárfesta til að eyðileggja
fyrir sér hér heima, enda á hún
allt kerfið, auðlindirnar og að-
ganginn að vinnunni á Íslandi.
Hún er alltaf að finna upp nýtt og
nýtt fikt og fiff til að græða á
fólkinu til að bjarga sjálfu sér og
auka möguleika sína til að skara
eld að sinni eigin köku.
Það er ekki af góðsemi sem ráð-
herrann er að hnýta í Spánverjana
og það kerfi sem þeir hafa bless-
Efnahagsflækja
Einars K. Guðfinnssonar
Sigurður Sigurðsson skrifar
um efnahagsmál ’Þetta séríslenska óskaflækjuhagkerfi
Einars K. ráðherra er
hluti af einhverju
plotti íslenskra
ráðamanna til að
koma viljandi í veg
fyrir fjárfestingar
erlendra fjárfesta.‘
Sigurður
Sigurðsson