Morgunblaðið - 27.08.2006, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
„En er hann óx upp, þá
mátti brátt sjá á honum, að
hann myndi verða mjög
ljótur […] En þá er hann var þre-
vetur, þá var hann mikill og sterk-
ur, svo sem þeir sveinar aðrir sem
voru sex vetra eða sjö. Hann var
brátt málugur og orðvís. Heldur
var hann illur viðureignar, er
hann var í leikum með öðrum ung-
mennum.“
Þannig er Agli Skalla-Grímssyni
lýst í Egilssögu. Þessi lýsing gæti
þó alveg eins átt við einn fremsta
sparkanda heims um þessar
mundir, Englendinginn Wayne
Rooney. Líkindi með þessum
mönnum eru mikil. Með gildum
rökum má halda því fram að Roo-
ney sé Egill okkar tíma.
Báðir eru þessir menn gæddir
einstökum aflsmunum og ótví-
ræðri snilligáfu. Holdlegt atgervi
Egils var sem kunnugt er með
miklum ágætum. Hann hefði án
efa orðið mestur meðal kappa á
sparkvöllum samtímans. Eins
hefði Rooney að líkindum orðið
vígfimur hefði hann alist upp í ís-
lenskum afdölum á tíundu öld.
Hann er sem klipptur út úr Ís-
lendingasögunum. Látum þó
skáldagáfuna liggja milli hluta.
„Svo þegar stóð í heila“
Báðir hafa líka sinn djöful að
draga, lundina. Egill var ódæll og
tapsár með afbrigðum. Frægt er
þegar Egill, sem var sjö ára, varð
undir í kappleik á Hvítárvöllum
við Grím Heggsson sem var ellefu
ára. Þórður Granason, sem þá hef-
ur verið fimmtán ára, fékk Agli
exi en Egill hjó Grím í höfuðið
„svo þegar stóð í heila“. Rooney
hefur ekki síður verið þekktur fyr-
ir að láta andstæðinga sína finna
til tevatnsins þótt hann hafi til
allrar hamingju ekki staðið svona
hraustlega að verki. Enda aðrir
tímar.
Það er einmitt óstýrilæti Roo-
neys sem helst er til umfjöllunar
nú um stundir. Enginn deilir um
hæfileika þessa tæplega 21 árs
gamla leikmanns. Hann er einn af
fremstu sparkendum heimsins í
dag og hefur burði til að verða
besti leikmaður Englendinga frá
upphafi vega – og við erum að tala
um sjálfa vöggu knattspyrnunnar.
En verður óþægðin honum að falli?
Í þessum skrifuðum orðum er
Rooney að taka út tvö leikbönn.
Honum var sem frægt er vikið
af velli í leik gegn Portúgal á
heimsmeistaramótinu í Þýskalandi
í sumar. Gefið að sök að hafa troð-
ið viljandi á varnarmanninum Ric-
ardo Carvalho. Rooney brást
vondur við þeim úrskurði og
stuggaði m.a. við liðsfélaga sínum
hjá Manchester United, Cristiano
Ronaldo, sem stækkaði raunar
ekki af afskiptum sínum af því
máli. Fyrir vikið verður kappinn
ekki til taks í þremur næstu
landsleikjum Englendinga.
Hótunarbréf umbans
Þá var Rooney úrskurðaður í
þriggja leikja bann í ensku úrvals-
deildinni á dögunum vegna brott-
rekstrar í kjölfar olnbogaskots í
æfingaleik með United í Hollandi.
Sá dómur þótti raunar strangur
og margir ráku upp stór augu
þegar enska knattspyrnu-
sambandið ákvað að láta kné
fylgja kviði en það hefði hæglega
getað séð gegnum fingur sér.
Enda þótt Rooney hafi ekki haft
mörg orð um málið opinberlega
liggja vonbrigði hans fyrir. Þau
endurómaði umboðsmaður hans,
Paul Stredford, í bréfi til knatt-
spyrnusambandsins en því var
lekið í fjölmiðla. Auðvelt er að
túlka bréfið á þann veg að Rooney
hafi í hótunum.
„Enda þótt hann muni halda
áfram að leika af stolti og einurð
fyrir land sitt, verði hann valinn,
er hann að hugleiða að draga sig
út úr markaðsstarfi knattspyrnu-
sambandsins,“ segir í bréfinu.
„Hann mun hvorki sætta sig við
að ímynd hans verði notuð eða
misnotuð né koma sjálfur fram
fyrir hönd samstarfsaðila sam-
bandsins nema hann sé sáttur við
framkomu sambandsins í garð
leikmanna.“
Það var og.
Ýmsum þykir bréf þetta í anda
olnbogaskota og átroðslu leik-
mannsins sjálfs inni á vellinum og
honum ekki til framdráttar.
Knattspyrnusambandinu er örugg-
lega ekki skemmt.
Standa með sínum manni
Viðbrögð foreldra Egils, Skalla-
Gríms og Beru, við vígi Gríms
Heggssonar eru athyglisverð. Er
Egill kom heim lét Skalla-Grímur
sér fátt um finnast, en Bera kvað
Egil vera víkingsefni og kvað það
fyrir liggja, þegar hann hefði ald-
ur til, að honum væru fengin her-
skip. Egill kvað þá fræga vísu:
Það mælti mín móðir
að mér skyldi kaupa
fley og fagrar árar,
fara á brott með víkingum
standa uppi í stafni
stýra dýrum knerri
halda svo til hafnar
höggva mann og annan.
Viðbrögð aðstandenda Rooneys
við misgjörðum hans eru á sömu
lund. Þeir standa með sínum
manni.
Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester United,
hefur aldrei látið styggðaryrði
falla um dýrasta djásnið í krúnu
sinni. Hann er sannfærður um –
a.m.k. opinberlega – að dómarar
misskilji leikmanninn og láti orð-
spor hans slá sig út af laginu.
Aðspurður um úrvalsdeild-
arbannið sagði Gary Neville, hinn
leikreyndi félagi Rooneys hjá
United, að það væri dæmigert fyr-
ir Englendinga að styðja ekki við
bakið á sínu fólki. „Menn eru bara
skotnir á færi,“ segir Neville sem
margt hefur séð á löngum ferli.
Er m.a. einn nánasti vinur Davids
Beckhams sem enska þjóðin hefur
um árabil borið á höndum sér að
morgni en lamið í úfinn hnakkann
eftir hádegi.
Steve McClaren, hinn nýi knatt-
spyrnustjóri enska landsliðsins,
tekur í sama streng. Hann hefur
kallað aganefndina sem kallaði
bannið yfir Rooney „viðvaninga án
ásjónu“. „Ég veit ekki hverjir
þessir menn eru en það er ljóst að
þeir gera ekki mitt starf auðveld-
ara þegar kemur að samskiptum
við félögin í landinu,“ segir
McClaren.
Þessi beru-skallagrímska af-
staða hefur farið fyrir brjóstið á
ýmsum og Rob Hughes, spark-
skýrandi hjá International Herald
Tribune, gerir því skóna í ágætum
pistli sl. mánudag að þarna séu
langtímahagsmunir Rooneys ekki
hafðir að leiðarljósi. Verji menn
hann í drep nái hann aldrei valdi á
vanda sínum.
Þetta minnir um margt á gagn-
rýnina sem Arsène Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, fékk á
sig þegar hann réttlætti hvert
rauða spjaldið af öðru sem Patrick
Vieira fékk á sínum tíma. Í því er
væntanlega fólgin von fyrir Roo-
ney að Vieira rennur í dag hæg-
lega saman við hóp kórdrengja í
lautarferð. Eldist þetta m.ö.o. ekki
bara af mönnum?
Líkari Shrek en Pitt
Margir öfunda Rooney af hæfi-
leikunum og enn fleiri öfunda
hann líklega af tekjunum. Fáir öf-
unda hann þó líklega af hinu
sterka kastljósi fjölmiðlanna sem
sumir hverjir eira engu. Seint
mun hann þó eiga yfir höfði sér
sömu meðferð og forveri hans á
hásæti enskrar knattspyrnu, Dav-
id Beckham. Sá síðarnefndi hafði
líka margfalt víðari skírskotun í
samfélaginu. Beckham er hold-
gervingur metróhugtaksins,
kvæntur poppstjörnu og á um
margt meiri samleið með kvik-
myndastjörnum en knatt-
spyrnumönnum. Ljómi hans þykir
í augum kvenna gefa mönnum á
borð við Jude Law, Brad Pitt og
George Clooney lítið eftir. Seint
verður Rooney nefndur í sömu
andrá og helstu hetjur hvíta
tjaldsins – nema þá helst kappinn
Shrek.
En líkur er hann Agli, í það
minnsta í háttum. Það eitt og sér
er vísbending um að Rooney þurfi
ekki að láta illar tungur slá sig út
af laginu. Egill, með kostum sín-
um og göllum, er ástæðan fyrir
því að menn eru enn, árþúsundi
síðar, að blaða í sögu hans. Og það
er vegna manna eins og Waynes
Rooneys sem menn munu sem
fyrr setja ensku knattspyrnuna í
öndvegi á því herrans ári 3000.
Reuters
Egill okkar tíma
orri@mbl.is
Í HNOTSKURN
» Wayne Rooney fæddist í Liver-pool 24. október 1985.
» Varð árið 2002 yngsti leikmað-urinn til að skora í ensku úr-
valsdeildinni í sigri Everton á Ars-
enal.
» Sló í gegn með enska landslið-inu á EM í Portúgal sumarið
2004. Fótbrotnaði í átta liða úrslit-
unum.
» Varð haustið 2004 yngsti tán-ingur knattspyrnusögunnar
þegar Manchester United keypti
hann á 20 milljónir punda. Kaup-
verðið gæti hækkað í 30 milljónir
punda gangi öll ákvæði samnings-
ins eftir.
» Skoraði þrennu í fyrsta leiksínum með United haustið
2004.
» Fótbrotnaði á ný vorið 2006 ennáði sér í tæka tíð fyrir HM í
Þýskalandi. Vikið af velli í leik
með Englendingum gegn Portúgal.
Vikið aftur af velli í æfingaleik
með United í Hollandi.
»
Orri Páll Ormarsson