Morgunblaðið - 27.08.2006, Blaðsíða 33
liðu undir lok. Ákveðin viðhorfs-
breyting varð og karlar tóku að
sækja í önnur störf, jafnvel þótt
þeir væru kennaramenntaðir. Að
vera kennari hafði þótt nokkuð virð-
ingarvert en það breyttist. Launa-
mál höfðu hér líka mikið að segja.“
Kennsla til hálfsex
á laugardögum
Ólafur segir skólastarfið yfirhöf-
uð hafa breyst mikið. „Það er orðið
opnara og að mörgu leyti fagmann-
legra. Viðvera nemenda er líka
miklu meiri en hún var, bæði viku-
leg og árleg. Núna er skólinn ein-
setinn en var á tímabili þrísetinn.
Þegar ég kenndi við skólann deildu
740 nemendur á milli sín 8 kennslu-
stofum,“ segir Ólafur og bætir við
að kennt hafi verið á laugardögum,
jafnvel fram til hálfsex.
Í vor veitti skólanefnd Kópavogs í
þriðja sinn hvatningarverðlaun. Í
þetta skipti hlaut Kópavogsskóli
verðlaunin fyrir gott samstarf á
milli skólans og foreldraráðs hans.
Foreldraráðið gerði í vetur samning
við Kópavogsbæ sem felur í sér að
ráðið komi í auknum mæli að stjórn
skólans. Ólafur er ánægður með
viðurkenninguna og hyggst starfa
áfram með foreldraráðinu þrátt fyr-
ir að vera hættur sem skólastjóri.
Nemandinn í Kópavogsskóla,
kennarinn og síðar stjórinn segist
aðspurður ekki hugsa sér til hreyf-
ings úr bæjarfélaginu. Hann verður
áfram í Kópavogi.
Morgunblaðið/Ásdís
sigridurv@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2006 33
!
"
!
"
! ! #$ %%$
#$ %%$
" &&&
!
"
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni.
Uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eru að glíma
við streitu, kvíða eða fælni og/eða eru að ganga í
gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar eru leiðir
til að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Nám-
skeiðið er að hluta til byggt á eigin reynslu
Ásmundar. Hefst 4. sept., mán. og mið. kl. 20.
Jógakennaranám, stig 2,
hefst helgina 16.-17. september
Skráningarsími: 534 9090
Það er hópur valinkunna tónlistarmanna
og söngvara sem sér um kennslu hjá
Tónvinnsluskólanum. Hægt er að velja úr
fjölbreyttum söngnámskeiðum og námskeiðum í
gítarleik, bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Námskeiðið Söngur og framkoma er í höndum Selmu
Björnsdóttur. Þetta vinsæla námskeið sem nú er
haldið í fjórða sinn, kemur inn á söng, framkomu
og söng í hljóðveri. Námskeiðið hentar þeim vel
sem hyggjast þreyta áheyrnarprufur fyrir söngleiki
og sjónvarpsþætti á borð við Rock Star og Idol.
Barna- og unglinganámskeiðið verður á sínum
stað í Tónvinnsluskólanum en það hefur notið
mikilla vinsælda síðustu misseri. Gestakennarar á
þessu námskeiði verða söngorkubomban Jónsi úr
Svörtum fötum og söng/leikonan og dansarinn
Halla Vilhjálmsdóttir. Um er að ræða skemmtilegt
námskeið fyrir yngri kynslóðina þar sem upprennandi
söngvarar fá leiðsögn frá Heiðu Ólafsdóttur.
Ein ástsælasta söngkona landsins, Andrea
Gylfadóttir, verður í annað sinn með námskeið
í jazz og bluessöng. Þetta námskeið er fyrir lengra
komna, t.d. fyrir þá sem hafa klárað “söngur
og framkoma” eða samskonar námskeið, eða
vilja gera alvöru úr söngkunnáttu sinni.
Gítarleikarar njóta leiðsagnar frá Vigni Snæ
Vigfússyni (Írafár) og Gunnari Þór Jónssyni
(Sól Dögg) og fleirum. Byrjendur sem og lengra
komnir njóta góðs af reynslu þessara manna
en farið er yfir helstu atriði gítarleiks og nokkur
þekktustu rokklög sögunnar tekin fyrir.
SÖNG- OG GÍTARNÁM
SKRÁNING Á NÝJA NÁMSÖNN ER HAFIN
FARÐU Á TONVINNSLUSKOLI.IS OG VELDU ÞÉR NÁMSKEIÐ
SELMA
JÓNSI
ANDREA
HEIÐA
VIGGI
GUNNI
„Það var tíðum skeggrætt um stofnun ungmennafélags hér á Digranes-
hálsinum vorið sem undirritaður varð níu ára,“ ritaði Ólafur Guðmundsson
í Skólasögu Kópavogs. „Af þeirri umræðu drógum við pottormarnir þá
ályktun að væntanlegt ungmennafélag – sem síðar hlaut nafnið Breiðablik,
yrði fyrst og fremst félagsskapur „gamlingja“. Því ákváðum við að verða
fyrri til og stofna okkar eigið knattspyrnufélag. Það hlaut í fyrstu nafnið
Knattspyrnufélagið Grís – en tveimur árum síðar komumst við að þeim
sannindum að nafngiftin væri ekki fyllilega við hæfi og þá var ákveðið að
stofna nýtt félag, Knattspyrnufélagið Svan. Meginviðfangsefni félagsins
var ástundun knattspyrnu en félagsstarfsemin tók einnig til uppfærslu
leikrita, málfunda og lestrarhringja – enda rak félagið bókasafn í kjall-
aranum að Kópavogsbletti 121 (síðar Digranesvegur 34, nú hús nr. 58 við
Digranesveg). [...] Starfsemi Knattspyrnufélagsins Svans leið undir lok
hægt og sígandi á árunum 1954–55 þegar unglingsárin færðust yfir pott-
ormana.“
Breiðablik og Knatt-
spyrnufélagið Grís