Morgunblaðið - 27.08.2006, Síða 41
unarlega komið sér upp til að
skapa stöðugleika og velferð í sínu
landi.
Það fer ekki framhjá neinum
uppgangurinn á Spáni síðan evran
var tekin upp hjá þeim. Og það er
einnig alveg öruggt að Spánverjar
þurfa ekki að „kæla“ hagkerfið
eins og Íslendingar og bremsa
niður allt atvinnulífið og vorkennir
ráðherrann Spánverjum að geta
ekki fælt í burtu alla fjárfestana
með „kælingu“.
Á Íslandi virðist í reynd aðeins
verið að „kæla“ það ástand að of
margir eru farnir að hafa það
gott, of margir gátu fjárfest með
betri kjörum ný-einkavæddra
banka. Fólk má ekki gera það of
gott á Íslandi, ekki of margir að
græða í einu. Að græða er einka-
mál valdastéttarinnar á Íslandi
sem síðan kastar skít í erlend ríki
sem leyfa þegnunum að græða eða
fjárfesta ef möguleiki skapast til
þess með lágum vöxtum á lánsfé
og flóði erlendra fjárfesta inn í
landið.
Með því að „stíga á bremsuna“
á Íslandi og „kæla“ hagkerfið þá
er allt samfélagið bremsað niður
og tækifærin sem valdastéttin var
að missa af vegna hraðans í sam-
félaginu bíða meðan þeir eru að ná
áttum og ljúka næstu kosningum
og skipuleggja fiktið og eiginhags-
munastefnuna upp á nýtt. Þeir
voru farnir á taugum blessaðir og
þess vegna kom „kælingin“.
Á Spáni virðist ríkið hvergi vera
með puttana í atvinnurekstri á
sömu forsendum og á Íslandi og
pólitíkusar á Spáni væntanlega
ekki með nefið ofan í hvers manns
koppi eins og hér heima, heldur
eru fjárfestingafyrirtæki í einka-
eign, bæði spænsk og erlend fyr-
irtæki með fjármagn sem hefur
ekkert með spænska pólitíkusa að
gera.
Þetta öfluga einkarekna at-
vinnumarkaðskerfi á Spáni mun
starfa óáreitt svo lengi sem
stjórnmálamennirnir raska ekki ró
markaðarins með fikti í gengi og
vöxtum og þess vegna munu fjár-
festarnir halda áfram að flæða inn
og fjárfesta á hinum stöðuga og
verðtrausta Spáni en ekki á Ís-
landi með vaxtafiktandi stjórn-
málamenn. Þetta séríslenska óska-
flækjuhagkerfi Einars K. ráðherra
er hluti af einhverju plotti ís-
lenskra ráðamanna til að koma
viljandi í veg fyrir fjárfestingar
erlendra fjárfesta. Miðað við Spán
þá er Ísland nær algerlega sósíal-
ískt ríki a.m.k. í opinberum fjár-
málum.
Ein kenningin er að þessu
flækjukerfi sé viðhaldið til að eyða
skuldum úrgerðar á Íslandi. Ef
það er rétt þarf greinilega að
stokka upp allt sem heitir útgerð
og veiðar við strendur Íslands.
Höfundur er verkfræðingur.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2006 41
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Skólavörðustíg
13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
Opið hús milli kl. 17 og 19 í dag
Naustabryggja 2 - Glæsieign
Stórglæsileg 106 fm 3ja-4ra herb. endaíbúð m. verönd og bílageymslu. Mjög björt m.
gluggum á 3 vegu, skemmtileg og vel skipulögð íbúð. Stór stofa, borðstofa, eldhús m.
krók, 2 herb., flísalagt bað og þvottahús. Massíft hlynparket nýl. pússað og mattlakk-
að. Sléttpússaðir veggir og loft, nýl. hvítmálað. Allar innrétt. eru úr öl frá Axis. Lýsing
hönnuð af Lumex. Viðarrimlar fyrir öllum gluggum nema eldhúsi, þar eru álrimlar, allt
frá Pílutjöldum. Innangengt í læsta bílgeymslu og sérgeymslu. Dekkjageymsla og fleiri
geymslur í sameign. Húsið er fallegt, klætt að utan og því viðhaldslítið. Fallegt grænt
svæði bak við hús. Glæsileg eign fyrir fagurkera. Verð 27,5 millj.
Benjamín og Eva taka vel á móti gestum í dag milli kl. 17 og 19
Bjalla merkt 105 - Teikningar á staðnum
Opið hús milli kl. 14 og 16 í dag
Birkihlíð 22 – Stórglæsilegt raðhús
Stórglæsilegt og mikið endurnýjað 231,6 fm raðhús ásamt 28 fm bílskúr í Suðurhlíðum
Reykjavíkur. Húsið er á 3 hæðum og allt hið glæsilegasta með parketi og flísum á gólf-
um. Arinn í stofu. Eldhús með nýlegri innr. út ljósri eik. Lóð öll nýtekin í gegn með upp-
hitaðri hellulögn og lýsingu. Útsýni til suðvestus. Gott vinnurými í kjallara sem býður
upp á mikla möguleika. Bílskúr er fullbúinn með millilofti og góðri lofthæð. Laust fljót-
lega. Verð 56,3 millj.
Elías Haraldsson sölumaður, s. 898 2007, verður á staðnum
milli kl. 14 og 16
Opið hús í dag milli kl. 17 og 19
Skeiðarvogur 25
Sérhæð m. bílskúr – Laus
Falleg 162,7 fm sérhæð með bílskúr á þessum vinsæla stað í Vogunum. Íbúðin er á
tveimur hæðum. Á neðri hæð er forstofa, snyrting, eldhús, búr, borðstofa, rúmgóð og
björt stofa, suðursvalir og símahol. Parket á stofum og gangi, flísar á eldhúsi og for-
stofu. Á efri hæð er baðherbergi með sturtu, þvottahús, suðursvalir með útsýni og 3
rúmgóð herbergi með skápum. Parket og dúkar eru á gólfum. Stutt í Vogaskóla,
Menntaskólann v. Sund og alla þjónustu. Bílskúr er næstur húsinu og er með vatni og
rafmagni.
Rúmgóð og falleg sérhæð sem er laus fljótlega. Verð 31,9 millj.
Bergþóra tekur vel á móti þér milli klukkan 17 og 19 í dag
Teikningar á staðnum
Opið hús í dag milli kl. 14 og 16
Víðimelur 39, sérinngangur
Mjög snyrtileg 2ja herbergja 50,6 fm íbúð í kj. í steinhúsi á þessum eftirsótta stað við
Háskólann. Eignin skiptist í anddyri og eldhús með fallegum flísum. Björt stofa með
hornglugga og parketi. Svefnherbergi og hol parketlagt. Gott baðherbergi með flísum
í hólf og gólf með glugga og sturtu. Íbúð er laus. Verð 13,9 millj.
Bjarni tekur á móti gestum milli kl. 14 og 16. Teikningar á staðnum
Opið hús í dag milli kl. 14 og 16
Hörgshlíð 24
Vorum að fá í sölu frábærlega staðsetta og vel skipulagða 5-6 herbergja 137,2 fm neðri
sérhæð í steinhúsi. Eigninni fylgir að auki 25,1 fm innbyggður bílskúr sem búið er að
breyta í stúdíóíbúð og er í útleigu í dag. Eignin er því samtals 162,3 fm og skiptist í
forstofu, hol, fjögur svefnherbergi, snyrtingu, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu.
Frá borðstofu er gengið út á suðursvalir og þaðan eru 4 þrep niður í garð.
Eignin er laus um miðjan september. Verð 39,9 millj.
Elísabet tekur á móti gestum í dag milli kl. 14 og 16
Teikningar á staðnum
Upplýsingar gefur Bjarni Pétursson hjá AKKURAT, s. 896 3875 og 594 5008.
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
S. 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali
BÆJARFLÖT 4
BAR Í MIÐBÆNUM
Glæsilegt atvinnuhúsnæði,
1.201,2 fm iðnaðar- og
þjónustuhús. Húsið er mjög
vel staðsett og liggur vel að
samgöngum, bílastæði er
stórt og gefur möguleika til
ýmiskonar reksturs.
Erum með góðan bar til sölu í miðbænum, góð afkoma.
Sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
www.heimili.is
með innbyggðum 26 fm bílskúr. Tvennar svalir, mikið útsýni,
hellulagt bílaplan og afgirt verönd í suðvestri. 4-5 svefnherbergi.
Gott hús í rólegu, barnvænu hverfi.
Jón Gunnar og Sigrún taka á móti gestum í dag
milli kl. 15:00 og 17:00.
Verið velkomin!
Dalhús 95 - Grafarvogi
Vandað 192 fm raðhús á
tveimur hæðum
Sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
www.heimili.is
með innbyggðum bílskúr. Húsið stendur í skjólgóðum, fallegum
garði. 4-5 svefnherbergi, nýlegt baðherbergi og eldhús, hellulagt
bílaplan og afgirt timburverönd. Gott hús á rólegum stað.
Eggert og Ingibjörg taka á móti gestum í dag
milli kl 15:00 og 16:00.
Verið velkomin!
Bjarkargrund 1 - Akranesi
Gott 170 fm einbýlishús
á einni hæð