Morgunblaðið - 27.08.2006, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Á ÁRI aldraðra 1999 varð Kópa-
vogur fyrstur sveitarfélaga til að
opna félagsstarf aldraðra fyrir fólki
á öllum aldri.
Síðan hafa fé-
lagsheimilin Gjá-
bakki og Gull-
smári iðað af
mannlífi og hóp-
astarf utan og á
vinnutíma hefur
verið afar fjöl-
breytt. Þetta er
m.a. ástæða þess
að félagsstarf
aldraðra í Kópa-
vogi er eitt fjölbreyttasta ef ekki
allra fjölbreyttasta félagsstarf aldr-
aðra á landinu. Þessa fjölbreytni
má rekja til þess að fólkið sjálft –
hver og einn – er virkur þátttak-
andi í að móta starfsemina og
framkvæma með félagslegum
stuðningi frá starfsmönnum Kópa-
vogsbæjar. Hugmyndafræðin sem
unnið er eftir í félagsstarfi aldraðra
í Kópavogi gerir ráð fyrir að fé-
lagsstarf, í hverri mynd sem það
birtist, þurfi að mótast af við-
horfum og gildum í samfélaginu á
hverjum tíma. Þátttaka í fé-
lagsstarfi takmarkast af því að
þátttakendur hafi gagn eða gaman
af þátttökunni og best er að hvoru-
tveggja sé.
Enn á ný eru á ferðinni nýjar
áherslur í starfsemi félagsstarfs
aldraðra í Kópavogi.
Í vetur verða m.a. í boði Handa-
vinnukvöld í Gullsmára frá kl. 20–
22. Þangað geta einstaklingar á öll-
um aldri og báðum kynjum komið
með sína handavinnu, notið leið-
sagnar eða hitt mann og annan, sér
að kostnaðarlausu. Þá verða einnig
jógaæfingar tvisvar í viku og al-
menn líkamsþjálfun kl. 18.15 þar
sem öllum gefst tækifæri á að njóta
leiðsagnar fagaðila og ef nægur
áhugi reynist verða á námskeiðum í
Gullsmára á kvöldin þar sem fólki
á öllum aldri er boðin þátttaka. Að
sjálfsögðu verður þátttaka tak-
mörkuð við 10 manns á hverju
námskeiði.
Þessum áherslubreytingum er
ætlað að gefa þeim sem enn eru á
vinnumarkaði tækifæri til að kynna
sér þá möguleika af eigin raun til
að viðhalda andlegri og líkamlegri
færni sem fæst með þátttöku í fé-
lagsstarfi. Þá reynist án efa ekki
erfið ákvörðun að verða virkur
þátttakandi þegar launavinnu lýk-
ur.
Starfsemi í félagsheimilunum
verður kynnt í Gjábakka, Fannborg
8 fimmtudag 31. ágúst og í Gull-
smára, Gullsmára 13 miðvikudag 6.
sept. og hefjast kynningarnar, sem
eru öllum opnar, kl. 14.00.
SIGURBJÖRG
BJÖRGVINSDÓTTIR,
yfirmaður félagsstarfs aldraðra
í Kópavogi
Þátttaka í félagsstarfi – lífsstíll
Frá Sigurbjörgu Björgvinsdóttur:
Sigurbjörg Björg-
vinsdóttir
Sumarbústaður
HVAMMMUR - SKORRADAL
Glæsilegt og mjög vandað 100 fm heilsárshús í landi Hvamms í Skorradal.
Húsið skilast fullbúið að utan með 110 fm verönd og skjólveggjum og fok-
helt að innan. Falleg lóð stutt frá Skorradalsvatni.
Í dag sunnudaginn 27. ágúst, milli kl. 15 og 17 er opið hús í þessari fallegu
96 fm íbúð í Laufrima 2. Íbúðin er 4ra herbergja á efri hæð og er hún með
sérinngangi. Fallegt útsýni. V. 21,9 m. 5914
Haukur og Valgerður taka á móti fólki í dag.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Laufrimi 2 - Opið hús
Skeifunni 11 Sími 534 5400 www.klettur.is
SJÁVARGATA 18 - ÁLFTANESI
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 27. ÁGÚST
MILLI KL. 17:00-18:00
Eignin er með fallegu útsýni til fjalla og stendur við lokaða botnlangagötu.
Útsýni er að Snæfellsjökli og einnig að Esjunni úr húsinu og af lóð. Eignin er alls
166,2 fm, þar af bílskúr 35 fm (íbúð 131,2 fm). Húsið stendur á eignarlóð.
Nánari lýsing á eigninni: Komið er inn í flísalagða forstofu, úr forstofu til vinstri
er gengið að herbergjum, sjónvarpsstofu, þvottahúsi og baðherbergi en til
hægri er gengið að stofu og eldhúsi. Barnaherbergin tvö eru með parketi á
gólfi, baðherbergið er með sturtu og baði sem nýlega hefur verið standsett,
þar eru flísar á gólfi og veggjum, hjónaherbergið er rúmgott með dúk á gólfi og
nýjum sérsmíðuðum fataskáp, sjónvarpsholið er parketlagt og inn af því er
gengið inn í þvottahús og geymslu með hillum, útgengt er út í garð úr þvotta-
húsi. Stofan er parketlögð með eikarparketi, hátt er til lofts og loft klædd með
hvíttuðum viðarpanel, úr stofu er útgangur á verönd. Eldhúsið er með hvítri
innréttingu og góðum borðkrók, útgengt er úr eldhúsi á verönd og sólpall. Bíl-
skúrinn er nokkuð stór og rúmgóður með sjálfvirkum bílskúrshurðaopnara.
Húsið stendur á stórri lóð, fyrir framan bílskúr er stórt og mikið malbikað bíla-
plan með hitalögn. Húsið stendur við fallega götu og stutt er í fallegar göngu-
leiðir og fallegt útsýni er af lóð og úr húsinu eins og áður sagði. Með eigninni
fylgir gervihnattardiskur og sá búnaður sem tengist notkun hans. Þetta er
sannarlega eign sem vert er að skoða.
Sölumaður Kletts fasteignasölu tekur á móti gestum.
Kristján Ólafsson hrl. og löggildur fasts.
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
SKÖMMU eftir níræðisafmæli
Gríms Gíslasonar á Blönduósi í
ársbyrjun 2002 hófust handa
nokkrir velunnarar og ættmenni
hans í samráði og samvinnu við
bæjarstjóra og bæjarstjórn
Blönduóssbæjar að vinna að því að
fá afsteypu af styttu Ásmundar
Sveinssonar myndhöggvara setta
upp á Blönduósi. Stytta hins mikla
listamanns heitir
Veðurspámaður
og stendur
frummyndin fyr-
ir framan safn
Ásmundar eða
Listasafn
Reykjavíkur við
Sigtún í Reykja-
vík. Þetta yrði
öðrum þræði
gert til að prýða
Blönduós en einnig til að heiðra
Grím. Fátt gleður auga vegfar-
enda í bæjum og borgum meira en
höggmyndir listamanna þjóð-
arinnar og mættu þær vera fleiri
og víðar.
Skemmst er frá að segja að af-
steypan er nú fyrir tilstilli Lista-
safns Reykjavíkur komin til lands-
ins frá Englandi þar sem hún
hefur verið unnin af meisturum
þar í landi, sjá annars frétt á for-
síðu Morgunblaðsins 2. október
2005. Ætlunin er að afhjúpa Veð-
urspámanninn á Blönduósi
snemma í haust 2006. Verður það
að vonum stór stund á Blönduósi
og í héraðinu að eignast slíka bæj-
arprýði, verk eins ástsælasta lista-
manns þjóðarinnar, og jafnframt
ánægjustund hjá þeim sem unnið
hafa að þessari framkvæmd Grími
til heiðurs.
„Þetta er Grímur Gíslason sem
talar frá Blönduósi.“ Kunnugleg
kveðja en svo lýkur Grímur frétta-
maður Ríkisútvarpsins fréttapistli
sínum í útvarp um helstu tíðindi í
Húnaþingi.
Fátt fer fram hjá aldursforseta
fréttamanna á Íslandi. En á langri
ævi hefur hann ekki látið sér
nægja að fylgjast með og segja frá
heldur látið að sér kveða á mörg-
um sviðum þjóðlífs allt fram á
þennan dag. Enn á hann annríkt
við samningu frétta, tímarits-
greina og blaðagreina, æfir í
kirkjukór, sækir fundi, mót og há-
tíðir, sinnir gestum og fjölda af-
komenda og öðrum ættmennum.
Hann skirrist þá ekki við að
bregða sér milli landshluta ef svo
býður við að horfa.
Grímur fylgist með þjóðmála-
umræðunni og ber fyrir brjósti
hag lands og þjóðar. Og ekki eru
kraftar á þrotum því daglega ekur
heiðursborgari Blönduóssbæjar,
annar tveggja, fram í hesthús fyr-
ir utan bæ til að sinna hestum sín-
um og gáir til veðurs í leiðinni,
gamall bóndi í Vatnsdal og þraut-
reyndur veðurathugunarmaður á
Blönduósi til skamms tíma.
Góðum tíðindum fylgir nú
hvatning til unnenda Gríms,
Blönduóss og Húnaþings og til
þeirra sem stuðla vilja að því að
treysta listir í landinu. Dýrt er
Drottins orðið segir máltækið en
kostnaður við afsteypu og flutning
mun jafnast á við kaup á með-
aljeppa. Það yrði því vel þegið ef
lesendur þessara orða vildu góð-
fúslega taka þátt í komu Veð-
urspámanns Ásmundar til Blöndu-
óss og leggja af mörkum í sjóð til
styrktar framangreindu.
Þótt vissulega muni um stóru
framlögin er minnt á að margt
smátt gerir eitt stórt. Hver króna
léttir róðurinn. Nöfnum gefenda
verður haldið til haga í skjali en
sjálfir geta þeir til gamans státað
af því um ókomin ár að „eiga“
nokkra rúmsentímetra af Veð-
urspámanninum á Blönduósi.
Er hér að lokum vísað með fyr-
irfram þökk í reikning hjá Glitni,
útibúinu í Kringlunni: Veð-
urspámaður, reikningsnúmer
0515-14-611888.
ÞÓR JAKOBSSON,
veðurfræðingur og formaður
undirbúningsnefndar.
Til prýði og til heiðurs – Blönduós,
Grímur og Ásmundur Sveinsson
Frá dr. Þór Jakobssyni:
Þór Jakobsson
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Ásmundur Sveinsson myndhöggvara hjá styttu sinni, Veðurspámanninum.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn