Morgunblaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 25
er nú einn af þremur alþjóðlega
vernduðum náttúrustöðum á Íslandi,
þótt minna fari fyrir honum í um-
ræðunni en hinum tveimur, Mývatni
og Þjórsárverum. Ungur tengdist ég
því íslenskri náttúru og dýralífi sterk-
um böndum og talaði mikið við æðar-
fugl jafnt og selkópana sem sátu á
klöppunum við sjóinn. Á okkar heim-
ili var algjörlega bannað að deyða
fugla og sel, sem borgaði stundum
fyrir sig með því að reka tíu eða tutt-
ugu laxa inní netin hjá okkur. Þessi
staður, sem nú heitir Vallanes, er enn
í okkar fjölskyldu og ég fer þangað
oft til að njóta kyrrðar og fegurðar.“
Sem barn sá Guðni inní aðra veröld
þessarar náttúruparadísar. „Ég sá
huldufólk, rétt einsog ég sé þig núna.
Sérstaklega er eitt tilvikið mér minn-
isstætt og ótvírætt. Þá reri huldufólk-
ið á bát inní klettana við ströndina.
Mikill vinur minn, Jóhannes Kjarval
listmálari, sem ég kynntist gegnum
blaðamennskuna, trúði líka á huldu-
fólk, einsog sjá má af mörgum hans
bestu málverkum. Hann málaði einn-
ig þetta atvik og gaf mér myndina,
sem enn hangir í stofu okkar hjóna.“
Í ævisögunni kemur einmitt fram
að Kjarval sagði þetta atvik hafa ver-
ið það sem „mestu skipti í lífi þínu.“
Ertu sammála því?
„Ja, ég get að minnsta kosti þakk-
að fyrir það að eitthvert hulið vald
hefur haldið verndarhendi yfir mér,
þrátt fyrir allt, jafnvel í ýmsum orr-
ustum á viðskiptasviðinu sem skæðar
voru. Tvö atvik skera sig þó úr. Þá
skeikaði örfáum mínútum að ég fær-
ist. Það fyrra var þegar ég þurfti að
fara til Vestmannaeyja sem blaða-
maður og kom of seint niður á höfn og
horfði á eftir skipinu sigla útum
mynnið. Það fórst svo um morguninn
í óveðri í innsiglingunni í Vestmanna-
eyjum og enginn komst af. Seinna
skiptið var ég hættur í blaðamennsk-
unni og kominn í flugútgerð, staddur
sem oftar í Las Palmas á Kanarí-
eyjum og var á heimleið gegnum
Evrópu. Mér bauðst að komast með
KLM-júmbóþotu frá Tenerife til
Amsterdam, en milli eyjanna er bara
kortersflug. Þegar ég mætti útá völl
og var kominn með brottfar-
arspjaldið fyrir ferjuflugið yfir til Te-
nerife sprengdu Baskar upp blóma-
búð í flugstöðvarbyggingunni.
Vellinum var lokað í skyndingu og öll
flug stöðvuð í tvo tíma. Á meðan fór
KLM-vélin frá Tenerife í loftið og
rakst fyrir mistök flugumferðar-
stjórnar á aðra júmbóþotu frá Pan
American. Þetta varð mesta flugslys
sögunnar; báðar vélarnar fullhlaðnar
eldsneyti og farþegum og allir fórust í
gríðarlegu eldhafi. Þarna munaði
kannski fimm mínútum að ég væri
um borð.“
Án þess að gá til veðurs
Það var tilviljun að Guðni Þórðar-
son gerðist blaðamaður árið 1944, 21
árs að aldri, en sú tilviljun leiddi hann
síðan á vit ævintýra og athafna á er-
lendum vettvangi. „Ég hafði hugsað
mér að halda áfram námi í MR. En
fyrir dyrum stóðu breytingar og
stækkun á Tímanum. Þar voru þá að-
eins tveir blaðamenn, Þórarinn Þór-
arinsson ritstjóri og Jón Helgason.
Hermanni Jónassyni, formanni
Framsóknarflokksins og blaðstjórnar
Tímans, hafði verið bent á mig sem
efni í blaðamann og var ég ráðinn
sem þriðji maður á ritstjórn. Ég hélt
ég gæti stundað menntaskólanámið
meðfram starfinu en það reyndist
auðvitað ógerlegt. Ég dagaði uppi í
blaðamennsku í hátt á annan áratug.“
Hann segir að fjölskyldan hafi ekki
verið ánægð með þessa ákvörðun.
„Þar var mikið íhaldsfólk í allar ættir
og Framsóknarflokkurinn ekki hátt
skrifaður. En langafi minn var Eng-
eyingur og kannski hef ég þrákelkn-
ina þaðan. Um Engeyinga var sagt að
þeir færu gjarnan á sjó án þess að gá
til veðurs; margir þeirra gistu þá votu
gröf. Sjálfsagt hef ég gert eitthvað
svipað í atvinnulífinu, lagt af stað án
þess að gá til veðurs og jafnvel fiskað
í landhelgi án þess að hafa kannað að
himnafaðirinn var búinn að úthluta
öðrum einkakvóta!“
Sjálfur kveðst Guðni aldrei hafa
verið pólitískur í flokkslegum skiln-
ingi og hvergi skráð sig flokksbund-
inn. „Dagblöðin voru í eigu stjórn-
málaflokkanna, nema Mogginn og
Vísir, sem rekin voru af hlutafélögum
en studdu Sjálfstæðisflokkinn. Menn
leyfðu sér ekki að skrifa gegn hags-
munum þessara eigenda. Þing-
fréttaritarar blaðanna sátu þing-
flokksfundi viðkomandi flokka. Það
átti þó ekki við um mig. Ég var þing-
fréttaritari Tímans í þrjá-fjóra vetur
en sat aldrei slíka fundi vegna þess að
ég var ekki í Framsóknarflokknum.
Mín blaðamennska var ópólitísk og,
að ég tel, fagleg. Ég fjallaði mikið um
atvinnulífið, kom upp fréttaritara-
kerfi um landið og annaðist öll sam-
skipti blaðsins við hernámsliðið, svo
ég taki dæmi. Ég fór til Bandaríkj-
anna og lærði „photojournalism“,
einsog það er kallað, ljósmyndablaða-
mennsku, sem þá var að ryðja sér til
rúms með útgáfu Life og fleiri slíkra
blaða. Þegar ég kom heim tók ég að
skrifa greinar og viðtöl sem voru
myndskreytt. Það heyrði til nýmæla í
fjölmiðlun á Íslandi. Þá var algengast
að menn tækju landslagsmyndir, en
ég lét það nánast alveg eiga sig og
einbeitti mér að fólkinu í landinu og
lífi þess. Þetta voru afskaplega
áhugaverðir tímar og blaðamennskan
átti vel við mig. Í rauninni kynntist ég
íslensku þjóðinni í þessu starfi og
tengdist henni nánari böndum. En ég
vandist einnig á mikil ferðalög og þau
urðu til þess að óviljandi lenti ég inná
þeirri braut, að búa til utanlands-
ferðir fyrir landsmenn.“
Pappírar í stað peninga
Hvað finnst Guðna um þessi tvö
helstu athafnasvið sín, íslenska fjöl-
miðlun og útrás, einsog þar er um að
litast núna?
„Þar er mikið líf og fjör. Sam-
keppnin á fjölmiðlamarkaðinum er al-
mennt til góðs, en ég er dálítið
hræddur um að fríblöðin, sem oft eru
með fína takta í blaðamennsku, þurfi
að taka fullmikið tillit til þeirra sem
borga brúsann, eigenda og auglýs-
enda, því þriðja stoðin, lesendur,
leggur þar ekkert fé af mörkum.
Hættan er að minnsta kosti sú, að
þessi gjafablöð verði litlausari og taki
ekki á málum, eða taki á þeim með
sambærilegu hugarfari og við gerð-
um á flokksblöðunum; þau kafi ekki
djúpt og leyfi sér ekki að leggja
margar síður undir efnismeiri grein-
ar. Ég stend mig að því enn þann dag
í dag að lesa blöðin einsog blaðamað-
ur; sú baktería hverfur ekki úr blóð-
inu hafi hún sest þar að á annað borð.
Ég les öll blöðin alla daga. Og ég segi
það ekki vegna þess að þú ert hjá
Morgunblaðinu, en mér finnst það
blað hafa þá sérstöðu að gefa meira
rúm undir bitastæðara efni.
Um útrásina segi ég þetta: Ég rak
flugfélag, sem á tveimur árum eign-
aðist þrjár fjögurra hreyfla úthafs-
þotur og þær flugu til 30 landa. En á
þessum útrásartíma þurfti maður
peninga. Nú finnst mér að menn þurfi
aðallega pappíra til útrásar. Ég skil
» „Það hefur ekki veriðmér eðlilegt að tjá
tilfinningar mínar og
sýna t.d. börnum mínum
föðurlegan kærleika,
vegna þess að ég þekkti
ekki slíkt í minni æsku.
Ég bara veit ekki hvað
það er …“
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
24
89
8
Frá 99.690 kr.*
Beint flug
Sand Castles
Sunset Jamaica Grande Resort
Glæsileg lúxusgisting
Gran Bahia Principe Jamaica
– glænýtt lúxushótel
Opnar
15. des.
2006
Allt innifalið í 10 daga - frá aðeins
119.790 kr.
Allt innifalið í 10 daga - frá aðeins
114.790 kr.
Gran Bahia Principe Jamaica – allt innifalið
Mjög gott fjögurra stjörnu hótel við ströndina í hjarta Ocho
Rios með góðri aðstöðu. Aðstaða og aðbúnaður hótelsins var
endurnýjað nýlega. Glæsilegur garður með 5 sundlaugum,
veitingastöðum, börum o.fl.. Herbergi eru með sjónvarpi, síma,
loftkælingu, baðherbergi, öryggishólfi og svölum/verönd. Örstutt
er í mannlífið fyrir þá sem kjósa að leita út fyrir hótelið.
Gott 3ja stjörnu hótel við ströndina, skammt frá Sunset Beach
Resort. Vel búin herbergi, með loftkælingu, sjónvarpi, síma,
öryggishólfi og ísskáp. Öll herbergi með svölum. Sundlaug,
garður, bar, veitingastaður, móttaka. Góður kostur fyrir þá
sem vilja einfaldari gistingu með minni þjónustu, en frábæra
staðsetningu og gott verð.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Stórglæsilegt og splunkunýtt fimm stjörnu glæsihótel við
ströndina í Runaway Bay. Hér finnur þú alla þá þjónustu
í fríinu sem hægt er að óska sér. Glæsilegan garð með 3
sundlaugum, barnalaugum, fjölda veitingastaða, bara, verslana,
líkamsrækt og tennisvöllum. Golfvellir og fjölbreytt sjósport
í nágrenninu. Hótelið er með 700 herbergi sem öll eru svítur
með nuddbaðkari. Öll herbergi eru með gervihnattasjónvarpi,
síma, loftkælingu, baðherbergi, öryggishólfi og svölum/verönd.
Þetta er stórglæsilegt hótel og örugglega eitt það allra besta á
Jamaica – hér er dekrað við þig í aðbúnaði og þjónustu.
Allt innifalið:
• Morgunverðarhlaðborð
• Hádegisverðarhlaðborð
• Kvöldverður (val um 5 veitingastaði)
• Innlendir drykkir
• Aðgangur að diskóteki hótelsins
• Aðgangur að líkamsrækt
• Sólbekkir, sólhlífar og handklæði
• Skemmtidagskrá á daginn og kvöldin
• Minibar m/vatn, gos og bjór (fyllt á daglega)
• Köfunarkennsla í sundlauginni (1 klst.)
• Frítt á brimbretti, tennis, báta án mótors
eða reiðhjól (í 1 klst.)
Hvað er í boði
• 5 veitingastaðir
• 5 barir
• 3 sundlaugar
• Verslanir
• Öryggishólf
(gegn gjaldi)
• Barnagæsla
• Líkamsrækt
• Heilsulind
• Barnaklúbbur
• Tennisvellir
• Fjölbreytt sjósport
• Diskótek
• Píanó bar, Karaoke bar
og sport bar
• Mótor- og reiðhjólaleiga
• Læknisþjónusta
• Golf, Runaway Bay Golf Club
• Kayakar
• Skemmtidagskrá fyrir börnin
Jamaica er ein fegursta eyja Karíbahafsins og hún býður stórkostlega náttúrufegurð og veðurfar. Á Jamaica ríkir einnig einstakt
andrúmsloft og menningin á sér vart hliðstæðu í Karíbahafinu. Sandstrendurnar eru drifhvítar og með þeim fegurstu í heimi. Eyjan
skartar náttúruperlum eins og Dunn’s fossunum, Blue Mountains og YS fossunum sem eru einstakar og láta engan ósnortinn. Reggie
tónlistin ómar allsstaðar, taktur Bob Marleys fægasta sonar Jamaica. Þeir sem hafa komið til Jamaica eru flestir sammála um að eyjan
hafi einstakt aðdráttarafl. Hún er einn þessara heillandi áfangastaða Karíbahafsins sem laða ferðmenn til sín aftur og aftur.
*) Netverð á mann m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði á Sand Castles í 9 nætur. Verðdæmi eru netverð á mann m.v. í gistingu tvíbýli. Verð getur breyst án fyrirvara.
Öll herbergi eru svítur
Aukaferð 13. febrúar
þökkum ótrúlegar viðtökur!
Ferðin 4. feb. seldist upp á
örskotsstundu.
Jamaica
4. feb. – UPPSELT • 13. febrúar – AUKAFERÐ 10 daga ferð - 9 nætur