Morgunblaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 77
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn kemst á snoðir um leynd-
armál sem best er að ekki sé hreyft
við. Ef einhver svarar: Þú vilt ekki
vita það skaltu taka viðkomandi á
orðinu. Hlauptu í hina áttina og taktu
forvitnina með þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Spennan sem þú finnur til vegna yf-
irvofandi fundar með nýju fólki er til
komin vegna ímyndaðs mikilvægis
þess. En þegar upp er staðið er eng-
inn mikilvægari en annar. Meðtaktu
það og spennan hverfur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þarfir þínar eru mikilvægar og þú
ættir að splæsa því á þig sem þig
langar í. Ef þú bíður of lengi glatast
tækifærið og áður en þú veist af verð-
ur þú á kafi í að dekra við aðra. Gest-
ir utan af landi koma hugsanlega í
heimsókn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hæfileikar krabbans til að elska eru
án takmarkana. Hann hressist eink-
um og sér í lagi með samskiptum við
einhvern sem er miklu yngri, því
yngri sem viðkomandi er því betra er
sambandið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Fortíðin lætur á sér kræla með
leyndarmál í farteskinu, vísbendingar
leynast í draumum og „deja vu“ upp-
lifunum. Treystu víðsýnum félaga
fyrir viðkvæmu málefni sem þú þarft
að ræða.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Njóttu sívaxandi tilfinningar fyrir
samhygð, réttlæti og samstöðu í um-
hverfinu. Þú gætir rekist á drauma-
félagann um leið og þú berst fyrir
jafnrétti og bræðralagi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Of mikið annríki hefur gert vogina
útkeyrða. Nú á hún rétt á því að
hvíla sig og endurnýja. Þótt eitthvað
geri þig hamingjusama er ekki þar
með sagt að það sé eigingjarnt. Þú
hjálpar öðrum með því að láta þér
líða vel.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sýndu háttvísi. Hún felst í því að
spyrja réttu spurninganna og vita
hvenær komið er nóg. Ef þú ert ekki
viss skaltu frekar halda aftur af þér
en hitt. Krabbi og naut reynast frá-
bær félagsskapur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nýtt samband virðist byggt á vináttu
en staða himintunglanna bendir til að
ástríðan kraumi undir niðri. Mikil
ákefð býr undir sakleysislegu yfir-
bragði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hætt er við að steingeitin sé með of
þungan farangur á lífsins leið. Sýndu
dirfsku og mættu óundirbúin og
skildu helminginn eftir heima.
Treystu alheiminum til þess að færa
þér nákvæmlega það sem þig vantar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn hefur mátt þola þung
högg og verður að safna kröftum.
Eyddu deginum í að leita að ein-
hverju nýju í eigin fari sem þú getur
látið þér falla í geð og dáðst að.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Togstreitan milli léttrar vináttu og
þarfarinnar fyrir eitthvað dýpra og
innilegra gerir að verkum að fiskur-
inn fer aftur og aftur yfir eitthvað
sem sagt var og ekki sagt í huganum.
Allt í nafni vináttunnar.
Venus fer í hið svala og yfir-
vegaða merki steingeitar-
innar. Ástin er kannski að-
eins minna opinská á
augljósan hátt en lífsmáti
okkar, tíminn sem við verj-
um eð fólki, forgangsröðunin eru bestu
vísbendingarnar um ást. Það er auðvelt
að segja, ég elska þig. Að fara eftir því er
annar handleggur.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Heather Mills,fyrirsætan
fyrrverandi sem
stendur nú í
skilnaðardeilu við
bítilinn Paul
McCartney, hef-
ur ákveðið að
flytja hluta máls
síns sjálf fyrir
dómstólum, til að
spara lögfræði-
kostnað. Mills
flutti mál sitt fyr-
ir hæstarétti í Lundúnum í síðustu
viku og sl. miðvikudag, þar sem
fjallað var um kröfu um að McCart-
ney verði meinað að koma inn á
heimili hennar og henni inn á heimili
hans.
Ónafngreindur vinur Mills segir
samkvæmt vefsíðu breska blaðsins
Daily Mirror að hún sé greind kona
og hafi treyst sér til að flytja málið.
Mills er sögð greiða um 15.000
pund á dag til lögfræðinga sinna, eða
um tvær milljónir króna. Hún verð-
ur að öllum líkindum vellauðug þeg-
ar skilnaðardeilunni lýkur, en er
ekki sögð hafa efni á að greiða lög-
fræðikostnaðinn að svo stöddu.
Lögfræðingurinn Mischon de
Reya starfar enn fyrir Mills við aðal-
hluta málsins, sem snýr að fjárkröfu
og forræði yfir dóttur þeirra. Mills
hefur krafist þess að fá greiddar 80
milljónir punda vegna skilnaðarins,
um 10 milljarða íslenskra króna.
Eignir McCartneys eru hins vegar
metnar á litlar 825 milljónir punda.
Leikarinn Lou Diamond Phillips,sem gerði m.a. garðinn frægan
í kvikmyndinni La Bamba, hefur
verið dæmdur í þriggja ára skilorðs-
bundið fangelsi eftir að hann játaði
að hafa beitt kærustu sína ofbeldi.
Phillips, sem er 44 ára gamall, er
gert að mæta í ráðgjöf vegna
heimilisofbeldis og þá verður hann
að skila 22 stundum í samfélagsþjón-
ustu. Þetta var
niðurstaða dóm-
stóls í Los Angel-
es.
Saksóknari
heldur því fram
að hann hafi ýtt
og dregið konuna
um heimili þeirra.
Talsmaður
Phillips segir að
leikarinn muni hlíta úrskurðinum.
Phillips skaust á stjörnuhimininn
sem söngvarinn Ritchie Valens í
kvikmyndinni La Bamba árið 1987.
Meðal annarra kvikmynda hans
má nefna Stand and Deliver, Young
Guns og Courage Under Fire. Þá
hefur hann einnig leikið gesta-
hlutverk í bandarískum sjónvarps-
þáttum á borð við Law & Order:
Special Victims Unit.
Fólk folk@mbl.is
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
THE HOLIDAY kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
DEAD OR ALIVE kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 12
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 1:40 - 3:50 - 6 LEYFÐ DIGITAL
FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 8 - 10 LEYFÐ DIGITAL
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 1:40 - 3:30 LEYFÐ
JÓNAS: SAGA UM GRÆNMETI m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
FLUSHED AWAY
Frá framleiðendum
og
SÝND BÆÐI MEÐ ÍSKLENSKU OG ENSKU TALI
Frábær skemmtun
fyrir alla fjölskylduna
eeee
S.V. MBL.
HVERSU LANGT
MYNDIR ÞÚ GANGA
TIL AÐ HALDA LÍFI
JÓLAMYNDIN Í ÁR
Frábær rómantísk gamanmynd frá Nancy Meyers
leikstjóra What Women Want og Something´s Gotta Give.
Martin ShortTim Allen
BARÁTTAN
UM JÓLIN
ER HAFIN
NÚNA ÞARF JÓLASVEINNINN (T. ALLEN)
AÐ TAKA Á STÓRA SÍNUM ENDA HYGGST
JACK FROST (M. SHORT) EIGNA SÉR JÓLIN
OG VERÐA NÝR OG BETRI JÓLASVEINN!
JÓLASVEININN 3
SÝND Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
Cameron
Diaz
Kate
Winslet
Jude
Law
Jack
Black
DEAD OR ALIVE kl. 4 - 6 - 8 - 9 - 10:10 B.i.12 ára
DEAD OR ALIVE VIP kl. 2 - 5 - 8 - 10:10
SAW 3 kl. 8 - 10:20 B.i.16 ára
SANTA CLAUSE 3 kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 LEYFÐ
THE GRUDGE 2 kl. 5:50 - 10:30 B.i.16 ára
FLY BOYS kl. 8 B.I. 12 ára
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 LEYFÐ
FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 1:45 - 3:40 LEYFÐ
JÓNAS: SAGA UM... m/ísl. tali kl. 1:45 LEYFÐ
ÓBYGGÐIRNAR m/ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ
„THE WILD“
ÓBYGGÐIRNAR
Sýnd með íslensku tali !
JÓLASVEINNINN 3 M/- ÍSL TAL. KL. 1:30 Í ÁLFABAKKA KL. 2 Á AK OG KEF.
ÓBYGGÐIRNAR M/- ÍSL TAL. KL. 1:30 Í ÁLFABAKKA
BÆJARHLAÐIÐ M/- ÍSL TAL. KL. 1:45 Í ÁLFABAKKA
JÓNAS, SAGA UM GRÆNMETI M/- ÍSL TAL. KL. 1:45 Í ÁLFABAKKA
SKOLAÐ Í BURTU 3 M/- ÍSL TAL. KL. 1:30 Í ÁLFABAKKA KL. 2 Á AK OG KEF.
SparBíó* — 450kr
SparBíó* : 450 KR MIÐAVERÐ Á OFANTALDAR SÝNINGAR
Laugardag og Sunnudag Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI OG KEFLAVÍK