Morgunblaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 53
AÐ UNDANFÖRNU hefur verið
nokkur umræða um þá ákvörðun að
lóga þyrfti um 60 fuglum í Fjöl-
skyldu- og hús-
dýragarðinum í
Reykjavík hinn 20. nóv-
ember sl., vegna fugla-
flensusmits. Það er að
mörgu leyti eðlilegt að
spurt sé hvort þetta
hafi verið nauðsynleg
aðgerð. Hér verður
gerð grein fyrir helstu
ástæðum þess að Land-
búnaðarstofnun ákvað,
í samræmi við lög þar
að lútandi, að leggja til
við landbúnaðarráð-
herra að hann fyr-
irskipaði ofangreindan niðurskurð
sem hann svo féllst á.
Allt frá haustmánuðum á síðasta
ári hafa verið tekin sýni úr fuglum
hér á landi til að fylgjast með hvort
fuglaflensa af hinu skæða afbrigði
H5N1 hafi borist til landsins. Sem
betur fer hefur ekkert slíkt komið í
ljós, en í febrúar 2006 bárust nið-
urstöður úr sýnum úr hænum og
andfuglum í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í Reykjavík, þar sem
mótefni greindust gegn vægum af-
brigðum af fuglaflensu af H5-
gerðinni. Þá var ákveðið, miðað við
áhættumat sem var í gildi hér og er-
lendis, að aðhafast ekki að svo
stöddu, heldur skyldi fylgst vel með
ástandi fuglanna. Talið var líklegt að
villtir fuglar hefðu borið með sér
smitið í garðinn.
Sem kunnugt er þýðir jákvætt
mótefnasvar í blóði fuglanna að þeir
hafi einhvern tíma smitast af veirunni
sem tilgreind er í svari rann-
sóknastofunnar. Hvort veiran hafi
verið til staðar við sýna-
tökurnar úr fuglunum
eða hvort hér sé um
eldri sögu að ræða er
erfitt að skera úr um.
Engin próf eru full-
komlega örugg í þessu
tilliti. Þess ber einnig að
geta að sumar þessara
inflúensuveira, einkum
af gerðum H5 eða H7,
eru alþekktar fyrir
þann eiginleika að
breytast úr vægum af-
brigðum í skæð. Jafn-
framt er faraldsfræði
fuglaflensu mjög flókin og alls ekki
fullrannsökuð.
Hinn 13. nóvember bárust nið-
urstöður úr sýnum sem tekin voru í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í
lok október 2006. Af tíu sýnum voru
fjögur jákvæð gegn H5-flensuveir-
um. Ljóst var að fyrri ákvörðun um
að afhafast ekki þyrfti að endur-
skoða.
Að mótefnin skyldu enn vera til
staðar, í svipuðu magni og áður, gaf
tilefni til að ætla að veirusmit gæti
hugsanlega verið til staðar í fugl-
unum. Hætta sem af því gat stafað
var ekki talin ásættanleg. Einnig var
haft í huga hert áhættumat annarra
þjóða í þessu tilliti þar sem tilsvar-
andi mótefnagreining í mörgum til-
vikum hefur leitt til förgunar viðkom-
andi fuglahópa, m.a. í Danmörku.
Sömuleiðis var litið til ráðlegginga
Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunar-
innar OIE í París, sem Ísland er aðili
að, þar sem lagt er til að fuglum sem
mælast með tilsvarandi mótefni og
greindust hér á landi skuli lógað.
Ákvörðunin um að leggja til að
ákveðnum fuglum í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í Reykjavík yrði
lógað var nauðsynleg örygg-
isráðstöfun til að fyrirbyggja að
fuglaflensa gæti borist til annarra ali-
fugla og tekin að vandlega athuguðu
máli. Þegar jafn veigamiklar og sárs-
aukafullar ráðstafanir sem þessar
eru teknar er ekki unnt að hafa sam-
ráð við hagsmunahópa enda um að
ræða aðgerðir til að hindra dreifingu
smitefnis sbr. ákvæði laga nr. 25 /
1997 um dýrasjúkdóma og varnir
gegn þeim.
Förgun fugla í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í Reykjavík
Halldór Runólfsson skrifar
um þá ákvörðun að lóga
fuglum í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum
»… að leggja til aðákveðnum fuglum í
Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í Reykja-
vík yrði lógað var nauð-
synleg öryggisráðstöfun
til að fyrirbyggja að
fuglaflensa gæti borist
til annarra alifugla …
Halldór Runólfsson
Höfundur er yfirdýralæknir og for-
stöðumaður dýraheilbrigðissviðs
Landbúnaðarstofnunar.
Allar RE/MAX fasteignasölur eru sjálfstætt reknar og í einkaeign RE/MAX FASTEIGNIR • Engjateig 9 • 105 Reykjavík • Sími: 578 8800 • Fax: 578 8809
FASTEIGNIR TRAUST • VIRÐING • ÞJÓNUSTA
Nánari uppl. í síma:
821 7337 eða 899 0800
Stefán Páll
Lögg. fasteignasali
821 7337
Gunnar
Sölufulltrúi
899 0800
Engin í heimi selur fleiri fasteignir en RE/MAX
Íbúðirnar eru sérlega vel staðsettar í hjarta Garðabæjar;
• Sérinngangur í allar íbúðir
• Sérverönd með öllum íbúðum á jarðhæð
• Þvottahús í öllum íbúðum
• Bílskýli með 22 af 30 íbúðum
• Stór herbergi og stórar stofur
• Svalir með efri íbúðum
• Glæsilegt útsýni úr hluta íbúða
Sunnudaginn 10.des
frá kl 14:00 til 17:00
www.bjarkaras.is
Verið velkomin á fyrstu sýningu á Bjarkarás 1-29 í Garðabæ
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík,
sími 568 2444, fax 568 2446.
Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali.
Höfum ákveðinn, ábyggilegan kaupanda að einbýl-
ishúsi, raðhúsi eða parhúsi í Garðabæ. Húsið þarf
að vera 200 til 300 fm að stærð og hafa 5-6 svefn-
herbergi. Æskileg staðsetning er á skólasvæði
Hofstaðaskóla, nánar tiltekið í neðri Lundum,
Hæðarbygg, Dalsbyggð, Holtsbúð
eða Ásbúð. Góðar greiðslur í boði
fyrir rétta eign. Æskileg afhending er
í apríl til maí á næsta ári.
Uppl. veitir Ingileifur Einarsson
lgf., gsm 894 1448.
GARÐABÆR - KAUPANDI
EINBÝLISHÚS ÓSKAST
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Mjög falleg efri sérhæð,
alls 100,4 fm í fjórbýli.
Bílskúrsplata fylgir eigninni. Fallegur garður
og gott útsýni. Verð 23,9 millj.
FROSTAFOLD - 112 RVK. INN FYRIR JÓLIN!
LAUS VIÐ KAUPSAMNING
Upplýsingar gefur Ingvar Ragnarsson
sölufulltrúi, sími 822-7300.