Morgunblaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 39
hugsað upphátt MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 39 Ég bað dætur mínar, ellefuog fimm ára, fyrirnokkru að skrifa draumasína og væntingar niðurá blað. Sú fimm ára skrifar reyndar ekki mikið enn, finnst hún ekkert hafa við bókstafi að gera. Þannig að við sættumst á að hún skyldi teikna allt það sem hugur hennar stæði til. Það stóð ekki á framleiðslunni. Það ruddust frá henni teikningar á alveg gríðarlegum hraða. Hún teiknaði höll með mörgum her- bergjum og rennibrautum úr öll- um gluggum sem lágu beint út í feiknastóra sundlaug. Í garðinum voru apar og tígrisdýr og alls kyns fuglar. Hún teiknaði sjálfa sig á stóru sviði og sagðist ætla að verða súperstjarna. Sú eldri átti í meira basli með þetta. Var fljót að segja að draumar væru asnalegir, þvældi allt fyrir sér með rökhugsun um að þetta og hitt væri hreint ekki mögulegt. Í framhaldi af þessu fór ég að velta því fyrir mér hvenær við missum hæfileikann til að trúa á það að okkur séu allir vegir færir. Og hvað það er í sjálfu sér sorg- legt. Því það er auðvitað í raun að missa trúna á sjálfan sig að ein- hverju leyti. Eðlilega er ellefu ára barn skynsamara og raunsærra en fimm ára barn, það segir sig sjálft, en mér fannst samt svolítið leiðinlegt hvað sú eldri var tilbúin að slá því föstu að lífið væri flókið, fullt af hindrunum og eins og hún orðaði það: Já, en ég á aldrei eftir að geta þetta og hitt! Ég ákvað að gera slíkt hið sama og settist niður til að skrifa hvern- ig ég vildi að framtíðin yrði, hverju ég vildi breyta í eigin lífi og hvað ég vildi sjá gerast. Það var ekki vandkvæðalaust að gera það og á mörkunum að ég gæti sett nokkuð niður á blað án þess að finnast það meira en lítið hjá- kátlegt. En hvers vegna skyldum við ekki láta okkur dreyma? Hvers vegna erum við sífellt að refsa og afneita sjálfum okkur með einum eða öðrum hætti. Við erum sjálf manna fyrst til að drepa okkar eigin hugmyndir og langanir í fæðingu. Hvers konar masókismi er það eiginlega? Það sem þarf til að hugmynd fái brautargengi er tiltrú þeirra sem hugmyndina eiga. Hvernig stend- ur á því að fólki tekst að hrinda hinu ómögulega í framkvæmd? Einhverju sem áður þótti óhugs- andi! Kunningi minn Guðni sem kenndur er við Rope Yoga, sem er speki sem ég þekki í sjálfu sér lít- ið, spurði mig um daginn, þegar við sátum og spjölluðum, hvaða tilgang ég hefði á jörðinni. Ég varð nú að viðurkenna að ég upp- lifði algjört tilgangsleysi þegar ég fékk þessa spurningu framan í mig. Guðni sagði að svo væri nú um flesta. Flestir lifi lífinu eins og þeir séu slys. Ráfi um án mark- miða og tilgangs. Frekar kostuleg sýn á mannlega tilveru en ekki al- veg galin. Kannski erum við flest slys. Treystum lítt á eigið ágæti því ekki viljum við vera kölluð sjálfselsk sem er höfuðsynd. Ég vann í leikhúsi frá því að ég var unglingur og allt til ársins 2004. Í starfi mínu ólst ég upp við það að byggja sjálfsmynd mína að töluverðu leyti á áliti annarra. Leikarastarfið gengur jú út á það. Að sæta stöðugri gagnrýni leik- stjóra meðan á vinnuferli stendur og taka síðan við ánægju eða van- þóknun áhorfenda og gagnrýn- anda. Það hefur tekið mig töluverðan tíma að sætta mig við það að það er enginn sem klappar fyrir mér á kvöldin og reyndar var ég að hugsa um að fjárfesta í klappvél á tímabili til að hressa aðeins upp á egóið. Mér fannst ég hreinlega ekkert geta gert ein míns liðs. Ég held ég ætti að taka mér fimm ára dóttur mína til fyrirmyndar og leyfa mér að dreyma og láta drauma mína rætast. Mér finnst reyndar að dag- draumar ættu að vera á kennslu- skrá allra skóla. Mannrækt þar sem börnum er kennt að viðhalda trúnni á sjálf sig og allar þær stórkostlegu og óheftu hugmyndir sem þau fá. Fyrir þá sem eru trúaðir segir í Biblíunni að Guð hafi skapað manninn í sinni mynd. Nú ef Guð skapaði heiminn þá hljótum við eftir því að dæma öll að vera skaparar heimsins. Og samkvæmt því er ekki eftir neinu að bíða heldur hefjast handa við sköp- unarverkið. Dagdraumar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.