Morgunblaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 80
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 344. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: auglysingar@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Suðlæg átt, víða
8–13 m/s, skúrir
eða slydduél en
þurrt og bjart að mestu
norðan- og austanlands. » 8
Heitast Kaldast
5°C 0°C
ÆVINTÝRAMAÐURINN og skop-
teiknarinn Robert Ripley leitaði um
heim allan að furðulegum stað-
reyndum, en lifibrauð þessa óvenju-
lega manns var með hans eigin orð-
um „að sannleikurinn er ótrúlegri
en skáldskapur“.
Ripley var frægur í Bandaríkj-
unum á fyrri hluta 20. aldarinnar
fyrir teikningar sínar og skrif um
óvenjuleg afreksverk og skrýtnar
staðreyndir. Þegar frægðarsól
hans reis sem hæst birtust frásagn-
ir hans á sautján tungumálum og
náðu þær til 80 milljóna lesenda.
Hann leitaði víða fanga og hafði ár-
ið 1940 komið til 201 lands. Þar á
meðal Íslands, en hingað kom hann
árið 1928 og fann hér ýmislegt sem
gat vakið furðu. | 34
Íslensk furða Á Íslandi hitti Ripley
Hallbjörgu Bjarnadóttur.
Ótrúleg
heimsókn
FJÖLMÖRG frumvörp voru af-
greidd sem lög frá Alþingi í gær,
laugardag, en það var síðasti þing-
fundur fyrir jól. Meðal þeirra var
frumvarp um breytingar á lögum
um almannatryggingar, sem felur
m.a. í sér þær breytingar að 300
þúsunda króna frítekjumark vegna
atvinnutekna elli- og örorkulífeyr-
isþega tekur gildi um áramót.
Þá var m.a. samþykkt frumvarp
um að gjald í Framkvæmdasjóð
aldraðra hækkaði um 3,94% og til
stóð sömuleiðis að afgreiða mat-
arskattsfrumvarpið svonefnda.
Fjölmörg frum-
vörp afgreidd
AFLEIÐINGA loftslagsbreytinga
er þegar farið að gæta til hins verra
á heitum og þurrum svæðum jarð-
arinnar en byrjunin annars staðar,
t.d. á norðurslóðum, kann að vera til
hins betra, þótt hvítabjörninn eigi
þegar bágt vegna hlýnunarinnar.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir segir í
fréttaskýringu um loftslagsbreyt-
ingar í Morgunblaðinu í dag að áhrif
þeirra séu óviss, en hugsanlega svo
alvarleg að við getum ekki leyft okk-
ur að taka neina áhættu.
„Ef heldur fram sem horfir og við
losum svo mikið af þessum loftteg-
undum í andrúmsloftið, að breyting-
arnar verði margfalt meiri en venju-
legar sveiflur milli ísalda og
hlýskeiða, þá er ljóst að afleiðingarn-
ar verða miklar,“ segir Tómas Jó-
hannesson jarðeðlisfræðingur.
Þór Jakobsson veðurfræðingur
bendir á að eitt sinn hafi eyðing
ósonlagsins hrellt mannkyn, en nú
standi ósonlagið í stað, sem sýni „að
við getum lappað upp á það sem við
höfum skemmt. En við þurfum að
grípa til aðgerða. “
Áhrifin eru óviss en við
getum ekki tekið áhættu
Í HNOTSKURN
»Breytingar á gróðurhúsa-lofttegundum þegar
jafn miklar og náttúrulegar
sveiflur milli ísalda og
hlýskeiða.
»Ef breytingarnar verðamargfalt meiri er ljóst að
afleiðingarnar verða miklar.
Afleiðingar af loftslagsbreytingum af mannavöldum
Gnípa | 10–17
Eftir Freystein Jóhannsson
og Ragnhildi Sverrisdóttur
HJÁ vinnandi stéttum er það kærkomið og sjálf-
sagt að taka sér kaffihlé reglulega, ýmist til að
næra sig og hvíla eða spjalla við vinnufélagana,
nema hvort tveggja sé. Vagnstjórar hjá Strætó
eiga sér kaffistað í Öskjuhlíðinni þar sem gámur
hefur verið innréttaður sem kaffikrókur. Og fyr-
ir utan bíður vagninn eins og þægur klár. Ljóst
er þó að gámurinn hefur ekki fengið að vera í
friði fyrir þeim er krassa á eigur annarra.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hugað að vagninum í kaffihléinu í Öskjuhlíð
„ÞETTA er mikill heiður og stór-
kostlegt tækifæri sem aðeins býðst
einu sinni á lífsleiðinni,“ segir Hlín
Diego Hjálmarsdóttir, sem valin var
úr hópi bestu dansara í Svíþjóð til
þess að dansa við Nóbelsverðlauna-
afhendinguna sem fram fer í dag.
Hlín mun dansa nýtt verk ásamt
karlkyns dansfélaga sínum úr Cull-
berg-ballettinum, sem samið var
sérstaklega í tilefni dagsins af Johan
Inger, listrænum stjórnanda hóps-
ins. Hlín hefur dansað með Cull-
berg-ballettinum sl. þrjú ár og
bauðst nýverið fastráðning hjá dans-
hópnum.
Aðspurð segist Hlín hlakka mikið
til að troða upp við verðlaunaafhend-
inguna, en viðurkenndi að auðvitað
væri hún pínulítið stressuð, enda er
áætlað að 1,2 milljónir Svía fylgist
með afhendingunni í beinni útsend-
ingu í sænska sjónvarpinu. „Ég hef
nú aldrei dansað fyrir jafnmarga í
einu,“ segir Hlín kímin. „Verkið er
aðeins rúmar þrjár mínútur í flutn-
ingi, þannig að ég ætla fyrst og
fremst að njóta augnabliksins og
reyna að leiða ekki hugann að því
hversu margir munu fylgjast með,“
segir Hlín að lokum.
Einstakt tækifæri
Hlín Diego Hjálmarsdóttir
LÆKKUN virðisaukaskatts og vöru-
gjalda á gosdrykkjum og öðrum
drykkjarvörum með viðbættum sykri
samræmist ekki manneldissjónar-
miðum sem ættu að vera lögð til
grundvallar í breytingum af þessu
tagi, segir meðal annars í umsögn
Lýðheilsustöðvar vegna frumvarps
um lækkun virðisaukaskatts og vöru-
gjalda af matvælum.
Í umsögninni er vakin athygli á því
að gosdrykkir og sykraðir svala-
drykkir eru ekki undanskildir lækk-
un vörugjalds líkt og önnur sætindi.
Af þeim sökum muni þessar vörur
lækka hlutfallslega einna mest vegna
fyrirhugaðra breytinga. Það muni
hafa neysluhvetjandi áhrif á þessar
vörur, en neysla gosdrykkja sé gíf-
urleg hér á landi og drekki unglings-
strákar mest af þeim. Fram kemur
ennfremur að unglingsstrákar
drekka að meðaltali einn lítra á dag af
gosdrykkjum og sykruðum svala-
drykkjum og að 55% af daglegri syk-
urneyslu þeirra kemur þaðan. Þótt
unglingsstúlkur drekki minna sé
neysla gosdrykkja of mikil hjá flestu
ungu fólki. Þá hafi þessi neysla einnig
áhrif á tannheilsu barna og unglinga.
„Rannsóknir, sem gerðar hafa ver-
ið á áhrifum verðbreytinga á fæðu,
hafa sýnt að verðlækkanir virka
neysluhvetjandi,“ segir í umsögninni.
Bent er á að rannsóknir sýni að
tengsl séu á milli sölu á gosdrykkjum
og verðs þeirra. Hafi verðlækkun
þeirra mest áhrif á neyslu þeirra
þjóðfélagshópa sem almennt sé erfitt
að ná til með heilsuhvetjandi skila-
boðum. Nefna megi að unglingar séu
mjög næmir fyrir verðbreytingum.
„Hér er því um að ræða aðgerð
sem mun hafa neysluhvetjandi áhrif
á unglingana okkar og þá sem nú
þegar neyta mikils magns gos-
drykkja.“
Ekki mann-
eldissjónarmið
! " #
$%
$
&
$
&
'
(
!
♦♦♦