Morgunblaðið - 08.02.2008, Síða 4

Morgunblaðið - 08.02.2008, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás Borgarnes - Stykkishólmur - Grundarfjörður - Búðardalur - Ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður Fáskrúðsfjörður - Höfn - Neskaupstaður - Reyðarfjörður - Eskifjörður www.lyfja.is - Lifið heil ÞAÐ Á AÐ BURSTA TENNURNAR TVISVAR Á DAG! ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 3 59 11 0 1/ 07 FLUGFARÞEGAR Iceland Express á Keflavík- urflugvelli biðu frá morgni til kvölds eftir áætl- unarflugi í gær og varð niðurstaðan sú að tvær ferðir til Kaupmannahafnar voru sameinaðar í eina og átti vélin að komast í loftið á miðnætti. Að sögn Matthíasar Imsland, forstjóra Iceland Ex- press, má rekja tafirnar til öryggiskrafna sem þarf að uppfylla. Ekki sé hægt að hefja flugtak sé ákveðin ísing á flugbrautinni og vindur mikill. Staðan sé athuguð á hálftíma til klukkutíma fresti og aðstæður í gær hafi verið þannig að ákveðið hafi verið að fresta flugferðum um óákveðinn tíma. Afar leiðinlegt sé þegar svona at- vik komi upp en það geti reynst hættulegt sé örygg- iskröfum ekki framfylgt. Ljósmynd/Víkurfréttir Beðið allan daginn eftir flugi Veðurteppt Flugvél Iceland Express veðurteppt á flughlaðinu við Leifsstöð í gærkvöldi. HREYFING er komin á samningaviðræður Sam- iðnar og Samtaka atvinnulífsins að sögn Finn- björns A. Hermannssonar, formanns Samiðnar. Í gær var haldinn samningafundur og er stefnt að öðrum fundi á mánudaginn kemur. Skv. upplýsingum Morgunblaðsins verður reynt á næstu dögum að finna sameiginlegar lausnir sem öll aðildarsambönd ASÍ geta sætt sig við. Forystu- menn innan ASÍ segja að flest bendi til þess að samflot sé komið á að nýju milli landssambanda og félaga í ASÍ í kjaraviðræðunum en eins og kunnugt er slitnaði upp úr því eftir að ríkisstjórnin hafnaði tillögum verkalýðshreyfingarinnar um breytingar í skattamálum í síðasta mánuði. Talið er að ráðast muni í dag hvort boðað verður til samningafunda yfir helgina en fastlega er reiknað með að viðræð- urnar fari á fulla ferð þegar líður á næstu viku. Finnbjörn sagði að enn væri verið að ræða grundvallaratriði og Samiðn vilji sjá betur heild- arþróun kjaraviðræðna áður en hún ákveður hvort hún sé fylgjandi svonefndum „baksýnisspegli“ eða ekki. Með „baksýnisspegli“ er átt við fyrirkomulag sem tryggir þeim sem setið hafa eftir í launaskrið- inu hlutfallslega meiri launahækkun en öðrum. Friðbjörn sagði að í ljósi þessa myndmáls væru þeir hjá Samiðn enn að horfa út um framrúðuna. „Við viljum sjá heildarmyndina því við höfum sagt að það sé lítið í baksýnisspeglinum fyrir okkar fé- laga.“ Finnbjörn sagði meginmarkmið þeirra í Samiðn vera að ná fram launahækkun. „Þá er bara spurn- ingin hvernig það verður gert. Við viljum sjá al- menna hækkun, en menn eru að tala um „baksýnis- spegil“ og við erum tilbúnir að skoða hvort eitthvað meira er í honum fyrir okkur. Einnig að það verði þá tryggt að þeir félagar okkar sem setið hafa eftir í launaskriðinu njóti hans,“ sagði Finnbjörn. Einnig hefur Samiðn rætt starfsmenntamál og orlofsmál við SA. „Við erum að tala um að fá eitthvert orlof til að geta sinnt endurmenntun og eins að fá aðeins meira fé til endurmenntunar félagsmanna okkar.“ Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er tilboð SA til verkalýðshreyfingarinnar í launamálum met- ið sem 3,7% hækkun að meðaltali. Áhersla er lögð á að stýra því sem til skiptanna er til þeirra sem eru á lægstu laununum og hafa setið eftir í launaskriði. Í tillögum SA felst að lágmarkslaun fyrir fulla dag- vinnu hækki í 145 þús. á mánuði, lægstu kauptaxtar verði færðir að greiddum launum, með 15 þús. kr. greiðslu ofan á taxta nú, 7.500 kr. 1. maí 2009 og 7.500 kr. hækkun 1. mars 2010. Tillaga um launa- tryggingu til að bæta laun þeirra sem setið hafa eft- ir í launaskriði felst í að þeir sem enga hækkun hafa fengið frá áramótunum 2006/07 fái 4% hækkun. Þeir sem hafa fengið minna en 4% sem þeim mis- muni nemur en aðrir sem hafa fengið hækkanir um- fram 4% fengju ekki hækkun. Ef samið verður til næstu þriggja ára er gert ráð fyrir að frekari hækk- anir komi til á tímabilinu vegna mögulegs launa- skriðs. SA hefur boðið 2,5% lágmarkshækkun fram í tímann og lýst yfir að sú tala gæti hækkað ef um meira launaskrið verður að ræða á samningstím- anum. ASÍ-samflot hafið á ný  Tilboð SA er metið til 3,7% hækkunar að meðaltali  Formaður Samiðnar segir menn vilja almenna hækkun en séu tilbúnir að skoða hvað er í baksýnisspeglinum SJÓNARMIÐ menntamálaráðherra um að hækka eigi laun kennara eru ekki sjónarmið ríkisstjórnarinnar, að því er fram kom í máli Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra á Al- þingi í gær. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna, vildi viðbrögð hans við orðum sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra lét falla á fundi með sjálfstæðismönnum sl. laugardag um að hækka þurfi laun kennara enda hafi þeir dregist aftur úr. Fjármálaráðherra fer með samn- inga við framhaldsskólakennara fyr- ir hönd ríkisins en þeir losna á þessu ári. „Er þá ekki alveg ljóst að þarna sé talað fyrir hönd ríkisstjórn- arinnar í heild sinni?“ spurði Stein- grímur og áréttaði að hann væri sammála Þorgerði. Ekki jafnt yfir alla að ganga Árni sagði hins vegar að það væri hlutverk fjármálaráðherra, en ekki menntamálaráðherra, að sinna samningaviðræðum fyrir hönd rík- isins. Stefna ríkisstjórnarinnar væri að láta almenna markaðinn vera leiðandi í launaþróun. „Það þýðir hins vegar ekki að láta eigi jafnt yfir alla ganga. Það geta verið mismun- andi áherslur og hlutur mismunandi hópa réttur í þetta skiptið eða annað skiptið,“ sagði Árni og bætti við að það gæti verið að grunnskólakenn- arar hefðu dregist aftur úr fremur en framhaldsskólakennarar. Innt eftir þessum ummælum Árna sagðist Þorgerður vilja ítreka að það sem hún væri að segja væri ekkert nýtt, þetta kæmi m.a. fram í stjórn- arsáttmálanum, „að það eigi að taka sérstaklega á umönnunar- og kvennastéttum“. Þorgerður sagði jafnframt ekki óeðlilegt að Árni tæki svona til orða, fjármálaráðherra færi formlega með samningsumboð varðandi launasamninga. Hins vegar væri ekki „skoðanalaus“, hún hlyti að ganga útfrá hagsmunum skólanna. Ráðherra tal- ar ekki fyrir ríkisstjórnina Viðhlæjendur Steingrímur og Árni áttust við um launamál kennara. SLITNAÐ hefur upp úr viðræðum Samtaka atvinnulífsins við AFL starfsgreinafélag og Drífanda stétt- arfélag um kjarasamning starfs- manna í fiskimjölsverksmiðjum á Austfjörðum. Deilunni hafði verið vísað til sáttasemjara. Viðræðurnar hafa staðið yfir frá því í byrjun des- ember og skv. upplýsingum AFLs starfsgreinafélags var samkomulag í augsýn um flest atriði. SA hafi hins vegar krafist þess að kjarasamn- ingur bræðslumanna yrði alfarið færður undir gerð aðalkjarasamn- ings en því höfnuðu stéttarfélögin. Slitnaði upp úr viðræðum HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karl- mann á sextugsaldri í 6 ára fangelsi fyrir að skjóta úr haglabyssu að eig- inkonu sinni á heimili þeirra í Hnífs- dal í júní á síðasta ári. Þyngdi rétt- urinn dóm Héraðsdóms Vestfjarða sem hafði dæmt manninn í 4½ árs fangelsi. Konunni var dæmd ein milljón króna í skaðabætur. Fram kemur í dómi Hæstaréttar að konan hafi ekki hlotið alvarlega áverka, en ljóst sé að maðurinn beitti skotvopninu á þann hátt að hann framdi lífshættulegan verknað og að hending ein réð því að ekki hlaust bani af. Hafnaði rétturinn einnig þeirri málsvörn að um voðaskot hefði verið að ræða. Hæstiréttur og héraðsdómur litu mismunandi augum á ásetning mannsins til að fremja verknaðinn. Að mati Hæstaréttar var við ákvörð- un refsingar litið til þess hversu ein- beittur ásetningur ákærða var, en héraðsdómur tók ekki svo djúpt í ár- inni. Hæstiréttur segir í dómi sínum að refsing fyrir brotið sé lágmark fimm ára fangelsi og við ákvörðun hennar var litið til hins einbeitta ásetnings. Hefði ákærði farið með hlaðna haglabyssu á eftir konu sinni að úti- dyrum þar sem hún leitaði útgöngu. Þar lauk eftirförinni með skoti úr byssunni þegar útidyrnar höfðu ver- ið opnaðar. Á einhverju stigi frá því að ákærði ákvað að sækja byssuna, hvort sem hún þá var hlaðin eða hann hlóð hana, og þar til hann hleypti af henni svo nálægt konu sinni að höglin strukust við hægri öxl hennar, varð ásetningurinn til, segir Hæstiréttur. Án tillits til þess hvort ásetningurinn hefði fyrst myndast þegar dyrnar voru opnaðar var litið til þess að með því að beita skotvopn- inu framdi ákærði lífshættulegan verknað. Í niðurstöðu héraðsdóms um ásetning kom hins vegar fram að ásetningur mannsins hefði ekki verið styrkur og einbeittur. Ekkert yrði fullyrt um hvað honum gekk til með verknaði sínum en svo virtist sem hann hefði gripið til byssunnar í ör- væntingu yfir því að kona hans hefði ætlað að yfirgefa heimilið. Mál Hæstaréttar dæmdu hæsta- réttardómararnir Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claes- sen, Markús Sigurbjörnsson og Páll Hreinsson. Verjandi ákærða var Sveinn Andri Sveinsson hrl. og sækjandi Ragn- heiður Harðardóttir vararíkissak- sóknari. Sex ára fangelsi fyrir að skjóta að konu sinni Hæstiréttur þyngir fangelsisdóm vegna skotárásar í Hnífsdal LEIT stendur yfir á norðurhluta Jót- lands að 18 ára gömlum íslenskum pilti, Ívari Jörgenssyni, sem ekkert hefur spurst til síðan á sunnudags- kvöld. Fjallað var um málið á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2 í gær. Ívar, sem hefur búið í Danmörku í 11 ár, hafði verið að skemmta sér með vinum sínum um helgina. Jörgen Erlingson, faðir Ívars, seg- ir, að lögreglan hafi fyrst í gær hafið eiginlega leit. Bíll Ívars fannst en hann var eldsneytislaus og lyklarnir enn í kveikjulásnum. Faðir Ívars tel- ur líklegast að hann hafi villst og ætlað að ganga til næsta bæjar. Leitað að ís- lenskum pilti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.