Morgunblaðið - 08.02.2008, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
„GRÆÐGISVÆÐINGIN fékk
kjaftshögg og það kom hökt í þessa
taumlausu ágengni græðginnar í
íslensku samfélagi. Það varð hik
þarna og hafa orðið miklar vend-
ingar síðan. Það á sér margar skýr-
ingar en ég held að ein sú stærsta
sé nákvæmlega þetta [REI] mál.“
Þetta kom fram í máli Svandísar
Svavarsdóttur borgarfulltrúa og
formanns stýrihóps borgarráðs um
málefni REI og Orkuveitu Reykja-
víkur á félagsfundi vinstri grænna
en þar kynnti Svandís skýrsluna.
Með orðum sínum um græðgi-
svæðinguna var hún að taka undir
orð eins fundargesta, Steingríms J.
Sigfússonar.
Góður rómur var gerður að máli
hennar og vildu fundargestir, þ. á
m. Steingrímur J. og Kolbrún
Halldórsdóttir þingmaður, vita
hver yrðu eftirmál skýrslunnar.
Steingrímur fór hörðum orðum um
embættisfærslur þeirra sem komu
við sögu í REI-málinu og sagði
skýrsluna skapa gerbreytta víg-
stöðu til að verja almannaþjón-
ustufyrirtæki. „En þá er spurning
hvað á að gera með það sem þarna
gerðist? Ætla menn að fyrirgefa og
leita sátta – eða eru þarna á ferð-
inni atburðir sem ekki dugar eftir
sem áður annað en fá botn í,“ sagði
hann. „Það hlýtur að vera nálægt
því að í sumum tilvikum séu menn
beinlínis sekir um brot í opinberu
starfi. Það að ætla að fara að ráð-
stafa miklum hagsmunum umboðs-
laus, er ekki eitthvað leiðinlegt
sem mönnum þykir miður, heldur
hlýtur það að vera mjög alvarlegt
brot af vanhæfisástæðum.“
Svandís svaraði þessu, þ.e. hvort
þarna væri eitthvað á ferðinni sem
þyrfti „hreinlega á lögreglurann-
sókn að halda eða eitthvað sem
kallaði á kæru“, og sagði: „Við
skoðuðum það – og spurðum Andra
Árnason [sem vann lögfræðiálit
fyrir stýrihópinn] sérstaklega
hvort stjórnsýslulög hefðu verið
brotin í umræddu ferli, hvort um
refsivert athæfi kynni að hafa verið
að ræða og hvort hugsanlega væri
um að ræða brot á samningalögum.
Andri Árnason heldur því fram að
þarna séu ekki nægilega skýr
merki um ásetning, að menn hafi
getað haldið því fram að þetta væri
hluti af einhvers konar menningu.“
Svandís lýsti skýrslunni sem
málamiðlun, þótt hún teldi hins
vegar ekki að hún hefði þurft að
„kyngja stórum bitum“ í tengslum
við orðalag skýrslunnar. Hún sagð-
ist þó hefðu viljað sjá skýrum stöf-
um í skýrslunni – nokkuð sem ekki
er í henni – að skýrslan hafnaði öll-
um hugmyndum um hlutafélaga-
væðingu OR. „Ég hefði viljað sjá
það skýrum stöfum en áskil mér
hins vegar rétt til að draga þá
ályktun af þeim texta sem er
þarna,“ sagði hún.
Réttarvitund fólks vakin
Í framsögu sinni sagði Svandís
að REI-málið hefði verið afar flók-
ið og ekki fyrir nokkurn mann að
halda í við. „En það sem gerðist
var að réttarvitund almennings var
mjög hressilega vakin, fyrst og
fremst í gegnum svokallaða kaup-
réttarsamninga. Þessi samningar
endurspegluðu með svo skýrum
hætti hvað gerist þegar menn fara
með opinbert fé eins og sitt eigið og
gera jafnvel samninga í þágu op-
inbers aðila til þess að hagnast á
því persónulega.“
Svandís ræddi um þá lærdóma
sem draga mætti af skýrslunni og
fjallaði m.a. um valdmörk embætt-
ismanna. „Þarna eru mjög margir
aðilar sem fara með umdeilanlegt
umboð,“ sagði hún og nefndi um-
boð borgarstjóra og stjórn REI og
stjórnenda OR. Gera yrði kröfu um
skýrt umboð í framtíðinni.
Upplýsingagjöf var fyrir borð
borin í REI-málinu að mati Svan-
dísar og rifjaði hún upp að á kynn-
ingarfundi 3. október 2007 hjá OR
hefði minnihluti borgarstjórnar
þurft að kalla eftir upplýsingum
sem seinna urðu kaupréttarsamn-
ingar. „Það stóð greinilega til að
leyna okkur og almenning þessum
upplýsingum og meira að segja
meirihluta í borgarstjórn.“
Svandís sagði stýrihópinn hafa
fjallað töluvert um embætti borg-
arstjóra og hvernig embættið hefði
þróast í samanburði við önnur
sveitarfélög. „Borgarstjóri verður
nánast eins og einvaldur í Reykja-
vík, frekar en að vera fram-
kvæmdastjóri sem kemur í kring
ákvörðunum fjölskipaðs stjórn-
valds. Þessi hefð, sem komist hefur
á með einhverjum hætti á löngum
tíma, er þarna líka að verki að
hluta til.“
Svandís sagði að stýrihópurinn
teldi að OR ætti áfram að vera í
100% eigu sveitarfélaganna og
áhersla væri á það meginhlutverk
OR að sinna almannaþjónustu.
„Það kom hökt í þessa taum-
lausu ágengni græðginnar“
Árvakur/Ómar
Vitund „Það sem gerðist var að réttarvitund almennings var mjög
hressilega vakin,“ sagði Svandís Svavarsdóttir
KJARTAN Magnússon,
stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavíkur,
segir að skýrsla stýri-
hóps á vegum borg-
arstjórnar um málefni
Reykjavík Energy In-
vest og Orkuveitu
Reykjavíkur verði tekin
til umfjöllunar í stjórn
fyrirtækisins og að
þeim ábendingum sem
þar koma fram verði væntanlega fylgt.
Stjórn Orkuveitunnar kemur saman í
næstu viku og segist Kjartan reikna með
að skýrslan verði tekin fyrir strax þá, og
að stjórnarmenn muni þá hafa náð að
kynna sér skýrsluna. „Og ef niðurstaðan
er sú að það þurfi að bæta vinnulag þá
gerum við það.“
Kjartan bendir á, varðandi eitt atriði í
skýrslunni, þ.e. birtingu fundargerða
stjórnarinnar, að það hafi verið eitt fyrsta
verk nýrrar stjórnar að samþykkja að
slíkt yrði gert framvegis.
Í skýrslunni segir að trúnaðarbrestur
hafi orðið milli tiltekinna starfsmanna
Reykjavik Energy Invest og Orkuveitu
Reykjavíkur annars vegar og tiltekinna
borgarfulltrúa. Kjartan segir um þetta, að
líkt og komi fram í skýrslunni sé mik-
ilvægt að byggja þann trúnað upp aftur.
Hann segist hins vegar telja að ýmsir
aðilar hafi þegar verði látnir sæta ábyrgð í
málinu en útilokar ekki að það verði gert í
frekari mæli.
Ábending-
um vænt-
anlega fylgt
Kjartan
Magnússon
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi og stjórnarmaður í
Orkuveitu Reykjavíkur þegar
REI-málið kom upp, sagði eftir
borgarráðsfund í gær að ekkert
nýtt kæmi fram í lokaskýrslu
stýrihópsins varðandi aðild sína að
málinu.
„Miklu fremur segir í skýrslunni
að ég hafi haft stöðuumboð til að
gera það sem ég gerði á eigenda-
fundinum,“ sagði Vilhjálmur og
vísaði þar til álits borgarlögmanns
sem sent var umboðsmanni Al-
þingis. Hann benti á að þetta hefði
verið hefðbundið verklag hjá borg-
inni um árabil líkt og komi fram í
lögfræðiálitum Láru V. Júlíusdótt-
ur og borgarlögmanns.
„Það sem gerðist í þessu máli
var að það var of mikill hraði og
undirbúningurinn og kynningin
ekki nægjanlega mikil. Ég hef tek-
ið það á mig og við höfum rætt það
í okkar flokki. Við höfum náð fullri
samstöðu um niðurstöðu þessarar
skýrslu í okkar hópi og munum að
fullu standa við þær tillögur og
hugmyndir sem þar koma fram.“
Vilhjálmur sagði einnig að allir
borgarfulltrúar, jafnt úr meiri- og
minnihluta, séu staðráðnir í því að
hafa meira samstarf um öll stærri
mál sem komi upp og varði hags-
muni borgarbúa. Þetta mál hafi því
skapað jákvæð sóknarfæri í borg-
armálum.
Vissir þú að lögmaður FL-Gro-
up hefði átt beina aðild að gerð
þjónustusamnings við Orkuveit-
una?
„Nei, það vissi ég ekki.“
Ætti einhver starfsmaður hjá
Orkuveitunni, eða einhver sem
ráðinn var af ykkur, að taka pok-
ann sinn?
„Það kemur fram í skýrslunni að
þarna hafi komið fram trúnaðar-
brestur og brýnt sé að endurvinna
það traust. Við munum fara yfir
það hvernig við leysum þau mál
líkt og öll önnur mál sem við tök-
um fyrir í kjölfar þessarar skýrslu.
Stundum er talað um að stjórn-
sýsla borgarinnar sé ekki nægi-
lega góð. Ég vil láta það koma
fram, að stjórnsýsla Reykjavíkur
er í mjög góðu standi og við höfum
á að skipa frábærum embættis-
mönnum. Þarna hins vegar átti sér
stað ákveðið ferli sem ég er mjög
dapur yfir að hafi gerst.“
Ætlar enginn að axla ábyrgð?
„Við þurftum nú heldur betur að
axla ábyrgð með því að sá meiri-
hluti sem við vorum í gliðnaði með-
al annars út af þessu máli.“
Kom fram tillaga um það á fundi
borgarfulltrúa sjálfstæðismanna
að þú myndir víkja?
„Nei, ekki til í dæminu. Það er
mikið traust á milli okkar og þið
verðið að reyna trúa því. Við erum
búin að fara yfir málin og skoða
það hvað gerðist, og við erum búin
að ná sáttum.“
En virtir þú ekki valdmörk?
„Það er ekki talað um það í
skýrslunni að ég sem borgarstjóri
hafi farið út fyrir valdmörk og
brotið lög eða reglur. Það er talað
um ýmsa aðra, s.s. að umboð
stjórnar REI – ég sat ekki í stjórn
REI – væri á reiki. Ég tel til dæm-
is gagnvart borgarstjóra, sem hef-
ur haft mjög víðtækt umboð í
stjórnkerfinu, að það eigi að end-
urskoða það. Þegar um stærri mál
er að ræða, sem varða okkar fyr-
irtæki, eigi að taka þau mál inn á
borð borgarráðs og borgarstjórnar
eins og stýrihópurinn leggur til.
Ég mun leggja mig fram um það
að halda áfram að starfa fyrir
Reykvíkinga.“ Vilhjálmur benti á
að búið væri að ákveða að skil-
greina það nákvæmlega hvenær
borgarstjóri hefði stöðuumboð og
hvenær ekki varðandi málefni OR
og annarra borgarfyrirtækja.
Veikti þetta mál stöðu þína?
„Já, auðvitað hefur þetta veikt
stöðu mína. Þetta er búinn að vera
erfiður tími hjá mér. Því er ekki að
leyna. En ég á góða fjölskyldu og
hef sterk bein,“ sagði Vilhjálmur.
Umboð borgarstjóra
verður tekið til skoðunar
Árvakur/Brynjar Gauti
Eldlína Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur verið mjög gagnrýndur í tengslum við REI-málið, m.a. á fundi borg-
arstjórnar 10. október sl. þegar mynd var tekin. Daginn eftir féll borgarstjórnin.
STÝRIHÓPUR borg-
arráðs telur að í samn-
ingaferlinu um samein-
ingu REI og GGE hafi
verið teknar af-
drifaríkar ákvarðanir
án nauðsynlegrar um-
ræðu eða samþykkis
lýðræðislega kjörinna
fulltrúa.
Guðmundur Þórodds-
son, forstjóri REI og í
leyfi frá starfi sínu sem forstjóri OR, benti
á að eigendur REI hefðu verið að semja
um að sameina fyrirtækið öðru. Í stjórn
REI hefði verið stjórnarformaður OR og
varaformaður stjórnar OR og þeir verið í
stöðugu sambandi við þáverandi borg-
arstjóra.
„Það voru þeir sjálfir sem voru að semja
um aðkomu REI að málunum sem stjórn-
armenn og eigendur í REI en hvorki
starfsmenn REI né OR,“ sagði Guð-
mundur. „Það er ekkert hægt að vera bet-
ur upplýstur en það.“ Hann benti á að
þessir menn hefðu haft meirihluta borg-
arstjórnar á bak við sig. Þar eð REI var
hlutafélag í opinberri eigu hefðu málefni
þess verið kynnt bæði fulltrúum meiri- og
minnihluta í borgarstjórn.
Guðmundur sagði það sama hafa gilt um
þjónustusamninginn milli OR og REI og
sameininguna við GGE. Varla hefði verið
hægt að hafa meira samráð við kjörna full-
trúa en gert var því að Haukur Leósson
formaður stjórnar OR, Björn Ingi Hrafns-
son varaformaður stjórnar OR og Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson fulltrúi eigenda í
stjórn OR hefðu verið þarna fyrir hönd
borgarstjórnarflokkanna og tekið þátt í
samningaferlinu. Þeir hefðu verið fulltrú-
ar kjörinna fulltrúa og verið gerendur í
málinu og vitað af því sem fram fór.
Stýrihópurinn bendir á að engar rekstr-
aráætlanir hefðu verið kynnar á stjórnar-
og eigendafundinum um hið sameinaða fé-
lag REI og GGE, né heldur skýrslur eða
gögn um mat á eignum þeirra félaga sem
voru að sameinast. Guðmundur benti á að
samningur um hlutfallsskiptingu milli að-
ila hefði verið lagður fram. Hefðu menn
viljað fá meiri upplýsingar hefðu þeir átt
að krefjast þeirra og bíða eftir þeim. Eng-
ar slíkar kröfur hefðu komið fram á einum
sex lögformlegum fundum um málið.
Fulltrúar
meirihlutans
gerendur
Guðmundur
Þóroddsson