Morgunblaðið - 08.02.2008, Síða 10

Morgunblaðið - 08.02.2008, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Haarde minn, af hverju ertu alltaf orðinn með svona mikinn höfuðverk, og við sem erum bara nýgift. VEÐUR Það kann ekki góðri lukku aðstýra þegar „kerfið“ tekur völd- in og velferðarkerfi okkar Íslend- inga, sem við alla jafnan erum stolt af, breytist í óvin þeirra sem velferð- arinnar eiga að njóta.     Móðir tveggjaheyrn- arlausra drengja, Andrea Guðna- dóttir, skrifar Guðlaugi Þór Þórðarsyni heil- brigðisráðherra opið „þakk- arbréf“ í Bréfi til blaðsins hér í Morgunblaðinu í gær, þar sem vægast sagt sláandi upplýsingar koma fram.     Í bréfi móðurinnar kemur fram aðdrengirnir hennar fá talþjálfun einu sinni í viku. Hver tími kostar 6.720 krónur. Mánaðarlegur kostn- aður fjölskyldunnar vegna talþjálf- unarinnar er 53.760 krónur en Tryggingastofnun ríkisins styrkir fjölskylduna um 16.000 krónur á mánuði eða um 2.000 krónur fyrir hvern tíma. Eftir stendur kostnaður upp á 37.760 krónur, sem fjöl- skyldan þarf að reiða fram, hvern mánuð, sem er um það bil tvölföld sú upphæð sem fjölskyldan reiddi áður fram árlega.     Allt er þetta vegna þess að tal-meinafræðingar sögðu sig frá samningi við TR og því var TR óheimilt að taka þátt í kostnaði við talþjálfun, þar til reglugerð heil- brigðisráðuneytisins heimilaði ofan- greindan 2.000 króna styrk á hvern tíma.     Reiði móðurinnar er skiljanleg ogréttmæt. Svona gera menn ekki!     Það sér hver maður að hér erskjótra úrbóta þörf. Hér er brýnt verkefni fyrir heilbrigð- isráðherra – allt sem þarf er eitt pennastrik. STAKSTEINAR Guðlaugur Þór Þórðarson Þegar kerfið tekur völdin SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                   *(!  + ,- .  & / 0    + -                           !  12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (        # #  $# $   # #  $# $    # #  $# $          :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? $    $ %$ $" "$  $" $ $" %$  $" %$"  %$ %$ $ $ $ $$                       *$BC ###            ! "# $  %   & &       #   ' %(   ) * )  +     ,    *! $$ B *! & ' ( #  #' #     ) <2 <! <2 <! <2 &( *#+ , -#.* /  8- D                 6 2    $   $ *-    . & ! B  "  & &        .   $ - )   & ! /       /    $ 0           !/   . & !/.  #    ! 01** # # 22  * #  #3   #+ , Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Sævar Örn Eiríksson | 7. febrúar 2008 Og ég hjóla í skólann Fór í morgun á hjólinu í skólann í 20m/s og -5°C og 20 sm sam- felldum snjó á reiðhjól- inu í skólann. Gafst upp á endanum sökum til- litslausra ökumanna sem voru greinilega að flýta sér mjög mikið og þurftu endilega að taka fram úr mér, þó ég hjóli á alveg þokka- legum hraða... Þannig ég gafst upp og setti hjólið á bakið bara og hélt á því á gangstéttinni við mikinn fögnuð og hlátur fyrrum skólabræðra... Meira: saevarorn.blog.is Anna Karlsdóttir | 7. febrúar 2008 Aðgát í nærveru sálar Ég hugsa að maður leiði of sjaldan hugann að því að maður skyldi hafa aðgát í nærveru sálar. Ég er oft sjálf auð- særð, þó ég láti ekki á því bera. En ég held líka að maður eigi að vera einlægur og trúr sjálfum sér og sannfæringu sinni. Hún er vandfarin sú lína að feta að vera bæði hreinskilinn og nærgætinn. ...Það sem er best í heimi er gott faðmlag, hrós stöku sinnum og gott hláturskast. Meira: volcanogirl.blog.is Elfar Logi Hannesson | 7. febrúar 2008 Hetjur – Geggjuð leiksýning Kómedíuleikarinn var veðurtepptur í borginni um daginn og skellti sér í leikhús, aldrei þessu vant... Fyrir valinu var ð leikurinn Hetjur eftir Gerald Sibleyras í Borg- arleikhúsinu. Hér er á ferðinni frábært leikhúsverk þar sem textinn og efni leiksins er í aðalhlutverki, í stað tæknibrellna og undarlegra mús- íkatriða einsog oft er og vill verða í okkar leikhúsi í dag. ... Meira: komediuleikhusid.blog.is Björn Bjarnason | 5. febrúar 2008 Þriðjudagur, 05.02.08. Í dag 5. febrúar er rétt ár liðið frá því, að læknar greindu mig með sam- fallið hægra lunga og ég var lagður inn á deild 12 E á Landspítalanum. Sjúkrasöguna má lesa hér á síðunni. Af heilsu minni er það að frétta, að ég reyndist sannspár, þegar ég taldi mig verða betri eftir en áður, enda er ég viss um, að samfallið átti sér nokkurn aðdraganda. Mér hefur ekki orðið misdægurt, frá því að ég var útskrifaður. Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar ljúf- lega um framgöngu mína í Silfri Egils í 24 stundir í dag og færi ég henni þakkir fyrir. Hún segir, að blíða mín í garð RÚV hafi ekki enst út sunnudaginn og hafi ég breyst að nýju í „vígamann“, þegar á daginn leið. Vísar hún þar til at- hugasemdar minnar hér á síðunni við það, hvernig orð mín voru afflutt á vef- síðunni ruv.is. Reynsla mín er, að spuni af þessu tagi verður ekki stöðvaður nema sótt sé gegn honum af þunga, annars teygir hann sig um allt, og hann hafði náð inn á mbl.is úr hljóðvarpinu, áður en varði. mbl.is sýndi þann mann- dóm að leiðrétta rangfærsluna. Ég hef ekki orðið var við neina leiðréttingu á ruv.is . Hin ranga útlegging á ruv.is varð ekki til þess eins, að ég gripi til vopna minna, því að hún hefur valdið hræðslukasti hjá bréfritara á vefsíðu Ögmundar Jónassonar, sem segir: „Er ríkisstjórnin að verða galin? Heyrði ég það rétt að dómsmálaráð- herrann vilji gera björgunarsveitirnar að einhverjum baksveitum fyrir lögreglu til að berja niður óeirðir? Það var gott að heyra í talsmanni Landsbjargar sem vísaði þessu út í hafsauga og sagði að sveitirnar væru til að bjarga og hjálpa fólki en ekki til að berja á því. Hvers vegna er ríkisstjórnin farin að óttast óeirðir? Er það vegna þess að hún er farin að trúa því að gerð verði uppreisn gegn kjaramisréttinu í landinu sem fer vaxandi af hennar völdum? ...“ Spyrja má: Var tilgangur spunans á ruv.is að valda slíku uppnámi? Ekkert í þeim orðum, sem ég lét falla í vinsam- legu spjalli okkar Egils Helgasonar gaf tilefni til þess. Ég vona, að Kolbrún Bergþórsdóttir fyrirgefi, að ég skyldi bregðast hart við til að kveða niður ósannindi, sem kveikja hræðslu hjá fólki, af því að það heldur að rík- isstjórnin sé að verða „galin“. Meira: bjorn.blog.is BLOG.IS SIGURVEIG Jóns- dóttir leikkona and- aðist á Landspítalan- um í Reykjavík sunnudaginn 3. febr- úar síðastliðinn, lið- lega 77 ára að aldri. Sigurveig fæddist í Ólafsfirði 10. janúar 1931. Foreldrar hennar voru Jón Steindór Frímanns- son vélsmíðameistari og frú Emma Jóns- dóttir í Ólafsfirði. 14 ára gömul sigldi hún til Akureyrar til að fara í gagnfræðaskóla. Hún var úrvalsnemandi og að loknu námi starfaði hún um árabil hjá Land- símanum á Akureyri eða þar til hún varð að hætta vegna anna sem leikkona. Eftir það helgaði hún leiklistinni allt sitt líf. Leiklistin átti hug Sigurveigar frá barnsaldri og hún var fædd leikari. Eftir að hún fluttist til Akureyrar sótti hún öll námskeið í leiklist sem völ var á og þátta- skil urðu eftir að hún sótti nám- skeið hjá finnskum leikstjóra. Það skipti sköpum í hennar lífi og eftir það tók hún þátt í sýningum Leikfélags Akureyrar af fullum krafti. Fyrsta opinbera hlutverkið fékk Sigurveig þegar hún var 18 ára en þá lék hún í Orrustunni á Há- logalandi. Í kjöl- farið fylgdu margir leiksigrar en hún lék í fjölmörgum leikritum hjá LA og gjarnan burðar- hlutverk. Eftir að fjölskyldan fluttist suður til Reykja- víkur lék Sigurveig auk þess í mörgum útvarpsleikritum, í sjónvarpi, meðal annars í áramóta- skaupum, og í kvikmyndum. Síðasta kvikmynda- hlutverk hennar var hlutverk Kiddu í kjallaranum í Mávahlátri en ennfremur lék hún stórt hlut- verk í Djöflaeyjunni, Landi og sonum, Hvítum mávum og fleiri myndum. Hún las inn á myndir í sjónvarpi og tók í raun allt að sér sem hún komst yfir. Eiginmaður Sigurveigar var Valdimar Pálsson húsgagna- bólstrari. Hann fæddist 22. ágúst 1931 og andaðist 8. október 1983. Börn þeirra eru Sigrún Valdi- marsdóttir lyfjafræðingur og Jón Steindór Valdimarsson fram- kvæmdastjóri. Barnabörnin eru sex samtals. Sigurveig verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík 18. febrúar. Andlát Sigurveig Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.