Morgunblaðið - 08.02.2008, Side 20

Morgunblaðið - 08.02.2008, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING DANSKA kvik- myndafyr- irtækið Nordisk Film hefur keypt helming hlutabréfa í kvikmyndafyr- irtækinu Zent- ropu, sem leik- stjórinn Lars von Trier og framleiðandinn Peter Ålbek Jen- sen stofnuðu árið 1992. Danska dagblaðið Politiken sagði frá þessu í gær. Kaupin munu engu breyta um stöðu þeirra Trier og Jensen innan fyrirtækisins. Nordisk Film og Zentropa eru tvö af stærstu kvikmyndafyr- irtækjum Norður-Evrópu og keppinautar en hafa á und- anförnum árum átt í samstarfi í nokkrum verkefnum og dreifingu efnis. Nordisk Film er ekki ein- göngu í kvikmyndaframleiðslu heldur einnig framleiðslu sjón- varpsefnis og tölvuleikja og er með starfsemi í Danmörku, Sví- þjóð og Noregi. Nordisk Film kaupir í Zentropu Lars von Trier Breytir engu um stöðu Lars von Triers innan þess Í TILEFNI af Vetrarhátíð í Reykjavík var kveikt á frið- arsúlu Yoko Ono í gærkvöldi og mun hún loga í dag og á morgun, frá kl. 19-1 báða daga. Þá verður boðið upp á ljós- myndasýningu í hesthúsinu í Viðey, á vegum ljósmynda- keppni.is, og verður hún opnuð í kvöld kl. 19. Vefurinn efndi til samkeppni um ljósmyndir af friðarsúlu Ono síðastliðið haust og stóð keppnin fram í jan- úar. Dómnefnd valdi 20 myndir sem sýndar verða í hesthúsinu fram á vor. Einnig verða myndirnar prentaðar á póstkort og mun hagnaður af sölu þeirra renna til UNICEF. Myndlist Valdar myndir af friðarsúlunni Friðarsúla Yoko Ono í Viðey. ENGILL í vesturbænum, nýtt leikrit eftir Jón Hjartarson sem byggt er á margverðlaun- aðri barnasögu Kristínar Steinsdóttur, verður frumflutt í Útvarpsleikhúsinu, Rás 1, á sunnudaginn kl. 15. Með hlutverk aðalpersón- unnar, Asks, fer hinn ungi leik- ari og kvikmyndagerðarmaður Árni Beinteinn Árnason. Ilmur Kristjánsdóttir leikur engilinn, Hildigunnur Þráinsdóttir leikur mömmu Asks og Gunnar Hansson pabbann. Tónlist samdi Karl Olgeirsson. Hljóðsetningu annaðist Einar Sigurðsson og leikstjóri er Sigrún Edda Björns- dóttir. Leiklist Engill í Vestur- bænum frumflutt Árni Beinteinn Árnason. Á SAFNANÓTT í kvöld getur fólk látið lágstemmd hljóð og ljóstýrur leiða sig um sali og stiga í Listasafni Einars Jóns- sonar. Safnið verður opnað kl. 19 og þá sýna myndlistarkon- urnar Björk Viggósdóttir og Klara Þórhallsdóttir innsetn- ingu þar sem hljóð og ljós kall- ast á við margræð verk og sér- stæða sali safnsins, varpa á það nýju ljósi fram eftir kvöldi. Þegar líður að miðnætti sest tónlist- arkonan Kira Kira við gamalt fótstigið orgel í turníbúð Einars og Önnu eiginkonu hans og skapar leiðsluástand sem hún kennir við „fót- stigna sáluhjálp“. Myndlist Lágstemmd hljóð í Hnitbjörgum Kristín Kristjáns- dóttir, Kira Kira. FRÉTTASKÝRING Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ birti á þriðjudag úrskurð sinn um sam- runa JPV útgáfu annars vegar og Máls og menn- ingar ásamt Heimskringlu og Vegamótum hins vegar undir nafni Forlagsins. Tutt- ugu og eitt skil- yrði var sett fyrir því að af samrun- anum gæti orðið. Vegna trún- aðar kemur ekki fram í úrskurð- inum hvaða hluta Forlagsins þarf að selja, en Jóhann Páll hvorki neit- ar því né játar að um Íslenska orða- bók og heildarútgáfu á verkum Laxness sé að ræða, eins og fullyrt var í Fréttablaðinu í gær. Formað- ur félags bókaútgefenda, Kristján B. Jónasson, fullyrðir hins vegar á vef sínum að ekki sé einungis um Íslenska orðabók og Laxness að ræða heldur einnig Ensk-íslenska orðabók og uppflettiritið Samtíð- armenn. Jóhann Páll í Forlaginu kveðst hafa kosið á þessu stigi að tilgreina ekki um hvaða verk væri að ræða. „Það geta auðvitað allir ráðið í það, að Samkeppniseftirlitið hefur valið stór og þýðingarmikil verk. Markmið þess er að minnka okkar markaðshlutdeild og styrkja aðra á markaðnum í staðinn,“ segir hann. Kraftaverk að útgáfa þrífist Í greinargerð með úrskurði Sam- keppniseftirlitsins kemur fram að Mál og menning hafi haft um 40- 45% markaðshlutdeild á almennum bókamarkaði og JPV um 15-20% og samtals megi því gera ráð fyrir að sameinað fyrirtæki njóti 55-60% markaðshlutdeildar. Til sam- anburðar má geta þess að sam- kvæmt upplýsingum frá Sambandi hljómplötuframleiðenda hefur stærsta plötuútgáfufyrirtæki hér- lendis um 70% markaðshlutdeild. Jóhann Páll segir úrskurð Sam- keppniseftirlitsins óþarfan; það sé kraftaverk að bókaútgáfa skuli yf- irhöfuð þrífast í 300 þúsund manna samfélagi. „En þetta er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins og það hefur valdið. Við verðum að hlíta þeirri niðurstöðu og við munum gera það,“ segir Jóhann Páll. 100 milljónir í Orðabókinni Ef Íslensk orðabók er ein tekin sem dæmi segir Jóhann Páll að verð hennar myndi ekki verða undir 100 milljónum. „Þetta eru miklir fjármunir fyrir kaupanda. En stóra atriðið í málinu er sú menning- arlega skylda sem hvílir á útgef- anda slíks verks. Það væri skelfileg niðurstaða ef við yrðum neydd til að selja Íslenska orðabók og hún lenti í höndunum á útgefanda sem vildi eingöngu ná úr henni hámarks- hagnaði, en hirti ekkert um þá skyldu að uppfæra bókina og halda henni lifandi. Það yrði ekkert annað en menningarlegt stórslys.“ En hverjir myndu kaupa verk af þeirri stærðargráðu sem um er að ræða? Jóhann Páll segir engan út- gefanda í augsýn sem hefði burði til þess, hvorki fjárhagslega né fag- lega. „Ég fæ ekki séð að það sé nokkur annar aðili sem gæti risið undir þessu.“ Aðrir viðmælendur Morgunblaðsins sem fylgst hafa með bókaútgáfu taka í sama streng og Jóhann Páll og telja kaupanda að t.d. Laxness og Orðabókinni vandfundinn. Söluferlið fer nú af stað Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir ekki tímabært að velta því fyrir sér nú hvað kunni að verða, takist ekki að selja það sem kveðið er á um í ákvörðun eftirlitsins. „Eins og fram kemur í úrskurðinum er sett upp ákveðið ferli sem nú fer af stað. Það verður að ráðast af framhaldinu hverjar lyktir þessa ferlis verða, og ákvarðanir verða teknar í samræmi við það.“ Í úrskurðinum kemur fram að skipaður er tilsjónarmaður sem hafa mun eftirlit með sölu um- ræddra hluta Forlagsins. Forlaginu gert að selja fjögur stórvirki útgáfu sinnar þar með heildarverk Laxness Samruni forlaga í uppnámi Árvakur/Einar FalurJóhann Páll Valdimarsson Dýr Jóhann Páll segir engan útgefanda í augsýn sem hefði burði til þess, hvorki fjárhagslega né faglega að kaupa Halldór Laxness allan og gefa út . HVERJIR hefðu hug á og getu til að kaupa feitustu bitana úr stærsta forlagi landsins? Leitað var álits tveggja útgefenda á úrskurði Sam- keppniseftirlitsins. Snæbjörn Arngrímsson í útgáf- unni Bjarti segir Bjart munu hafa áhuga á að skoða hvað í boði verð- ur. „Útgáfan er á góðri siglingu og hefur ekki í hyggju að þyngja farminn með farþegum. Við tökum aðeins það um borð sem gefur auk- inn kraft og knýr Bjartsfleyið hratt áfram.“ Gríðarmiklar skuldbindingar Sigurður Svavarsson í Opnu seg- ir Íslenska orðabók og höfund- arverk Laxness gimsteina sem hvaða útgefandi sem er myndi vilja hafa á lista sínum. „Hins veg- ar þurfa menn að átta sig á því að slíkum útgáfurétti fylgja gríð- armiklar skuldbindingar líka. Það er ekkert smámál að halda öllum bókum Laxness í prenti, þær selj- ast ekki allar jafn vel. Það þarf því öflugan útgefanda til að gæta að sóma Laxness, og hið sama gildir um Íslenska orðabók. Hún var langtímafjárfesting hjá Máli og menningu og svo hjá Eddu, þannig að þegar farið verður að finna á hana verðmiða verður hann mjög hár. Eins og staðan er núna og miðað við mína þekkingu tel ég sóma þessara öndvegisrita best varð- veittan hjá Forlaginu stóra.“ Sigurður kveðst fylgjandi því að leikreglur séu settar til að menn misbeiti ekki stærð og afli. „Hins vegar finnst mér langt seilst að ætlast til þess að menn selji ákveð- in verk út úr fyrirtækinu.“ Sigurður segir Opnu ekki hafa fjárhagslega burði til að kaupa út- gáfu þessara verka að svo búnu. Langt seilst Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Í JÚNÍ síðastliðnum tilkynntu þau Kristinn Már Pálmason og Hólm- fríður Jóhannesdóttir að þau væru hætt að reka galleríið Anima við Ingólfsstræti. Anima hefur hins veg- ar lifnað við á ný í nýju húsnæði, á horni Njarðargötu og Freyjugötu, þar sem áður var rekin verslun. Kristinn hefur snúið sér alfarið að listmálun en Hólmfríður sér um gall- eríið ein. Fjórar sýningar eru þegar bókaðar og sú fyrsta verður opnuð kl. 17 í dag. Það liggur beinast við að spyrja hvað hafi gerst eftir að Anima var lokað í Ingólfsstræti. „Ég átti það húsnæði, seldi það og hafði lokað í hálft ár. Síðan fann ég annað húsnæði fyrir galleríið og keypti það,“ segir Hólmfríður. Hún hafi valið fjóra listamenn á sýningar í nýja húsnæðinu, þeirri seinustu lýkur 17. maí. Í haust flytur Hólm- fríður með fjölskyldu sinni til Vínar. Hún segist ekki vita hvað verði þá um galleríið en það verði hugsanlega flutt til Vínarborgar en einnig segir hún koma til greina að það verði rek- ið á tveimur stöðum. „Þetta er það sem mér finnst gaman að gera, ég sá það þegar ég var búin að loka að það var ekki það sem ég vildi gera.“ „Svo er ég líka að byggja upp heimasíðuna þannig að það verði hægt að kaupa listaverk í gegnum hana og skoða verk eftir hina og þessa listamenn, jafnvel þá sem eru ekki að sýna hjá mér. Þá kemur smágrasrótarstemning í þetta,“ seg- ir Hólmfríður. Hún segist fyrst og fremst hafa í huga að koma ungum listamönnum á framfæri í Anima. Elín Anna Þór- isdóttir ríður á vaðið. Hún útskrif- aðist úr Listaháskóla Íslands 2004 og sýnir málverk og skúlptúra unna með blandaðri tækni. Áhrifavaldar hennar eru skáldaðar hetjur, ský og skuggamyndir. 28. mars verður opn- uð sýning á verkum Andreas Leik- laufs, eins af „heitustu“ myndlist- armönnum Vínarborgar í dag, að sögn Hólmfríðar. Anima lifnar við Morgunblaðið/Ómar Glassúr Elín Anna Þórisdóttir er fyrst til að sýna í nýju Anima galleríi www.animagalleri.is Myrkir músíkdagar Í DAG 12.15 Norræna húsið Sigurður Halldórsson selló- leikari og Daníel Þorsteinsson píanóleikari frumflytja Þrjú lög fyrir selló og píanó eftir Atla Heimi Sveinsson; Nostal- giu eftir Úlf Inga Haraldsson; Tengsl eftir Hjálmar H. Ragnarsson og Too Loud a Solitude eftir Hafliða Hall- grímsson. Sérstakur gestur verður Marta Hrafnsdóttir. 20.00 Salurinn, Kópavogi Tónlistarhópurinn Adapter flytur verk eftir Jo Kondo, Antti Auvinen, Bunita Mar- cus, Atla Ingólfsson, Davíð Brynjar Franzson og Þuríði Jónsdóttur. Ásgerður Júníus- dóttir er sérstakur gestur og Manuel Nawri stjórnar. 22.00 Raftónleikar Flutt verða verkin Hind- isvík, Malarrif, Krí-Krí og Postcards from North and So- uth eftir Ríkharð H. Frið- riksson og SameSameBut- Different eftir Þórhall Magnússon og Rúnar Magn- ússon. Einnig verða leikin verk eftir Hilmar Örn Hilm- arsson, Hilmar Þórðarson, Kjartan Ólafsson og Þuríði Jónsdóttur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.