Morgunblaðið - 08.02.2008, Page 29

Morgunblaðið - 08.02.2008, Page 29
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 29 hverjar ljóðabækur hans hafi verið til- nefndar til verðlauna, en hann er líka leik- skáld og prósahöf- undur og er að sjálf- sögðu jafnvel að verðlaunum kominn, hvaða höfundarverk sem í hlut á. x x x Fyrst Víkverji erkominn á bók- menntabuxurnar er ekki úr vegi að minn- ast á skáldsögu Jóns Kalmanns Stef- ánssonar; Himnaríki og helvíti, sem Víkverji hefur nýlok- ið við. Hvílík textaveizla! Það er ekki oft sem Víkverji verður að lesa bók tvisvar sinnum eða oftar í striklotu til þess að kreista alla sæluna úr textanum. En þannig fór um Himna- ríki og helvíti. Víkverja finnst eiginlega verst að vera búinn að lesa bók- ina, því þótt hann eigi örugglega eftir að lesa hana aftur, þá jafnast það ekki á við fyrstu kynnin. Hvar var þessi bók eiginlega, þegar menn voru að tilnefna til íslenzku bókmennta- verðlaunanna? Vissu þeir ekki af henni eða hvað? x x x Víkverji slær botninní þennan bókapistil með því að minnast á bók sem hefur verið honum hand- gengin að undanförnu. Þetta eru Ljóðmæli Einars Sigurðssonar í Ey- dölum, sem Jón Samsonarson og Kristján Eiríksson bjuggu til prent- unar. Víkverji verður að lýsa ánægjusinni með að Þorsteinn Þor- steinsson skyldi hljóta íslenzku bók- menntaverðlaunin fyrir bók sína um skáldskap Sigfúsar Daðasonar. Þótt Víkverji hafi löngum brotið heilann um margt í ljóðum Sigfúsar Daðasonar var eitt og annað sem stóð fast í skilningstrénu. Bók Þor- steins reyndist hinn bezti lykill að skilningi á skáldinu og það sem mest er um vert; hún er skrifuð á ákaflega lipru og læsilegu máli, einmitt þeirr- ar gerðar sem Víkverja finnst að svona bækur eigi að vera; leið fyrir lesandann að átakalausri innlifun í efnið. x x x Víkverji hefur ekki lesið verð-launaminningabók Sigurðar Pálssonar, en á hana inni og hlakkar til á meðan. Víkverji hefur reyndar fyrst og fremst litið á Sigurð sem ljóðskáld og man ekki betur en ein-     víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Útlitið er svart ef betri helm-ingurinn fer í taugarnar áþér. Ný bandarísk rann- sókn sýnir nefnilega að litlu hlut- irnir, sem pirra pínulítið til að byrja með, þróast gjarna út í stærri og stærri árekstra eftir því sem parið er lengur saman. Vefsíða Berlingske Tidende greinir frá rannsóknum vísinda- manna við Háskólann í Michigan á því hvernig sambönd við maka, vini og börn þróast yfir langan tíma. Ár- ið 1992 byrjuðu þeir að skoða sam- bönd 800 einstaklinga frá Detroit og nágrenni en þátttakendurnir í rannsókninni voru á mismunandi aldri. Árið 2005 var könnunin end- urtekin og niðurstöðurnar bornar saman. Vísindamennirnir komust að því að pirringurinn eykst einungis í parasamböndum en ekki öðrum. „Þetta kom okkur á óvart,“ segir Kira Birditt, ein af vísindamönn- unum á bak við rannsóknina. „Al- mennt sýna aldursrannsóknir að fólk eykur hæfni sína til að stjórna tilfinningum sínum með aldrinum. Það stofnar til betri sambanda eftir því sem árin færast yfir. Við fund- um hins vegar út að það skiptir miklu máli hvers kyns sambandið er.“ Neikvæð spenna milli hjóna eða sambúðarfólks er eðlileg, að mati Birditt, enda verða árekstrar í lang- flestum samböndum. „Við erum duglegri við að tjá mökum okkar skoðanir okkar eftir því sem við eldumst og sambandið þroskast,“ segir hún. „Það skapar aftur spennu.“ Á sama tíma og sambandið við makann versnar með árunum verð- ur sambandið við börn og vini minna krefjandi eftir því sem ár- unum fjölgar, enda þrengist gjarn- an vinahringurinn eftir því sem við eldumst, að sögn vísindamannanna. Á endanum eigum við því vini, sem fara ekki í taugarnar á okkur. Samband foreldra og barna batn- ar oftast með árunum samfara breyttu hlutverki barnsins með aldrinum. REUTERS Eilíf ást? Sumum finnst sem þeir séu fastir í neti hjónabandsins þegar litlu gallarnir fara að verða mjög pirrandi. Gamla ástin ryðgar Það eru gömul sannindi aðkvenmannsleggir í háhæl-uðum skóm geti vakið löng- un til kynlífs meðal karlmanna. Það virðist þó ekki vera eini kost- urinn sem háu hælarnir búa yfir er kemur að kynlífinu, sé mark tak- andi á ítalska þvagfæralækninum Mariu Cerutti. Cerutti fullyrðir, samkvæmt því sem dagblaðið Tim- es greindi frá, að það að ganga um á háum hælum styrki móðurlíf kvenna og sterkir grindarbotns- botnsvöðvar eru góðir fyrir kynlíf – jafnt karla sem kvenna. Áhrif hælanna voru könnuð við Háskólann í Veróna á Ítalíu þar sem Cerutti framkvæmdi rann- sóknir með því að mæla hve mikilli spennu grindarbotnsvöðvarnir héldu á meðan konurnar voru með fætur sína í mismunandi stell- ingum. Þegar fóturinn er beygður í um 15 gráðu vinkil, sem samsvarar því að vera á um 7 sentimetra háum hæl, eru grindarbotnsvöðv- arnir í hvað mestri hvíldarstöðu og það er því besta staðan, að sögn Cerutti, til að æfa þá á meðan mað- ur gengur. Cerutti er sjálf mikill aðdáandi hárra hæla og hóf rannsókn sína upphaflega til að finna eitthvað já- kvætt að segja um hælana. „Hæl- arnir hafa áhrif á grindarbotns- vöðvann, þeir draga úr verkjum og bæta heilsuna. Við vonumst nú til þess að geta sýnt fram á að dagleg notkun hárra hæla geti dregið úr þörfinni fyrir grindarbotnsæf- ingar,“ hefur Times eftir Cerutti. Rannsóknin tekur þó ekki til þeirra áhrifa sem háir hælar hafa á tær, hrygg og hné. Háir hælar góðir fyrir kynlífið Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Sjö sentimetrar Æfingaskór fyrir grindarbotnsvöðva. EKKI VERA SÚR Eru tennurnar í sýrubaði oft á dag? Sýran í sykruðum og sykurlausum gos- drykkjum getur eytt glerungi tannanna – og hann kemur aldrei aftur. Drekktu vatn – líka kolsýrt vatn! E N N E M M / S ÍA / N M 2 5 2 0 4 Á köldum og dimmum vetri er nauðsynlegt að fá bæði fallegan lit í tilveruna og yl í kroppinn og hjúfra sig inni í hlýjunni yfir heitri súpu eða pastarrétti frá Knorr. Alltaf einfalt, litríkt og gott með Knorr! Knorr bollasúpa er fullkomin máltíð hvenær sem er. Hlýtt í vetur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.