Morgunblaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Fyrirtæki Rekstur til sölu Fyrirtækið er 25 ára gamalt, partasala með notaða varahluti, verkfæri og fl. Áhugasamir sendið póst á netfangið: jeppapartar@simnet.is Húsnæði í boði Herbergi til leigu á Fiskislóð 14 Bjart 27 fm ( 36 fm brúttó) skrifstofuherbergi til leigu á 2. hæð í Sturlaugur og co húsinu. Sam- eiginlegt eldhús og fundaherbergi. Uppl. í síma 568 1560. Félagslíf g g Á laugardag 9.febrúar kl. 15-17 er opið hús. Kl. 15.30 heldur Freysteinn Sigurðsson erindi: “Vestmenn á Íslandi 2: Þáttur Vestmanna í stjórnsýslu. Á fimmtudögum kl. 16.30 - 18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bókmennta. Starfsemi félagsins er öllum opin. www.gudspekifelagid.is Í kvöld kl. 20.30 heldur Þorvaldur Friðriksson erindi sem hann nefnir: “Vestmenn á Íslandi 1: Íslensk gelísk örnefni," í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. I.O.O.F. 12  1882881/2 I.O.O.F. 1  188288  FL. Raðauglýsingar 569 1100 Raðauglýsingar sími 569 1100 Atvinnuauglýsingar sími 569 1100 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Gisting Þú gistir og færð allt sem þú þarfnast! Lítil íb. m/öllum húsgögnum og húsbúnaði. Uppbúið rúm, sjónvarp, útv., og internet, eldhús, baðh., hrein handkl. Kr. 6000 nóttin fyrir 1-2. Uppl.í síma 568 0021 og 869 3079. Þú gistir og færð allt sem þú þarfnast! 3ja herb. íbúð m/öllum húsg.og húsbúnaði. Uppbúin rúm, sjónvarp, útv., eldh., baðh., hrein handkl. 6500 kr. nóttin fyrir 2,1000 kr. auka- lega fyrir hvern umfram það. Sími 568 0021 og 869 3079. Heilsa REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI STREITU- OG KVÍÐALOSUN. Notuð er m.a. dáleiðsla og EFT (Emotional Freedom Techniques). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694-5494, www.EFTiceland.com. Húsnæði í boði Lúxusíbúð í Florida til leigu! Höfum til leigu 3 herbergja íbúð í hjarta Orlando, 5 mín akstur frá öllum helstu skemmtigörðum, 8.500 kr nóttin. Myndir á http://www.evesta. is/Vacation-Rentals/34716.aspx og í síma 895 2489. Íbúð til leigu Björt og falleg 2 herbergja íbúð til leigu í Njarðvík. Verð 75 þús. Íbúðin er laus strax. Upplýsingar gefur Berglind í síma 868 8376. 4ra herb. íb. við Baugakór í Kópa- vogi til leigu frá og með 1. mars 4ra herbergja íbúð á jarðhæð við Baugakór í Kópavogi til leigu. Stæði í bílageymslu fylgir. Uppl. í síma 820 2508. Húsnæði óskast Ungt par leitar að íbúð Ungt par með eina litla stelpu og aðra væntanlega á næstu vikum óskar eftir huggulegri íbúð m/a.m.k. 2 svefnherb. staðs. á höfuðborgarsv. Skoðum öll tilb. Má vera pínu-ódýr líka. S. 849 6543. 2-3 herb. íbúð óskast Leigusalinn þarf íbúðina sína. Þurfum því 2-3 herb. íbúð sem fyrst. Erum góðir leigjendur. sS. 849 6506 eða 868 2442. Sumarhús Sumarhús - orlofshús . Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Microsoft-kerfisstjóranám MCSA-kerfisstjóranámið hefst 25. febr. Nýr Windows Vista áfangi. Nokkur sæti enn laus. Upplýsingar á www.raf.is og í síma 863 2186 (Jón). Rafiðnaðarskólinn. Til sölu Stórir skór.is hætta 30% afsláttur af öllum dömuskóm í stærðum 42-44 og herraskóm í stærðum 47-50. Opið í dag kl. 16-18.30. Ásta skósali, Súðarvogi 7, sími 553 60 60. Þjónusta Raflagnir og dyrasímaþjónusta Setjum upp dyrasímakerfi og gerum við eldri kerfi Nýlagnir og endurnýjun raflagna. Gerum verðtilboð Rafneisti sími 896 6025 lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is Ýmislegt Tískuverslunin Smart, Grímsbæ/Bústaðavegi Jakkar, 5 litir St.: S – XXXL Verð kr. 6.990. Skyrta, 5 litir, st. 42- 56, verð kr. 3.500 Sími 588 8050. Myndavél tapaðist Lítil rauð Canon ixus myndavél í sel- skins leðurbuddu týndist á föstudag- inn 31.jan. Vinsamlegast hafið sam- band í síma 697 8243 ef vitað er um hana. Í sundið eða sólina: Ofsa flott bh í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.665,- Mjög smart ”slå om” pils í stíl í stærðum S,M,L á kr. 3.995,- Tankini í D,DD,E,F,FF skálum á kr. 8.985,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán-fös 10-18, lau 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is. Flottir peysukjólar !! Nýkomin sending frá No Secret, flott- ir bolir, pils, buxnakjólar, leggings og gallabuxur. Stærðir: 42-56. Belladonna, Skeifunni 11, s. 517-6460. www.belladonna.is Vélar & tæki Til leigu með/án manns. Gerum einnig tilboð í hellulagnir og drenlagnir. Upplýsingar í síma 696 6580. Bílar Opel Corsa 1.2 Comfort Skráður 2001. Ekinn 115 þús. km. Nýskoðaður. Verð kr. 400 þúsund. Upplýsingar í síma 848 2146. MMC GALANT, ÁRGERÐ 1999 2,0, ssk., ekinn aðeins 69 þús. , nýtt í bremsum. Mjög vel með farinn. Vel búinn bíll í toppstandi. Uppl. í síma 866 9266. M.BENZ M ML 500 Til sölu M.Bens ML500 11/06 ekin 15þ Umboðsbíll tilboð í beinni sölu: 300 þ út og yfirtaka á bílaláni Upplýsingar 820 8096 Smáauglýsingar sími 569 1100 FRÉTTIR UNDIRBÚNINGUR að námskeiðunum „Undur vísindanna“ stendur nú yfir. Að þeim standa End- urmenntun Háskóla Íslands, Vísindavefurinn og Orkuveita Reykjavíkur. Þeim er ætlað að höfða til barna á aldrinum 8 til 12 ára og vekja með þeim áhuga á vísindum og fræðum. Tölvufyrirtækið CCP mun einnig taka þátt í námskeiðshaldinu í ár. Um 1.000 manns sóttu námskeiðin í fyrra. For- eldrar, en þó oftar afar og ömmur, komu þá með börnunum og áttu saman fræðslustund og fengu innsýn í heim vísindanna, segir í fréttatilkynn- ingu. Í ár verða námskeiðin fjögur og haldin á laug- ardögum á tímabilinu 16. febrúar – 8. mars. Að þessu sinni verður fjallað um Undur orkunnar, Undur efnafræðinnar, Undur jarðarinnar og að lokum Undur tölvuleikjanna. Námskeiðin verða haldin í höfuðstöðvum Orku- veitu Reykjavíkur á Bæjarhálsi 1 í Reykjavík og verður þátttakendum boðið upp á hollar og góðar veitingar. Verð á hverju námskeiði er 950 kr. Skráning og nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni www.endurmenntun.is. Vísindi á verði bíóferðar MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá Gunnari I. Gunnarssyni yfir- lækni undir yfirskriftinni „Að mæra einka- rekstur heilsugæslu á fölskum forsendum“. Yfirlýsingin hljómar svo: Á forsíðu Morgunblaðsins í dag, 7. febrúar, er vitnað í skýrsludrög, sem legið hafa í ráðu- neyti heilbrigðismála frá októbermánuði í fyrra, þar sem samanburður á rekstrarkostn- aði einkarekinnar Heilsugæslu Salahverfis í Kópavogi og meðaltalstölum stöðva Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2006 er talinn sýna 60% meiri afköst einkarekinna lækna fyrir 13,32% færri krónur. Í lok grein- arinnar er því haldið fram, að ríkið gæti aukið afköst lækna heilsugæslunnar samsvarandi og sparað 390 milljónir með því að einkavæða allt höfuðborgarsvæðið. Greinilegt er að ofan- greindum skýrsludrögum hefur verið lekið í Morgunblaðið til að vekja athygli á því gamla keppikefli ritstjórnar blaðsins, að auka vægi einkareksturs í heilbrigðisþjónustunni. Sá sem þetta ritar hefur verið hallur undir mismun- andi rekstrarform í heilbrigðisþjónustunni, til dæmis sem einn af stofnendum Læknavakt- arinnar sf. og stjórnarformaður hennar í ára- tug. Ég hef einnig verið stuðningsmaður þess að læknar sjái sjálfir um rekstur stöðva sinna, þar sem slíku verður við komið, en þegar mað- ur les ofangreinda forsíðufrétt Morgunblaðs- ins, þá rekur mann í rogastans. Sá samanburð- ur, sem þarna er kynntur, er með öllu ómarktækur og svo fráleitur, að hann eyði- leggur málstað okkar sem viljum sjá frekari einkarekstur í þjónustu heimilislækna. Það er auðvitað útilokað að gera umfjöllun þessari nægjanleg skil í stuttri grein, en til að lesendur skilji betur, hvers vegna ofangreind Morgun- blaðsfrétt er allsendis ómarktæk, þykir rétt að benda til dæmis á eftirfarandi: 1) Það er eðlilegt, að verktakastarfsemi lækna skili meiri afköstum en fastlaunakerfi. Það er því ómarktækt að bera slíkt saman með ofangreindum hætti. 2) Læknir getur hæglega aukið „afköst“ sín um 60% – án þess afgreiða fleiri sjúklinga. Höfðatalning af þessum toga segir ekkert um frammistöðu læknis á vinnustað. 3) Mismunandi aldur skjólstæðinga stöðva kallar á mismunandi tíma og vinnu lækna við afgreiðslu vandamála. Heilsugæsla Árbæjar hefur t.d. 50% fleiri skjólstæðinga, sem eru 70 ára og eldri, en Salastöðin í Kópavogi, skv. jan- úartölum íbúa 2008. 4) Salastöðin var alveg laus við fyrirhöfn og kostnað við kennslu lækna og læknanema á árinu 2006. Kennslukostnaður samanburðar- stöðva nam yfir 133 milljónum á sama ári. 5) Læknar Salastöðvarinnar sinna mun færri símtölum en t.d. læknar í Árbæ. Og svo má lengi telja. Menn eiga ekki að flagga fölskum forsend- um til að koma höggi á opinberan rekstur heilsugæslu. Heilsugæsla Árbæjar er ein af af- kastamestu heilsugæslustöðvum landsins og hefur einnig hlotið háar einkunnir í þjónustu- könnunum undanfarin ár. Læknar hennar eru ekkert á móti einkarekstri annarra stöðva, en þeir vilja mótmæla gagnrýni á störf sín, þegar hún er byggð á fölskum forsendum. Gunnar Ingi Gunnarsson, yfirlæknir í op- inberum rekstri.“ Gagnrýnir frétt um heilsugæslu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.