Morgunblaðið - 08.02.2008, Page 55

Morgunblaðið - 08.02.2008, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 55 „Brúðguminn er heilsteypt og skemmtileg mynd sem kemur eins og ferskur andvari inn í skammdegið.” -S.P., Kvika Rás 1 SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBBÍÓI “Myndin er frábær skemmtun” - Þ.H., MBL Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum www.laugarasbio.is Sýnd kl. 8 og 10 Kauptu bíómiða í Háskólabíó á STÆRSTA JANÚAROPNUN SÖGUNNAR Í BANDARÍKJUNUM! EITTHVAÐ SKELFILEGT ER Á SVEIMI! eee - S.V, MBL eee DÓRI DNA, DV eee - V.I.J., 24 STUNDIR LANG VINSÆLASTA KVIKMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG 30.000 GESTIR - 3 VIKUR Á TOPPNUM! MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI! Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:30 Rambo kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára Ástríkur á Ólympíuleikunum kl. 5:30 - 8 Atonement kl. 6 - 9 B.i. 12 ára Charlie Wilson’s war kl. 10:30 B.i. 12 ára Brúðguminn kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára - H.J. , MBL eeeee „Myndin er verulega vel leikin og að öllu leyti frábær” - E.E., DV eeeee Frábær mynd. Hún er falleg, sár og fyndin. Allt gekk upp, leikur, leikmynd, saga, hljóð, mynd og allt sem þarf til að gera fína bíómynd. -S.M.E., Mannlíf eeee Besta íslenska fíl-gúdd myndin fyrr og síðar “ - S.S. , X-ið FM 9.77 eeee “Brúðguminn er skemmtileg mynd sem lætur áhorfendur hljæja og líða vel“ - G. H., FBL SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI - H.J. , MBL eeeee „Myndin er verulega vel leikin og að öllu leyti frábær” - E.E., DV Sýnd kl. 6:15, 8 og 10 POWERSÝNING -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 4 og 5:30 m/ísl. tali Stærsta kvikmyndahús landsins 10 eeee - V.J.V., TOPP5.IS - T.S.K. 24 STUNDIR eee Ó.H.T., RÚV/Rás 2 SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is EINN helsti tónlistarviðburður ársins er klárlega Músíktilraunir en þær verða haldnar í 26. skipti dagana 10. til 15. mars. Fimm undan- úrslitakvöld verða keyrð frá mánu- degi til föstudags og svo verða úrslit á laugardegi. Keppnin hefur getið af sér fjöldann allan af frambærilegum hljómsveitum og listamönnum síðan hún var fyrst haldin árið 1982 en á meðal þekktra sigurvegara má nefna Dúkkulísur, Greifana, Sororicide, Kolrössu krókríðandi, Maus, Botn- leðju, Mínus, XXX Rottweilerhunda, Mammút og Jakobínurínu. Nauðsyn Að sögn Þrastar Sigurðssonar, verkefnisstjóra Tilraunanna, verða þær með svipuðu sniði og áður. Þröst- ur starfar hjá frístundamiðstöðinni Tónabæ sem sér um að skipuleggja Músíktilraunir ásamt Hinu húsinu en Tilraunirnar eru undir hatti ÍTR. „Við höfum lagt mikla krafta í það að reyna að fá sem fjölbreyttastan hóp inn í þetta. Litrófið hvað sig- urvegara varðar hefur vissulega verið breitt undanfarin ár en við viljum víkka það enn frekar út. Með þetta að markmiði stóðum við m.a. að rokk- smiðju fyrir stelpur í Tónabæ ásamt Dúkkulísum.“ Í undanúrslitunum velur dóm- nefnd eina sveit áfram og salurinn eina. Í úrslitum sér dómnefnd alfarið um að skipa í þrjú efstu sætin, sem er nýlunda frá því sem verið hefur. Áhorfendur og hlustendur Rásar 2 kjósa svo hljómsveit fólksins með sms-kosningu. Dómnefnd sér þá um að velja framúrskarandi hljóðfæra- leikara líkt og undanfarin ár. Þröstur segir gildi Músíktilrauna jafnmikið í dag og áður. „Þetta er frábært konsept og þessi keppni skipar stóran sess í tónlistar- menningu landsins. Það er með ólík- indum hversu margir tónlistarmenn hérlendis hafa tekið þátt í keppninni á einhvern hátt og það er nauðsynlegt að hún lifi og merki hennar sé haldið rækilega á loft.“ Skemmtileg reynsla Það var hin níðþunga Shogun sem sigraði með glæsibrag í fyrra. Vern- harður Tage Eiríksson, gítarleikari sveitarinnar, segir að þeir félagar hafi skráð sig af hálfgerðri rælni í keppnina, nokkuð sem þeir sjái ekki eftir í dag. „Þetta voru fyrstu tónleikarnir mínir. Ég hafði aldrei staðið á sviði áður og var því vel stressaður. Þegar Gordon Riots lentu í 3. sæti afskrif- uðum við sigurinn og urðum því mjög hissa á að hafa tekið þetta.“ Vernharður segir að sigurinn hafi gefið þeim félögum kraft og áræði til þess að halda stússinu áfram. Bröltið hefur nú gefið af sér breiðskífu. „Platan er klár. Hún verður mast- eruð í Sundlauginni en ég veit ekkert um útgáfudag ennþá. En ég mæli hiklaust með Músíktilraunum fyrir ungar og óreyndar sveitir. Þetta gerði okkur a.m.k. gott og var skemmtileg reynsla. Formið á keppn- inni svínvirkar finnst mér og sér- staklega finnst mér gott að áhorf- endur hafi eitthvað að segja um þróun mála.“ Músíktilraunir 2008 Skráning hefst mánudaginn 11. febrúar Morgunblaðið/ Björg Sveinsdóttir Shogun Sigurvegarar Músíktilrauna 2007 ásamt Birni Inga Hrafnssyni þá- verandi formanni ÍTR sem veitti sveitinni sigurverðlaunin. Opnað verður fyrir skráningu í keppnina næstkomandi mánudag og geta hljómsveitir sótt um og nálgast upplýsingar á vefnum www.musiktilraunir.is og í gegn- um netfangið musiktilraun- ir@itr.is. Skráningu lýkur 25. febrúar. Undankeppnin fer fram í Austurbæ en úrslitin í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi og mun Rás 2 að vanda senda beint út frá keppninni. Þá mun Ríkissjónvarpið framleiða sjónvarpsþátt um keppn- ina. Alls komast 50 hljómsveitir að í undankeppninni. Vegleg verð- laun eru í boði að vanda, m.a. inn- eignir í hljóðfæraverslunum, hljóð- verstímar og flugfar með Icelandair á glæsilega tónlist- arhátíð sem verður nánar kynnt síðar. 50 hljómsveitir www.musiktilraunir.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.