Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Qupperneq 29
Langt mál mætti skrifa um hvalveiðar Norð-
manna við ísland. Hér er þess ekki kostur. Verð-
ur því í blaðagrein þessari að fara fljótt yfir
sögu og sleppa mörgu.
Árið 1902 náði aflinn hámarki. Það ár voru
hér 30 hvalveiðibátar. Veiddu þeir samtals
1305 hvali. Lýsismagnið var 40 þús tunnur.
Útflutningstollur var 1 kr. á lýsisfatið, og
þótt það væri ekki hár tollur, hafði landssjóður
dágóðar tekjur af þessum veiðum. Annars er
það órannsakað mál, hversu miklar tekjur land-
ið og landsmenn hafa haft af hvalveiðunum.
Veiðin fyrra árið var því að meðaltali aðeins
864 föt lýsis á skip, en 1370 föt síðara ái'ið.
Athyglisvert er það í þessu sambandi, að veiðin
hjá þeim tveimur stöðvum, sem halda tryggð
við Vestfirðina, „Heklu“ og Tálkna“, er miklu
minni en Austfjarðastöðvanna. Austfjai’ða-
stöðvarnar hafa meðalveiðina 1580 föt lýsis á
bát, en Vestfjarðastöðvamar einungis um 900
föt lýsis.
Þegar fram kom um 1910 fór hvalaþurrðin
umhverfis ísland að gera æ meira vart við sig.
Hvalabátarnir fóru nú langar leiðir eftir aflan-
Hvalveiðistöö Ellefsens
á Mjóafirði.
Árin 1903 og 1904 kemur þegar nokkur aft-
urkippur í hvalveiðarnar. Nú fara líka fyrstu
hvalveiðistöðvarnar að hverfa frá íslandi, ein til
Hjaltlands og önnur til Hebrideseyja. Sérstak-
lega ber á því, að veiðin er orðin nokkuð mis-
jöfn. Það eru áraskipti að henni. Sem dæmi
skulu tekin árin 1906, sem var mjög lélegt, og
1907, gott veiðiár. Þegar hér var komið sögu,
voru ekki nema sex hvalveiðifélög eftir á íslandi.
Hvalveiðisföðvar Fjöldi veiði- báfa Hvalir samtals Lýsisföt
1 9 0 6:
Ellefsen 7 210 7000
„Victor" 4 130 4000
Bull 3 61 ca. 2000
Evensen 3 63 ca. 2000
„Hekla“ 4 104 3800
„Tálkni" 4 82 2800
19 0 7
Ellefsen 7 268 10900
„Victor“ 4 184 8000
Bull 3 94 3600
Evensen 3 113 4500
„Ilekla" 4 94 4000
„Tálkni“ , 4 90 3250
um, allt norður til Jan Mayen og norður að rek-
ís, en á hinn bóginn suður til Færeyja.
Nú var búrhvalurinn ekki óverulegur hluti
aflans. Einkum bar mikið á honum í veiðinni
1909.
Árið 1910 var hvalveiðiflotinn stærri en
nokkru sinni áður eða síðar, samtals 32 skip.
Þrátt fyrir það hrakaði veiðinni stórum frá ár-
inu áður. Hvalurinn var að ganga til þurrðar.
Með hverju ári sem leið, minnkaði nú veiðin, svo
að þar kom, að hvalveiðastöðvarnar voru rekn-
ar með tapi. Veiðarnar hlutu að leggjast niður.
Afli hinna einstöku stöðva var sem hér segir
árið 1910:
Hvalvoiðistöðvar Fjöldi veiði- báta Hvalir samtals Lýsisföt
Ellefsen 9 170 6300
„Victor" 5 137 4500
Bull 5 91 3500
Evensen 3 47 1800
„Hekla“ 5 114 3900
„Tálkni“ 5 90 2600
Meðalafli á skip var því þetta ár 706 föt lýsis.
Árið 1911 voru veiðiskipin ekki nema 22,
VÍ K I N G U R
317