Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Side 40
Grímur Þorkelsson
Flug milli hnatta
I hinni skemtilegu grein, sem hér fer á eftir, segir
Grímur Þorkelsson frá hugmyndum og fyrirætlunum
vísindamanna, er láta sig dreyma stóra drauma um
flugferð til tunglsins. í þar til gerðri rakettu, „tungl-
skipi“ hyggja þeir að hægt verði að komast hinn mikla
óraveg til mánans, þrjú hundruð og áttatíu þúsund
kílómetra leið, og hafast þar við í nokkra daga. Ef til
vill á draumurinn um flug milli hnatta eftir að rætast.
Hver veit?
Þótt endalaus sé eilífðin
hún endist varla til
að öll ég sjái sólkerfin
og sólna millibil.
G. Th.
Ráðagerðir eru nú uppi í ýmsum löndum um að láta
draum vísindanna, um að komast til annarra hnatta
rætast: Til tunglsins í. rakettu eða geimiskipi. þannig
hljóða fyrirsagnir sumra erlendra blaða um þessar
Þannig liti jörðin út frá tunglinu.
mundir. Þetta lcann mörgum að þykja fjarstæðukcnnt.
En þetta hafa menn nú hugsað sér, og úr því að hægt
er að hugsa sér það, þá getur líka vel farið svo, að sú
tími komi, að hægt sér að frámkvxma það, Hugur
mannsins á auðvelt með að þjóta milli himinhnatta.
Hvort manninum tekst nokkurn tíma að fylgjast með i
cigin persónu, er annað mál. Hvað sem um það er, þá.
eru vísindamenn í ýmsum löndum nú farnir að glíma
við að koma þessari, að því er virðist, fjarstæðu-
kenndu fyrirætlun í framkvæmd og byggja vonir sinar
um árangur á þeirri staðreynd, að tekizt hefur að
sundra frumeindarkjarnanum, og að takast megi að
beizla þá orku, sem þar leysist úr læðingi og nota hana
sem orkugjafa eða eldsneyti til þess að knýja áfram
farartæki um óralangar vegalengdir og víðáttur him-
ingeimsins. Að sumu leyti hafa þessar hugmyndir
fengið byr undir vængi í sambr.ndi við flugskeytasend-
ingar Þjóðverja í styrjöldinni, landa á milli. Ábyrgir
menn á sviði flugmálanna. telja, að ferðalög hnatta ú.
milli séu meira en fræðilegur möguleiki, því flest, ef
ekki öll skilyrði séu fyrir hendi, önnur en viðeigandi
eldsneyti, sem er nægilega létt, fyrirferðarlítið og krr.ft-
mikið. Telja ýmsir vísindamenn að takast megi að fljúga
út fyrir gufuhvolf jarðar og alla leið til tunglsins.
Major Seveisky segir i This Week 23. júli 19UG, en þó
með fyrirvara. „Tunglskipið mun verða lcnúið áfram
með nýju eldsneyti sem er nægilega létt, fyrirferðar-
lítið og kraftmikið. Það mun liefja flug sitt hægt og
þægilega. Það mun verða fært um að „halda sér við
í loftinu", —- halda kyrru fyrir, hvort sem er nærri
eða fjarri yfirborði jarðar eða annarrar plánetu. Uti
í geimnum mun það beita lengdarfletinum, ekki trjón-
unni. Fluginu veröur liagað þannig úti i geimnum að
skorts aðdráttaraflsins gætir ekki. — Það mun fara
leiðina milli tungls og jarðar á SVz tima og komast
upp í 139,000 mílna hraða á klukkustund.“
Áratugum saman hafa menn liugsað og talað um
möguleika á þvi að korhast til annara hnatta í rakettu
eða öðru slíku farartæki. Erfiðleikana í sambandi við
það hefur ekki verið hxgt að sigra. Þeir hafa verið
ósegjanlega miklir, miðað við ]>éi þekkingu, sem menn
hafa haft yfir að ráða. Nú þylcir mönnum sem byr-
legar blási í þcssu efni en fyrr og aldrei hefur álmgi
manna komizt á slikt stig, sem einmitt nú, enda hafa
framfarir á sviði fluglistar og öllu þar að lútandi,
verið undraverðar á síðustu éirum. Svo langt
cr hugmyndin um flugið til tunglsins lcomin
édeiðis, að verið er að vinna að hugmyndateikningu
að slíku farartæki, í Englandi og Fraklclandi. Þótt
ótrúlegt Icunni að virðast er þessum fyrirhuguðu geim-
skipum talin stafa mjög mikil hætta af loftsteinum
éi. leið sinni um 380,000 kílómetra veg milli jarðar og
tunglsins. Slikur aragrúi er talinn vera af þcim á
þessari leið, að gert er ráð fyrir að um 20,000,000
3ZB
V I K I N □ U R