Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Blaðsíða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Blaðsíða 5
Upsinn við Edinborgarbryggju í Vest- mannaeyjum. Aftast á þilfarinu má sjá Jóhann, formann bátsins. Jóhann Jónsson, form. Suðurgarði, Vestmannaeyjum. Árni Johnsen, kaupmaður og útgerðar maður í Vestmannaeyjum. síns á Hótel íslandi. Sjá þeir þá hvar tveir lögreglumenn standa við dyrnar báðir með gasgrímur fyrir andlitum. Voru þeir þangað komnir í embættisbifreið með bílstjóra, sem einnig bar gas- grímu. Lögreglumennirnir sneru sér að Jóhanni og Sigurjóni og spurðu þá hvað þeir hétu og hvaðan þeir væru. Sögðu þeir til sín. Var þeim þá tilkynnt að þeir væru teknir fastir og yrðu að dvelja í Farsóttarhúsinu í 8 daga í sóttkví. Orsakir fyrir þessu voru þær, að daginn sem þeir fóru frá Vestmannaeyjum kom þar upp veiki, sem ætlunin var að reyna að verjast að bærist til Reykjavíkur. Helzt var haldið að veikin væri angi af spönsku veikinni, sem gekk hér haustið 1918 og veturinn 1919. Fengu þeir félagar með naumindum að láta vita á hótelinu um þá breyt- ingu, sem orðin var á þeirra vistarveru. Þegar á Sóttvörn kom, voru þar fyrir þrír Vestmanneying- ar, Gísli Lárusson, gullsmiður frá Stakkagerði, Erlendur Árnason, sníkkari frá Gilsbakka og Magn- ús Jónsson, sjómaður, meðal bræðra hans var Guðjón á Sand- felli. Voru þarna saman komnir kátir og skemmtilegir kunningj- ar allir frískir og fjörugir. Á Sóttvörn var einn læknir og ein hjúkrunarkona. Höfðu þau gasgrímur fyrir andlitum. Hjúkr- unarkonan færði þeim matinn og annað er með þurfti. Á öðrum degi tók hún af sér grímuna, er hún var komin inn í herbergið til þeirra og hafði lokað hurðinni á eftir sér. Hélt hún þeirri reglu eftir það, en alltaf setti hún grímuna aft- ur á sig, þegar hún fór út frá þeim og læsti herbergi þeirra að utanverðu, svo að tryggt væri að enginn félaganna kæmist út af sjálfsdáðum. Þeir Eyjamenn voru látnir mæla í sér hitann kvölds og morgna, en eitthvað vildi nú skol- ast til með fastar reglur á því. Læknirinn kom alltaf daglega til að líta á þessa „sjúklinga" sína. Á Sóttvörn var ýmislegt til að stytta sér stundir við, þar voru manntöfl, spil, bækur og blöð. Allur annar viðurgerningur var þar eins og bezt mátti verða. Ekki var þeirra hluta vegna á- stæða til að láta sér leiðast, en þar sem þeir voru óvanir sjúkra- húsi og í fullu fjöri með allan hugann við bátinn, þá fannst þeim þessi vera sín talsvert ó- frelsi og töf frá áhugamálum sínum. Frelsinu urðu þeir því mjög fegnir, þegar þeir voru lausir af Sóttvörn. Símasambandslaust hafði ver- ið milli Eyja og lands allan tím- ann frá því þeir fóru að heiman. Bárust því engar fréttir heim, hvernig komið var um hagi þeirra. Fréttin um veikina í Eyjum, sem leiddi til handtöku þeirra, barst eftir öðrum leiðum en símanum. Hófust nú félagarnir handa af fullum krafti við að stand- setja Upsann. Stefnt var að því að komast sem allra fyrst af stað eftir þessa löngu töf. Um þetta leyti var mikið frost í Reykjavík, var höfnin öll þykk- um ísi lögð. Lá Upsinn inni frosinn úti á höfninni, og gátu bátsverjar gengið út í skipið. Rennu þurfti að brjóta í ísinn til að koma bátnum að bryggju, var það ekkert áhlaupaverk, en hafðist þó. Eftir að hafa tekið um borð olíu, vatn og ýmislegt fleira hélt Upsinn frá bryggju áleiðis til Vestmannaeyja. Lagt var af stað skömmu upp úr hádegi með kost til þriggja sólarhringa. Áttu þeir að vera mjög vel birgir með mat, ef allt gengi 117
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.