Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Blaðsíða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Blaðsíða 6
að óskum og vonir stóðu til tæki ferðalagið yfir til Vestmanna- eyja frá Reykjavík aðeins 17 klukkustundir. Þegar út úr ísnum kom var tekin stefnan frá Gróttu fyrir Garðskaga. Veður var ágætt, blíða logn og allt gekk að ósk- um. Upsinn gekk um það bil 7 sjómílur á stund, sem þá þótti góður gangur. Við Reykjanes fór að kalda af suðaustri og fór vaxandi, en áfram var haldið. Vindurinn og kvikan jukust stöðugt, og þegar komið var aust- arlega í Grindarvíkursjó var orðið all' hvasst með talsverðum sjó. Fór veðurútlitið versnandi. Upsinn, sem áður gekk 7 mílur, komst nú aðeins áfram með helm- ing þess hraða, enda hvorki skip né vél í því lagi að til nokkurra, stórræða mætti stefna. Var því það ráð tekið að snúa við vestur fyrir Reykjanes. Segl voru sett upp, en vélin þó látin ganga án þess að keyra hana fullt. Þegar komið var um það bil hálfa leið að Reykjanesi stöðv- aðist vélin. Voru nú seglin ein til ferðagangsins. Vélina varð að rífa í sundur til að finna bilun- ina. Áfram var haldið á seglum fyrir Reykjanesið og komið inn á Sandvíkina í svartasta myrkri um nóttina. Ládautt var á vík- irini, þótt rokhvass vindur stæði af landi. Legið var þarna fram í birtingu og hafði mótoristinn unnið sleitulaust við lagfæringu á vélinni. Öðruhverju hafði tek- izt að láta vélina ganga en full- naðarviðgerð ekki tekizt. Loks tilkynnti Óskar mótoristi for- manninum, að ekki væri unnt að lagfæra vélina nema rífa hana mest alla niður. Var því bjástrað áfram á seglum og komið móts við Hafnir (Kirkjuvog), þar sem lagzt var við akkeri kl. 10 fyrir hádegi. Drógu þeir nú flagg að hún, og brátt bar að bát úr landi með 5 mönnum, einn þeirra var hréppstjóri Hafnarhrepps. Þegar báturinn var kominn í kallfæri við Upsamenn var spurst fyrir hvaða skip væri á ferð, þeg- 118 ar uppvíst var að Upsinn var að koma frá Reykjavík sögðust bát- verjar ekki geta haft nokkur samskipti við Upsamenn vegna þeirrar alvarlegu veiki, sem upp var komin í Reykjavík. Jóhann formaður, skýrði nú fyrir komumönnum nauðsyn þess að koma skipinu inn í ós- ana, svo að hægt yrði á öruggum stað að gera við vél bátsins, en til þess þyrfti hann að fá kunn- ugan leiðsögumann, því að leið þangað inn var þröng og vand- rötuð og allir um borð ókunn- ugir þeirri leið. Aðkomumenn létu þetta sem vind um eyru þj óta og héldu sem skjótast til lands. Hafnarmenn voru af eðlilegum ástæðum var- kárir vegna þeirra fregna, sem bárust um símann af veikinni. Sem betur fór var veikin þó væg- ari en búizt var við. Upsamenn ræddu vanda sinn, eins og nú var komið var lífs- nauðsyn að komast inn í ósana, og ráðgerðu þeir að komast inn á eigin spýtur. En alltaf verður eitthvað til bjargar þegar vel á að fara, svo varð í þetta sinn. Síðdegis þennan umrædda dag var góðum manni í Höfnum litið til lofts og leizt ekki á veðurút- lítið. Taldi hann óforsvaranlegt að láta mótorbátinn liggja þarna frammi á legunni, ef hann skylli á með útsynningsofsa. Vildi hann gera eitthvað til að koma bátnum í öruggt skjól inni á ósunum. Fékk hann leyfi hreppstjóra til að fara út að Upsanum með því skilyrði að fara ekki um borð í hann. Réru þeir síðan nokkrir saman út undir Upsann og köll- uðu til skipverja, þar sem þeir buðust til að fylgja Upsamönn- um inn í ósana, ef þeir gætu komið á eftir bátnum. Upsamenn fóru nú að reyna að ná upp akkerinu, sem þá reyndist gikkfast. Heyrði Jóhann formaður, að ungu mennirnir í hjálparbátnum vildu ólmir um borð til aðstoðar við að ná upp akkerinu, en formaðurinn þeirra þvertók fyrir það vegna loforðs- ins við hreppstjórann. En Upsamenn urðu ekki ráða- lausir, þótt þá skorti afl til að draga inn akkerið. Vélin gekk þá stundina og notuðu þeir tæki- færið, festu keðjuna um pollann, sigldu síðan 3 hringi og sneru upp á keðjuna en þá losnaði akk- erið. Síðan var lagt af stað inn í ósana, hásjávað var og veður slarkfært. Vindur þó orðinn suð- lægur. Allt gekk vel og sluppu þeir prýðilega inn fyrir þröskuld- inn, en þegar komið var spöl- korn inn á ósana stöðvaðist vélin á ný og því ekkert annað að gera en kasta akkerinu og reyna að að liggja þarna. Dýpið var 3 til 4 faðmar, og öllu borgið því að hér var gott skjól fyrir öllum átt- um. Hafnarmenn sneru nú heim, er þeir sáu að meira gátu þeir ekki gert Upsamönnum til hjálp- ar, enda höfðu þeir þegar veitt ómetanlega hjálp. Á útfallinu tók Upsinn niðri og stóð alveg, en þarna var mjúk- ur fjörusandur og því ekki hætta á að báturinn skemmdist. 1 að- fallinu gekk vindur meira til út- suðurs með hellirigningu. Um nóttina gerði ofsarok og um leið stórsjó og brim framan við ós- ana. Þegar báturinn fór að fljóta tók hann að reka undan vindin- um. Tíndu þá bátsverjar saman allt járnadrasl, sem til var um borð og létu síga niður á akker- ið, en ekkert dugði til að stöðva rek bátsins og færðist hann allt- af innar og nær landi. Höfðu þeir félagar gát á öllu, þótt hafaldan næði ekki til þeirra inn í ósinn, máttu þeir samt bú- ast við að reka á land í svart- asta myrkrinu um nóttina. Nótt- in leið án viðburða og þegar dag- aði að nýju og fjaraði út stóð .Upsinn aftur, en tók að reka á ný með aðfallinu. Virtist sem bát- inn myndi reka upp á breiðan tanga, er framundan var og bát- urinn nálgaðist stöðugt. Um það leyti varð vindurinn vestlægari, en talsvert hvassari, að minnsta kosti 11 vindstig fréttum við síð- ar. Gekk svo allan næsta sólar- hring að báturinn stóð á útfallinu VlKINGU E
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.