Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Blaðsíða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Blaðsíða 12
Grunnbrot framundan stýrimaður! 3löö úr gamalli Jeiðarbók eftir W. J. Wade, M. B. E., skipstjóra ÞAÐ var jóladagur, ég átti seinni „hundavaktina" ■ frá kl. 6—8 um kvöldið. Við vorum út af strönd Ástralíu á leiðinni frá Adelaide til Melbourne, og höfðum við haft stefnu suðurhalt frá landi allan daginn þar til kl. 4 síðdegis, er skipinu var vent, og nú var stefnan að landi aftur SB bóg. Stefna skipsins var nú um suð-vestur, en þrálátur mót- vindur hafði hindrað okkur í nokkra daga, og vorum við neyddir til að slaga okkur áfram. Ég var 1. stýrimaður á skipinu, sem var eitt af hinum frægu seglskipum (clippers) af þeirri gerð sem nú er, því miður, liðin undir lok. Ég gekk fram og aftur um skutpallinn og horfði án ár- angurs eftir veðurmerkjum um hugsanlega breyt- ingu sem gæfi okkur tækifæri til að setja stefnuna beint fyrir Otvay-höfða, en þá mundi greiðast leiðin fyrir Melboume-höfðana. Ég átti marga vini í Melbourne - og þar var stúlkan sem nú er eiginkona mín, og þessi töf sem mótvindurinn olli kom óþægilega við mig. Rétt fyrir kl. 8 kom skipstjórinn á þilfar, og það leyndi sér ekki að hann var freklega „hífaður" eins og sagt er. Old Jock var skipstjóri af gamla skólanum, Skoti, um fimmtíu og sex ára gamall, reyndur og ágætur sjómaður, en fremur grófyrtur og ruddalegur í framkomu, og spegilmynd af glað- lyndum og góðviljuðum skipstjórnarmanni. Okkur hafði hingað til komið mjög vel saman, enda hafði ég ekki kynnst hans innra manni í neinu, svo að ég lét þetta gott heita og taldi víst að hann hefði verið að halda upp á jólin með einhverjum far- þegunum - „ekki skynsamlega, og þó einum um of“. Nokkrir af farþegunum voru þeirrar gerðar sem iðulega voru með seglskipum í Ástralíuferðum - höfðu vinir þeirra sent þá að heiman í von um, að þeir læknuðust af óhóflegri víndrykkju, með því að útiloka þá frá glaðværum félagsskap og freist- ingum hans. Old Jock var strangur húsbóndi. Hann hafði verið yfirmaður nálega 30 ár og gat ekki þolað neinum að malda í móinn við fyrirskipunum, eða koma með tillögur um eitt eða annað sem laut að siglingu skipsins, sem ekki var samhljóða hans skoðun. Hann átti sjálfstraust og trúði á eigin dómgreind og dugnað. Einkennilega stífur var hann á meiningunni, er hann hafði tekið eitthvað í sig. Þegar hann hafði horft í kring og litið á áttavitann, settist hann fremur þyngslalega á há- gluggann yfir salnum og sneri sér að mér og sagði: „Jæja, stýrimaður nú gengur það betur. Ég tel víst að við náum fyrir Northumberland- höfðann í þessum slag“. Með því að það hafði ekki orðið nokkur breyt- ing á vindstöðunni, var mér alveg ljóst að þetta var ómögulegt, og að hætta var framundan, svo að ég svaraði: „Ég get ekki séð að það takist, hann hlýtur að vera nálega 30 mílur á kulborða“. „Mér er alveg sama þó hann væri 100 mílur á kulborða, stýrimaður, við náum fyrir hann í þessum slag, mér er alveg sama hvað sem hver segir“. Þar sem hann hafði nú fengið þessa flugu í höfuðið að skipið næði fyrir áminnstan höfða á þessum bóg, og var auðsjáanlega alvara, var mér ljóst að við mundum lenda í hættu, nema mér tækist að sannfæra hann um þessa skekkju. Eftir útreikningi mínum af stjörnumiðunum, var ég fullkomlega viss um að við værum ennþá 30 mílur vestanverðu við höfð- ann, og ég sagði honum það. „Ástæðan er sú“, sagði ég, „að þegar við síðast ventum frá landi, Brot framundan. VlKINGUR 124
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.