Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Page 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Page 24
OPNA STYRIMANNASKÖLANS Ferð til Keflavíkurflugvallar Um miðjan febrúar s. 1. skrif- aði formaður skólafélagsins til yfirmanns varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli og spurði, hvort stjórn skólafélagsins mætti koma í heimsókn á flugvöllinn. Hafði hann áhuga á að fá að skoða bj örgunarþyrluna, slökkvistöð- ina, radarstöðina í Rockville og ef til vill eitthvað fleira. Eftir u.þ.b. mánuð kom svar frá yfirmanni varnarliðsins. Kom svarið á föstudeginum fyrir páska, þ.e.a.s. alveg er prófum í I. bekk og II. farm. var að ljúka. I bréfinu sagði yfirmaður varnarliðsins að stjórn skólafélagsins væri vel- komin í heimsókn á flugvöllinn, og þyrftum við aðeins að hafa samband við Commander A. N. Kline, en hann mun vera yfir- maður þeirrar deildar, sem sér um heimsóknir á flugvöllinn. Var strax haft samband við hann, og samdist svo um að heimsóknin yrði eftir hádegi mánudaginn 27. marz, en þá um morguninn var einmitt síðasta prófið hjá I. bekk og II. bekk farm. Þegar Comm- ander Kline, spurði hvernig við ætluðum að koma til Keflavíkur- flugvallar, var því svarað að við ætluðum að koma á eigin bílum. Sagði þá Commander Kline, að það væri slæmt vegna þess að þeir ætluðu að veita okkur smá hressingu. Samdist þá þannig, að þeir útveguðu okkur rútu til far- arinnar. Á mánudeginum kom svo rút- an. Upphaflega hafði verið ráð- gert að ferðin væri einungis fyr- ir stjórn skólafélagsins, en vegna þess að ferðin var ákveðin með svo stuttum fyrirvara, mætti ekki nema helmingurinn af stjórninni við brottför. Voru þá í snarhasti gripnir nokkrir nærstaddir menn þar á meðal formaður skólafél- ags Vélskólans. Með í förinni var einnig Þórarinn Jónsson kennari í Stýrimannaskólanum, en hann aðstoðaði okkur mjög mikið í sambandi við bréfið til yfirmanns varnarliðsins. Þess má auk þess geta, að Þórarinn var liðsforingi í brezka hernum í síðasta stríði. Var nú haldið af stað og komið til Keflávíkurflugvallar um kl. 2 og var okkur fyrst ekið í yfir- mannaklúbbinn. Þar tók á móti okkur Marshall Thayer, en hann talar allgóða íslenzku og það mun raunar hafa verið hann, sem þýddi textann í Keflavíkurút- varpið þegar verið var að sýna „Huldubyggð á heiðinni“ í ís- lenzka sjónvarpinu. Ekki talar Marshall Thayer íslenzku eins og innfæddur og spurði hann okkur að því hvort við vildum að hann talaði ensku við okkur. Var því eindregið hafnað með þeim um- mælum, að það væri ekki svo oft sem íslendingar heyrðu útlend- inga tala íslenzku. f yfirmanna- klúbbnum voru okkur sýndar tvær kvikmyndir um herstöðina og hlutverk hennar. Að kvik- myndasýningunni lokinni var far- Þessa mynd tók Guðmundur Iiaraldsson III-bekk fyrir framan yfirmannaklúbb- inn af þeim, sem fóru til Keflavíkurflugvallar. Talið frá vinstri: Ragnar Her- mannsson II-B fiskim., Ólafur Ársælsson II-B farm., Einar Guðmundsson I-B, Gunnar Ásgeirsson II-B farm., Jón Gunnar Guðmundsson I-D, Commander A. N. Kline, Þórarinn Jónsson kennari, Halldór Halldórsson form. skólafélagsins, Haf- steinn Viðar Ásgeirsson II-A fiskiin. og Ásgeir Guðnason form. skólafélags Vélskólans. 136 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.