Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Qupperneq 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Qupperneq 25
Við Rockville. Þar var okkur ekki leyft að taka neinar myndir innan dyra. ið með okkur til slökkvistöðvar- innar, en eins og kunnugt er, hef- ur slökkviliðið á Keflavíkurflug- velli fengið mörg verðlaun fyrir ýmislegt í sambandi við slökkvi- störf og eldvarnir. Það var slökkviliðsstjórinn sjálfur, sem sýndi okkur stöðina og greindi frá starfsemi hennar. Sagði hann okkur allnáið frá starfsemi stöðvarinnar svo og frá hinum sérstöku verkefnum henn- ar, t. d. vegna sprengj uþotanna. Einnig var hann spurður spjör- unum úr s. s. af hverju sumir slökkvibílarnir væru rauðir en aðrir gulir, en það mun vera af því gulir bílar sjást betur á flug- brautunum en rauðir. Var mjög skemmtilegt að skoða slökkvi- stöðina. Að lokinni heimsókninni í slökkvistöðina var haldið til stóra flugskýlisins, til að skoða björgunarþyrluna. Hana skoðuð- um við undir leiðsögn W. R. Haskett þyrlustjóra. Var okkur m. a. sýnd sérstök karfa, sem slakað er niður úr þyrlunni, til þess að bjarga mönnum, sem fljóta á sjónum, en eru þó orðn- ir svo máttfarnir, að þeir geta ekki sett utan um sig bjarghring. Þessari körfu er slakað aðeins niður fyrir yfirborðið og veltir Nei, þetta er ekki bandarískur þyrlu- stjóri. Þetta er Halldór form. skóla- félagsins. þá sá, sem er verið að bjarga, sér inn í körfuna og er síðan hífður upp í þyrluna. Það mun hafa ver- ið samskonar karfa, sem var not- uð við að bjarga flugmanninum, sem nauðlenti á ytri höfninni við Reykjavík s. 1. vetur, en þess má auk þess geta, að það var einmitt Haskett sem þá var þyrlustjóri. Var mjög fróðlegt að skoða þyrl- una og hin ýmsu bj örgunartæki henni viðkomandi. Eftir að hafa skoðað þyrluna var haldið til Rockville, en eins og kunnugt er, er stór radarstöð þar. Það fyrsta sem sagt var við okkur þar var, að við mættum ekki taka neinar myndir inni í stöðinni. Var nú haldið í stöðina. Þegar inn var komið, var farið með okkur inn í aðra af hinum stóru hvelfingum, sem radar- skermarnir eru í, og þaðan í aðal- tækjasalinn, sem er nokkurs kon- ar taugamiðstöð herstöðvarinnar. Þar er fylgzt með öllum flugferð- um í kringum ísland, og það mun vera þar sem fyrst verður vart við rússneskar flugvélar sem nálgast landið. Sem við stóðum þarna og horfðum yfir alla radar- ana varð okkur hugsað til þess að þetta höfðum við séð fyrr. En sú var breytingin, að hér náðu Við slökkvistöðina. radarnir nokkur hundruð mílna radíus, en við höfðum stærsta séð 64 mílna radar áður. Einn- ig varð okkur hugsað til tækja- kennslunnar í skólanum. Ef við hefðum átt að gera við einhvern radarinn þarna, hefðum við þurft að vera í nokkur hundruð ár í Stýrimannaskólanum. Að lokinni heimsókninni til Rockville var farið með okkur aftur til yfirmannaklúbbsins á flugvellinum, og var nú boðið upp á hressingu. Vorum við heiðraðir sérstaklega, því að farið var með okkur í herbergi sem hét „V.I.P. ROOM“, en V.I.P. mun þýða „very importantpersons“. Var nú setið yfir bjór til kvölds og málin rædd. Um sexleytið var loks hald- ið til Reykjavíkur eftir mjög ánægjulega heimsókn til Kefla- víkurflugvallar. Til Reykjavíkur var komið um sjöleytið. Á leið- inni í bæinn hafði bílstjórinn m. a. verið spurður að því, hvar næsta herstöð væri, en þær munu, því miður ekki vera fleiri hér á landi. Þegar komið var til Reykjavíkur, héldu sumir áfram gleðinni heima hjá formanni skólafélagsins, en síðan var far- ið í Naustið, Röðul og endað í Þórscafé. VlKINGUR 137

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.