Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Blaðsíða 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Blaðsíða 28
A frívaktinni Þekktur enskur prestur Brom- field að nafni ferðaðist víða um lönd. Eitt sinn var hann staddur í Suðuramerískum smábæ. Einn morguninn sá hann dauðan asna liggja á gangstéttinni. Presturinn hringdi þegar í heilbrigðisyfirvöldin, kynnti sig og bað þau að fjarlægja asnann. „Við héldum nú, að prestarnir sæu um hina dauðu, svaraði háðs- leg rödd í símanum. „Það gerum við reyndar,“ svar- aði séra Bromfield að bragði. „En við tölum alltaf fyrst við nánustu ættingja þeirra.“ * Tvær yfirspenntar og hyster- iskar konur mættust í dyrunum hjá geðlækni. „Er ég að koma eða fara, spurði önnur. „Ef ég vissi það nú,“ svaraði hin, „þá væri ég alls ekki hér.“ * Eldri kona, sem var í þann veginn, að stofna hænsnabú, hringdi í landbúnaðarráðuneytið og spurði hversu lengi hún ætti að hafa hanann inni hjá hænun- um. „Aðeins andartak," svaraði stúlkan við skiptiborðið. „Þakka yður kærlega fyrir“, svaraði sú gamla og lagði tólið á. * „Hvers vegna í ósköpunum hafið þér orðið svona magaveik- ur.‘“ spurði læknirinn. „Jú, skiljið þér, að ég er nefni- lega prófdómari í matreiðsludeild húsmæðraskólans." Andvarp föðurs, sem á ein- býlishús, bíl, sumarbústað, hefur allskonar tryggingar og á þrjú börn í framhaldsskóla. „Ef fjöl- skyldan á að geta lifað áfram með öllum þessum kostnaði, hefi ég alls ekki efni á því að deyja á eðlilegan hátt. Það verður að ske slys.“ — Hvar sögðust þér hafa skotið þetta tígrisdýr? — Við verðum að taka með okkur smáminjagrip. Heimilishjal. Áður fyrr varstu vanur að halda í hendina á mér, sagði kon- an við mann sinn, þar sem þau lágu saman í rúminu. Hann teygði út handlegginn og greip í hönd hennar. „Svo varstu líka vanur að kyssa mig.“ Maðurinn sneri sér að henni, rak henni rembings- koss, en velti sér síðan aftur á hina hliðina til að sofa. „Svo beitztu mig líka stundum í eyrað,“ hélt konan áfram. Mað- urinn rauk uppúr rúminu og ætlaði fram í baðherbergið. „Hvert ertu að fara, maður hrópaði konan. „Sækja tennurnar mínar!“ Læknisráð. Þegar ég yrki kvæði seint á kvöldin hr. læknir, sofna ég sjaldan fyrr en undir morgun, „Eg á ódýrt og óbrigðult með- al við þessu,“ svaraði læknirinn. „Lesið það, sem þér hafið orkt.“ # « Sigurður gamli varð hálfátt- ræður og eftir veizluna kom ungi presturinn til hans og dáðist að, hve hann væri unglegur í útliti og spurði hvernig hann hefði far- ið að því að halda sér svona vel. „Það skal ég segja þér sonur sæll.“ Ég hefi haft það fyrir reglu, þegar konan mín hefir byrjað að rífast, þá hefi ég gripið hattinn minn og fengið mér langan göngutúr. Og þú getur rétt í- myndað þér hve miklu af heil- næmu lofti ég hefi notið í þessi 50 ár, sem við höfum verið gift.“ VlKINGUR 140
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.