Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Blaðsíða 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1972, Blaðsíða 42
stóru fjöldagröf. Þú munt kom- ast að raun um, að hún er vel girt og vel við haldið. Þú munt sjá stóra minnismerkið með hvítu dúfunni sem horfir niður á þriggja álna jarðarblettinn, þar sem útlendu sjómennimir hvíla. Fólkið á ströndinni mun sýna þér staðinn þar sem fómarlömb- in í þessum Norðursjávar-sorg- arleik sofa síðasta svefni sínum. Mér hefir tekist að fá vitn- eskju um hvar áminnst gufuskip strandaði og nafn þess. Það hlýt- ur að hafa verið „Stanley" frá Bergen, sem sigldi á land við Bovbjerg þann 22. desember 1894 kl. 5 að morgni. Annan bát- inn rak við Viksö en hinn við Lildstrand. Á síðarnefnda staðn- um synti þessi eini maður sem af komst í land, og þar fundu leit- armenn hann, hinir 15 fórust. í gömlu fregninni frá 1894 er þannig sagt frá: Aðalorsökin til þess að svona hörmulega tókst til við þetta skipsstrand liggur í því, að skipverjar biðu ekki eftir hjálp björgunarsveitarinnar, en reyndu að bjarga sér á skips- bátunum, en það tekst mjög sjaldan við aðstæður eins og þama voru fyrir hendi. Ástæðan til þess að skipið strandaði var straumstefna sem menn gerðu ekki ráð fyrir og dimmviðri. Þýtt eftir danska tímaritinu „Vikingen“. Hallgr. J. Athyglisverður málflutningur í FYRIRSPURNARTÍMA í sænska ríkisþinginu þ. 6. des. 1971, tók ríkisþingmaðurinn Georg Áberg til orða og mælti eitthvað á þessa leið: Síðan í árs- byrjun 1971 hafa íslendingar rætt um útfærslu f.skveiðiland- helgi sinnar úr 12 í 50 sjómílur, og eitt af fyrstu framkvæmdum núverandi ríkisstjórnar, eftir að hún kom til valda, var að til- kynna hlutaðeigandi ríkisstjóm- um að frá og með september 1972, verði fiskveiðitakmörkin færð úr 12 í 50 sjómílur frá grunnlínum. Vissulega mætti líta svo á, að þetta hefði ekki mikil áhrif á sænskar fiskveiðar, með því að þeir veiða nú orðið fremur lítið við strendur íslands. En reynslan af hinni mislukkuðu hafréttar- ráðstefnu árið 1960 og síðar, benda þó til þess, að jafn skjótt og eitt landið færir út fiskveiði- landhelgislínu sína, koma önnur lönd á eftir. Má benda á að 12 mílna fiskveiði landhelgin er nú viðurkennd og komin í fram- kværnd hjá öllum löndunum sem liggja að Norðursjónum. Fiskimannafélögin í Noregi eru þegar farin að ræða um og gera kröfur til, að 50 mílna land- helgin verði tekin þar upp jafn- skjótt og íslendingar hrindi á- ætlunum sínum í framkvæmd. Verði slík stækkun á landhelgi Noregs framkvæmd, verður hún eflaust tekin upp af öðrum lönd- um sem liggja að Norðursjó og Eystrasalti. Aðliggjandi veiði- Ef Norðmenn, Danir og Bretar fylgja fordæmi Islendinga að færa út sína fisk- veiðilögsögu í 50 sjómílur, þrengist æði mikið um frjáls veiðisvæði í Norður- sjónum. Beltið milli Noregs og Shetlandseyja verður aðeins 65 sjómílna breitt. Myndin sýnir hvað eftir verður af frjálsum veiðisvæðum þar um slóðir. 154 VlKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.