Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.08.2009, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 29.08.2009, Qupperneq 4
4 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR Akureyrarvaka hófst í gær, föstudag, en ekki á fimmtudag eins og ranglega var sagt í Fréttablaðinu. Rétt er að taka fram vegna fréttar í Fréttablaðinu síðastliðinn mánudag um að tekið væri á biðlista fyrir vorönn Hússtjórnarskólans, að ekki er kominn biðlisti fyrir vorönn. Biðlistinn er fyrir haustönn sem hafin er. LEIÐRÉTTINGAR ALÞINGI Frumvarp fjármálaráð- herra um ríkisábyrgð lána vegna Icesave-samninganna við Breta og Hollendinga var samþykkt á Alþingi í gær með atkvæðum þing- manna stjórnarflokkanna. Stjórnarandstæðingar voru ýmist á móti eða sátu hjá. Einn var fjarstaddur. Þingmenn Framsóknar flokksins, níu að tölu, greiddu atkvæði gegn frumvarp- inu. Það gerðu líka Þráinn Bertels- son, þingmaður utan flokka, þing- konur Borgarahreyfingarinnar, þær Birgitta Jónsdóttir og Mar- grét Tryggvadóttir og tveir þing- menn Sjálfstæðisflokksins, Árni Johnsen og Birgir Ármannsson. Aðrir Sjálfstæðisflokksþing- menn sátu hjá, sem og Þór Saari, Borgarahreyfingunni. Sjá lfstæðismenn greiddu almennt atkvæði með þeim breyt- ingatillögum sem meirihluti fjár- laganefndar gerði við frumvarp- ið. Með því lýstu þeir stuðningi við breytingarnar – enda áttu þeir þátt í þeim – en á hinn bóginn vísuðu þeir ábyrgð á málinu í heild á ríkis- stjórnina og sátu því hjá við loka- afgreiðsluna. Ráðherrar og stjórnarþingmenn kölluðu alla tíð eftir breiðri pólit- ískri samstöðu um málið enda töldu þeir það styrkja málstað Íslendinga. Með hjásetu þorra sjálfstæðis manna og andstöðu eða hjásetu Borgarahreyfingarþing- manna urðu þær vonir að engu. Næst á dagskrá ríkisstjórnar- innar er að kynna Bretum og Hol- lendingum nýju lögin með form- legum hætti og sannfæra þá um að skynsamlegt sé að fallast á fyrir- vara þingsins. bjorn@frettabladid.is / sjá síðu 14 Von stjórnarliða um breiða samstöðu brást Icesave-málið var samþykkt með atkvæðum stjórnarþingmanna. Stjórnvöld taka upp viðræður við Breta og Hollendinga um framhaldið. Þingi var frestað í gær. NIÐURSTAÐAN LJÓS Margvísleg svipbrigði mátti sjá á andlitum þingmanna eftir Icesave-atkvæðagreiðsluna. Þingi hefur verið frestað til 1. október. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA UTANRÍKISMÁL Breskir og hollensk- ir fjölmiðlar bregðast af varfærni við samþykkt Alþingis á ríkis- ábyrgð vegna Icesave-samnings- ins. Því er fagnað að Íslendingar hafi samþykkt að greiða skuldina, en bent er á þá óvissu sem fylgi skilyrðum Alþingis. Í breskum fjölmiðlum er vitn- að í yfirlýsingu breska fjármála- ráðuneytisins, þar sem segir: „Eins og búast má við mun Bret- land skoða vandlega öll skilyrði sem sett eru á lánið og ganga úr skugga um að þau séu sann- gjörn.“ Talsmaður ráðuneytisins segir þó að samþykki Alþingis sé „mikilvægt og jákvætt skref fram á við“. Talsmaður hollenska fjár- málaráðuneytisins segir einnig að samþykki Alþingis sé „mjög jákvætt“, en hollensk stjórnvöld ætli nú að ræða skilyrðin við íslensk stjórnvöld. Bæði breskir og hollenskir fjöl- miðlar vitna í orð Jóhönnu Sig- urðardóttur um að ríkis ábyrgð Icesave samningsins sé „stærsta fjármálaskuldbinding sem íslenska ríkið hefur nokkru sinni tekið á sig“. „Ísland lætur undan“ er fyrir- sögn viðskiptafréttamiðilsins Forbes, þar sem segir að með samþykkt ríkisábyrgðarinnar sé niðurstaða komin í margra mán- aða deilur á Íslandi. - gb Bresk og hollensk stjórnvöld fagna Icesave-ábyrgð Alþingis: Næst er að skoða skilyrðin VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 29° 19° 22° 15° 15° 20° 21° 20° 17° 18° 28° 22° 27° 33° 15° 22° 33° 18° 10 8 8 8 8 10 11 12 16 13 6 8 10 8 10 5 6 8 10 4 8 8 Á MORGUN 8-15 norðvestan og vestan til, annars 5-8 m/s. MÁNUDAGUR 8-13 m/s. 13 6 8 9 12 10 10 6 8 8 BJART SYÐRA Framan af degi verður fremur stíf norðan átt, 8-13 m/s, hvassast norðvestan og vestan til. Lægir víðast smám saman í dag en bætir heldur í vind austast á landinu með kvöldinu. Þurrt sunnan og vestan til með nokkuð björtu veðri á sunnanverðu landinu. Norðanlands verður rigning lengst af í dag en norðan til á Vestfjörðum og á austanverðu landinu verður úrkomulítið. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur DARLING OG BROWN Fjármála- og forsætisráðherra Bretlands þurfa nú að skoða fyrirvara Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÞÝSKALAND, AP Verona Becker, fyrrverandi liðsmaður í Rauðu herdeildinni, hryðjuverka- samtökum vinstri róttæklinga jafnan kenndum við Baader og Meinhof, var handtekin í Þýska- landi á fimmtudag, tuttugu árum eftir að forseti landsins náðaði hana. Fundist hafa nýjar sannanir, byggðar á greiningu erfðaefn- is, sem tengja hana við mannrán og manndráp sem átti sér stað 7. apríl 1977. Samtökin rændu þá saksóknaranum Siegfried Buback, og fóru leikar þannig að Buback var myrtur. Becker var handtekin stuttu eftir morðið, en ekki voru nægar sannanir gegn henni þá. Hún hlaut hins vegar dóm þá fyrir aðrar sakir. - gb Liðskona RAF-samtakanna: Handtekin á ný í Þýskalandi VERENA BECKER Náðuð fyrir tuttugu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNSÝSLA Valnefnd hefur lagt til að séra Jóna Kristín Þorvalds- dóttir, bæjar- stjóri í Grinda- vík, verði skipuð sóknar- prestur í Kol- freyjustaðar- prestakalli. Jóna Kristín hefur verið bæjarstjóri í Grindavík frá því í júlí í fyrra. Hún mun sinna starfinu áfram næstu mánuði. Þrír umsækjendur voru um embættið en einn þeirra dró umsókn sína til baka. Biskup Íslands skipar í emb- ættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Níu manns úr prestakallinu voru í valnefnd- inni ásamt prófasti Austfjarða- prófastdæmis. - þeb Kolfreyjustaðarprestakall: Bæjarstjóri verði sóknarprestur JÓNA KRISTÍN ÞORVALDSDÓTTIR SJÁVARÚTVEGUR Kvótakerfi með framseljanlegum aflaheimildum er lykillinn að árangursríkri fisk- veiðistjórnun, segir Gordon R. Munro, hagfræðiprófessor við háskólann í Bresku Kolumbíu. Við upptöku þess fyrirkomulags við stjórnun fiskveiða fyrir rúmum áratug urðu alger umskipti til hins betra í útgerð í Bresku Kolumbíu í Kanada. Sjávar útvegur í fylkinu var þá nánast kominn í þrot. Frá þessu er sagt á heimasíðu LÍÚ. Þessa skoðun setti Munro fram á ráðstefnu um skilvirka fiskveiði- stjórnun sem hófst í Reykjavík í gær. Ráðstefnan er haldin af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fyrir hönd sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneytisins. - shá Sjávarútvegsmál í Kanada: Forðuðu hruni með kvótakerfi SJÁVARÚTVEGSMÁL Mjög rólegt var yfir veiðum erlendra skipa í íslenskri lögsögu í júlímánuði. Tvö færeysk skip voru á línuveiðum og var heildaraflinn rúmlega 102 tonn. Þorskaflinn var aðeins rúm- lega fjögur tonn. Enn fremur til- kynntu færeysk skip um 170 tonna síldarafla úr lögsögunni. Botnfiskafli færeyskra skipa í lögsögunni fyrstu sjö mánuði árs- ins er kominn upp í 1.697 tonn, sem er nokkuð minni afli en á sama tíma í fyrra þegar hann var 2.296 tonn. Færeysk skip hafa nú nýtt tæplega 33 prósent af þeim aflaheimildum sem þau hafa til ráðstöfunar í botnfiski. - shá Veiði á Íslandsmiðum: Lítil veiði erlendra skipa GENGIÐ 28.08.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 233,4429 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,46 126,06 204,75 205,75 180,02 181,02 24,181 24,323 20,864 20,986 17,72 17,824 1,3354 1,3432 196,09 197,25 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.