Fréttablaðið - 29.08.2009, Síða 12

Fréttablaðið - 29.08.2009, Síða 12
12 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR STJÓRNSÝSLA Ellefu sóttu um stöð- ur þriggja sérstakra saksóknara sem ætlað er að starfa við hlið Ólafs Þórs Haukssonar við rann- sóknina á bankahruninu. Umsækjendurnir eru: 1. Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur og staðgeng- ill lögreglustjórans á Suður- nesjum. 2. Arnþrúður Þórarinsdóttir, aðstoðarsaksóknari hjá lög- reglustjóranum á höfuðborgar- svæðinu. 3. Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá ríkissaksóknara. 4. Eyjólfur Ármannsson, sak- sóknarfulltrúi hjá efnahags- brotadeild ríkislögreglustjóra. 5. Guðfinna Jóhanna Guðmunds- dóttir héraðsdómslögmaður. 6. Guðmundur Kristjánsson hæstaréttarlögmaður. 7. Hólmsteinn Gauti Sigurðs- son, lögfræðingur yfirstjórn- ar LRH og aðstoðarsaksóknari embættis sérstaks saksóknara. 8. Hulda María Stefánsdóttir, fulltrúi ríkissaksóknara. 9. Jón Magnússon, hæstaréttar- lögmaður og fyrrverandi alþingismaður. 10. Kristín Björg Pétursdóttir hér- aðsdómslögmaður. 11. Ragnheiður Jónsdóttir lög- fræðingur. Saksóknurum fjölgar: Ellefu sóttu um stöðurnar þrjár ELDUR Í GILI Skógareldur blossaði upp í gili rétt fyrir utan Los Angeles í vikunni, þar sem veður hefur verið þurrt og kyrrt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL „Þetta er hið furðu- legasta mál,“ segir Tinna Þor- valdsdóttir, sumarbústaðar eigandi í Grímsnesi, um dularfullan þjófnað á gluggum og hurðum úr bústaðnum. Svo virðist sem ein- hver hafi fengið fagmenn til að fjarlægja úr húsinu tvær hurðir og þrjá glugga, bæði gler og karma, og flytja á brott með sér. Tjón- ið nemur hundruðum þúsunda króna. Tinna og maðurinn hennar tóku bústaðinn nýverið upp í söluverð á íbúð sinni og hugðust reyna að selja hann sem fyrst. Hann var þá fokheldur og hafði staðið auður svo mánuðum skipti. Þegar hugsan legir kaupendur fóru að skoða bústaðinn í vikunni kom- ust þeir að því bústaðurinn var alls ekki fokheldur – í hann vant- aði allar útihurðir og þrjá glugga þar að auki. Tinna og maður hennar hafa haft samband við alla sem eitt- hvað kynnu að vita um málið – fyrrverandi eigendur, iðnaðar- menn, þann sem flutti húsið inn og fasteignasala – án árangurs. „Ýmislegt dettur manni í hug, en ekki að einhver taki bara bústað- inn í burtu í bitum,“ segir Tinna. Augljóst sé að fagmenn hafi verið að verki. Allur frágangur sé góður og gluggarnir hafi greinilega ekki verið rifnir úr með offorsi. Þá séu sumar einingarnar sem hurfu gríðarstórar og margra manna tak, til dæmis sé svalahurðin 320 sinnum 220 sentimetrar. Mikið farartæki hafi þurft til að koma varningnum af vettvangi. Hjónin hafa kært hvarfið til lög- reglu. Tinna biðlar til þeirra sem kunna að vita um afdrif húshlut- anna að gefa sig fram og segist jafnvel tilbúin til að borga fund- arlaun. stigur@frettabladid.is Stálu gluggum og hurðum úr bústað Bíræfnir þjófar stálu þremur gluggum og tveimur hurðum úr fokheldum sumar- bústað í Grímsnesi. Talið er að tjónið nemi hundruðum þúsunda króna. FYRIR Inn um þennan glugga má sjá svalahurðuna sem hvarf, og glugga á móti, sem einnig var tekinn. EFTIR Þar sem svalahurðin var áður er nú ekkert nema plast- dúkur. SUMARBÚSTAÐURINN Eigendurnir hafa kært þjófnaðinn til lögeglu. ASKUR ANDVAR I ANDVAR I Andar vel. Vindheldur og vatnsfráhrindandi. Handþrjónuð húfa úr 100% Merino ull. Handþrjónuð derhúfa úr 100% Merino ull. jakki húfa derhúfa Verð: 3.900 kr. Verð: 4.800 kr.Verð: 13.500 kr. ALÞINGI Forræði yfir Seðlabanka Íslands flyst úr forsætisráðuneyt- inu í viðskiptaráðuneytið hinn 1. september. Öðlast ráðuneytið um leið heitið efnahags- og viðskipta- ráðuneyti. Við það tækifæri flytj- ast þangað öll verkefni stjórnar- ráðsins á sviði efnahagsmála sem nú eru vistuð í öðrum ráðuneyt- um. Lög um tilfærslu verkefna innan stjórnarráðsins voru eitt af loka- verkefnum sumarþingsins sem lauk í gær. Með þeim breytast heiti fjögurra ráðuneyta. Áður er getið um efna- hags- og viðskiptaráðuneytið en jafnframt verða til dómsmála- og mannréttindaráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðuneyti. Undir dómsmála- og mann- réttindaráðuneytið færast fram- kvæmd sveitarstjórnarkosninga og neytendamála og Fasteignaskrá ríkis ins. Hagræði og samræming er ástæða tilfærslunnar. Málefni nokkurra hlutafélaga í eigu ríkisins færast í fjármálaráðu- neytið, þar á meðal Ríkisútvarpsins. Þá færast nokkur menningar- verkefni úr forsætisráðuneytinu í mennta- og menningarmálaráðu- neytið, til dæmis Þjóðmenningar- húsið og Gljúfrasteinn. - bþs Ráðuneyti fá ný heiti með tilflutningi verkefna og áherslubreytingum í störfum: Seðlabankinn undir viðskiptaráðherra RÁÐHERRAR Verkefni flytjast á milli ráðuneyta á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.