Fréttablaðið - 29.08.2009, Page 41

Fréttablaðið - 29.08.2009, Page 41
www.fas.is • fas@fas.is • 4708070 www.fas.is • fas@fas.is • 4708070 Fjarnám í skipstjórn. Boðið verður upp nám á A-stigi skipstjórnar, sem hefst í haust. Námið er 46 einingar og dreifi st á 6 annir. Kennsla fer fram í gegnum netið og í lotum. Umsóknarfrestur er til 30.ágúst og kynningarfundur í Tækniskólanum 4. september. Upplýsingar og umsóknir í síma 4708070 og fas@fas.is Skólameistari Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Ætlunin er að vera með mismun- andi gerðir flugdreka og miðla smá fróðleik um flugdrekaflug og fleira sem viðkemur þessu sporti. Sýningin er alger frumraun en ég vona að einhverjir mæti með sína dreka,“ segir Guðmundur þegar forvitnast er um framlag hans til Akureyrarvökunnar. Flugdrekar eru eitt af hans áhugamálum sem hann ætlar að gefa fleirum hlut- deild í. Skyldi hann vera laginn við að búa þá til sjálfur? „Ég hef ekki gert mikið af því. Hef aðal- lega dundað við að fljúga tveggja og fjögurra línu flugdreka. Fjög- urra línu drekar eru lítið þekktir hér á landi en með þeim er hægt að gera miklar kúnstir. Ég á tvo sem ég verð með í dag ef veður leyfir.“ Guðmundur kveðst hafa leikið sér talsvert með flugdreka sem strákur og haft mjög gaman af. „Ég átti flottan tveggja línu dreka sem ég keypti í Leikfangaverslun Sigurðar Guðmundssonar á Akur- eyri eða hjá Sigga Gumm eins og hann var kallaður. Svo kom langt hlé, eða þar til sumarið 2003 er ég var í útilegu og þar voru krakkar með flugdreka. Þá kviknaði áhug- inn aftur. Þegar ég fór að skoða erlendar netsíður komst ég að því að þetta er fjölþætt áhugamál sem höfðar til margra. Sumir eru í hönnun, saumaskap og smíði flug- dreka. Aðrir eru að keppa í margs konar þrautum, fljúga mynst- ur, jafnvel margir saman. Sumir senda myndvélar upp með drek- unum til að taka myndir af svæð- um sem erfitt er að koma öðrum tækjum að. Það er svo margt hægt að finna í þessu sporti,“ segir Guð- mundur sem sjálfur heldur úti vef- síðunni www.kite.is sem snýst um dreka og flug. Hann telur flug- drekagerð upplagt verkefni fyrir skólabörn og fleiri áhugasama og dreymir um að afrakstur slíks vetrarföndurs fari á loft á Akur- eyrarvökunni að ári. Vonandi fá Akureyringar gott veður í dag fyrir sín hátíðahöld. Hversu mörg skyldu óskavindstigin vera fyrir flugdreka? „Það fer eftir efninu í þeim. Sumir sem búnir eru til úr geim- aldarefnum, eins og kolefnatrefj- um og léttnæloni geta flogið í mjög litlum vindi en svo er hægt að fá flugdreka sem þurfa mikinn vind. Mínir drekar kjósa helst fimm metra á sekúndu og upp úr.“ gun@frettabladid.is Fljúga skal flugdrekinn hátt upp í himininn Guðmundur Sverrisson kerfisfræðingur getur valið úr menningarviðburðum á Akureyrarvökunni nú um helgina. Sjálfur stendur hann fyrir flugdrekasýningu í dag milli 14 og 16 sunnan við Verkmenntaskólann. „Með fjögurra línu drekunum er hægt að gera miklar kúnstir,“ segir Guðmundur kampakátur. MYND/HEIDA.IS GÖNGUVIKA stendur yfir í Dalvíkurbyggð og lýkur 3. september. Hún er nú haldin í þriðja sinn en Sportferðir ehf. og Ferðatröll, hagsmunasamtök ferðaþjónustuaðila í Dalvíkurbyggð, standa að henni. Farnar verða tvær göngur á dag; önnur er fyrir vanari göngugarpa en hin er öllu léttari. Sjá www.dalvik.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.