Fréttablaðið - 29.08.2009, Side 43

Fréttablaðið - 29.08.2009, Side 43
LAUGARDAGUR 29. ágúst 2009 3 Starfsemi er að hefjast að nýju í Kvennaskólanum á Blönduósi sem á sér nær hundrað ára merka sögu. Þar hefur Textílsetur Íslands hreiðrað um sig. Markmið þess er að þeir sem áhuga hafa geti komið saman við handíðir án þess að hafa áhyggjur af amstri hversdagsins. Í þeim anda verða þar fjölbreytt og fróðleg námskeið dagana 24. til 27. október. Ragnheiður Eiríksdóttir mun halda fyrirlestra um prjón og kenna prjóntækni með spenn- andi útfærslum sem byggir á hug- myndafræði Elizabeth Zimmerman prjónagúrús. Edda Lilja sem er að prjóna 52 húfur á 52 vikum verður með hugmyndasmiðju í anda þessa verkefnis og einnig verða nám- skeið í hekli, bæði rússnesku og venjulegu, sem og gimbi og spuna á halasnældur. Um hálfs dags nám- skeið er að ræða svo nemendur hafi tækifæri til að fara á milli. Allt þetta upplýsir Ásdís Birgis- dóttir framkvæmdastjóri. Hún segir þetta aðra námskeiðalotu setursins. Sú fyrsta hafi verið í júní síðast- liðnum. Þá hafi nemendur tálgað, kniplað, baldýrað og prjónað. „Það var setið í hverju horni við vinnu, auk þess að skrafa um daginn og veginn en ekki síst um sameigin- legt áhugamál allra, handverkið,“ segir hún glaðlega. „Svo var bros- að og dæst yfir dásamleika þess að sitja í ró og næði í þessu sögulega húsi sem ber með sér andblæ liðins tíma.“ gun@frettabladid.is Sumarhópurinn heimsótti Erlend Magnússon útskurðarmeistara og þessi mynd var tekin við það tilefni. Spunnið á halasnældu, heklað og gimbað Allir sem áhuga hafa á heimilisiðnaði og handverki eru velkomnir á haustnámskeið Textílseturs Íslands á Blönduósi sem verða haldin í lok október. Áherslan verður einkum lögð á prjón, hekl, gimb og spuna. Knipl er kúnst sem gaman er að kunna.Faldbúningapilsin eru fín. Nemendur sumarnámskeiðsins spá og spekúlera. MYND/ÁSDÍS HÚSSTJÓRNARSKÓLINN er með aðsetur í einu fallegasta húsi borgarinnar við Sól- vallagötu 12, 101 Reykjavík. Námið í skólanum er ein önn sem hefst að hausti eða vori og er metið til 24 eininga. Sjá www.husstjornarskolinn.is. Undraheimur Þing- valla er tveggja kvölda námskeið sem Endur- menntun Háskóla Íslands heldur 8. og 10. september. Þar verður fjallað um söguna, jarðfræð- ina, lífríki vatnsins og heimsminjaskrána og sérfræðingar þessara fjögurra fræðasviða sjá um kennsluna. Þetta gæti verið snið- ugt námskeið fyrir þá sem vilja gera næstu Þingvallaferð að nýrri upplifun. www.hi.is Útsala • Úlpur • Kápur • Jakkar Glæsilegar yfirhafnir. 50% afsláttur Kennt í Reykjavík 25. - 28. september Uppl. í síma 496-0769 og 897-7469 • Margeir Auður Ingibjörg Konráðsdóttir Heilsukokkur heldur matreiðslu- námskeið fyrir fólk sem hefur áhuga á hollum og góðum mat. Áhersla verður lögð á grænmeti og hvernig má gera holla, gómsæta og budduvæna rétti án mikillar fyrirhafnar. Nánari upplýsingar í síma 823-8000 og á www.heilsukokkur.com HOLLT OG HAGKVÆMT Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.