Fréttablaðið - 29.08.2009, Side 45

Fréttablaðið - 29.08.2009, Side 45
 Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441 www.alcoa.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /A L C 4 70 96 0 8/ 09 Álver Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð er eitt af þeim fullkomnustu í heiminum og mikið hefur verið lagt upp úr því að búa til góðan og öruggan vinnustað. Starfsmenn fá hollan mat í glæsilegu mötuneyti og boðið er upp á akstur til og frá vinnu. Hjúkrunarfræðingar og læknir sinna heilsuvernd starfsmanna í álverinu. Sérfræðingur á rannsóknastofu Við leitum að sérfræðingi á rannsóknastofu álvers Alcoa Fjarðaáls. Viðkomandi þarf að hafa menntun á sviði efnafræði eða annarra raungreina. Reynsla af störfum á rannsóknastofu er æskileg. Starfið er fjölbreytt og felst meðal annars í að greina sýni og miðla niðurstöðum rannsókna, hafa eftirlit með tækjum og búnaði á rannsóknastofu, taka þátt í að þróa verkferli fyrir rannsóknavinnu og þjálfa starfsfólk í notkun rannsóknabúnaðar. Framtíðarstarf hjá Alcoa Fjarðaáli Ef þú hefur áhuga á þessu starfi, hafðu þá samband við Tómas Odd Hrafnsson hjá Capacent í síma 540 1000 eða netfangið tomas.hrafnsson@capacent.is eða skráðu umsókn þína á www.capacent.is og haft verður samband við þig. Umsóknarfrestur fyrir þetta starf er til og með 7. september. Svar tækni óskar eftir að bæta við sig starfsmanni í fullt starf Starfið felur í sér: Uppsetning á netkerfum ásamt uppsetningu og þjónustu við IP símkerfi. Viðkomandi mun í starfi sínu eiga samskipti við viðskiptavini fyrirtækisins og mun hluti af vinnu fara fram utan vinnustaðar. Hæfniskröfur: Þekking á Windows server umhverfi og þeirri netþjónustu sem því fylgir er æskileg. Áhugi á uppsetningu og rekstri IP símkerfalausna er kostur. Rík þjónustulund, lipurð og vilji til að læra og þroskast í starfi eru eiginleikar sem við leitumst eftir. Svar tækni er framsækið fyrirtæki með 15 starfsmenn í fullu starfi. Hjá fyrirtækinu er öflug söludeild á fyrirtækjamarkaði ásamt því að reka verslun með raftæki. Einnig er öflug þjónustudeild og þjónustuverkstæði hjá fyrirtækinu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í sem fyrst. Umsóknarfrestur er til mánudagsins 7. september. Umsóknum skal skila til: Svar tækni ehf., Síðumúli 37, 108 Reykjavík eða á umsokn@svar.is Netuppsetningar og símkerfi Upplýsingar um starfið og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is. ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa um 500 manns, víðsvegar um landið sem og erlendis. ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1970 og hefur annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór- iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Framkvæmdagleði í fyrirrúmi TÆKNIMENN Á JAMAÍKA Vegna væntanlegra verkefna á Jamaíka óskar Ístak eftir að ráða tæknimenn til starfa. Viðkomandi þurfa að hafa víðtæka reynslu af byggingaframkvæmdum, búa yfir góðri þekkingu á húsbyggingum í Ameríku og þekkja þarlendan markað vel. Meðal verkefna: • Samningar við efnissala og framleiðendur. • Samningar við undirverktaka. • Þátttaka í hönnunarstjórnun. • Undirbúningur framkvæmda. Hæfniskröfur: • Menntun á sviði húsahönnunar æskileg. • Skilyrði er að viðkomandi hafi gott vald á ensku, bæði rituðu og töluðu máli.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.