Fréttablaðið - 29.08.2009, Síða 63

Fréttablaðið - 29.08.2009, Síða 63
LAUGARDAGUR 29. ágúst 2009 Megi það aldrei verða að lög- reglumaður láti lífið við skyldu- störf. Mér fannst mjög alvarlegt að lesa þetta og velti þessu lengi fyrir mér. Ef lögreglumenn líta svo á að það sé tímaspursmál hvenær einhver þeirra lætur lífið í starfi þá bregður manni auðvitað við það. Þetta er eitt af því sem við erum að skoða, það er grunnþjónustan, mannskapurinn og hvernig vaktin er staðin gagnvart borgurunum. Lögreglumenn verða sífellt harðorðari í yfirlýsingum sínum. Í nýlegri yfirlýsingu Landssam- bands lögreglumanna segir að komi til nýrrar búsáhaldabyltingar sé ekki gefið hvorum megin línunn- ar lögreglumenn muni standa. Þá hafa fjölmargir lögreglumenn sem hafa verið í óeirðahópi lögreglu, til dæmis á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum, hætt þátttöku í því verkefni. Hvernig verður brugðist við þessu? Þetta er hluti af þeirri óánægju sem lögreglumenn hafa lýst. Við erum að vinna í þessum málum, og þess vegna er erfitt að bregðast við þessum yfirlýsingum. Það eru breytingar fyrirhugaðar innan lög- reglu höfuðborgarsvæðisins sem lögreglustjóri embættisins verður að svara fyrir. Ég veit að lögreglumenn eru duglegt og skyldurækið fólk, og ég veit að það stendur ekki til að þeir fari að bregðast skyldu sinni. Ég hef velt fyrir mér hvort fólk geri sér almennt grein fyrir því hvers konar álag var á lögreglumennina í búsáhaldabyltingunni, þegar þeir stóðu vaktina. Þeir þurftu að þola hluti sem enginn maður ætti að þurfa að þola, það var kastað á þá saur og hlandi, sem er algerlega óásætt- anlegt. Ég skil ekkert í því að þeim skuli ekki hafa verið veitt heiðursmerki fyrir frammistöðu sína. Þeir stóðu vaktina með sóma, en ég finn að þeir kvíða því, ein- hverjir þeirra að minnsta kosti, að þessi staða komi upp aftur. Ég skil það mjög vel. Þess vegna er nauð- synlegt að vel sé búið að mönnum í óeirðahópum lögreglu, og að þeir fái næga hvatningu til að standa svona erfiða vakt. Einblínt um of á Kína Biðtími eftir ættleiðingum erlend- is frá hefur lengst mikið á síðustu árum og fjöldi para á biðlistum eykst sífellt. Hvað er hægt að gera til að snúa þessari þróun við? Vandinn er sá að það er erfiðara að fá börn til ættleiðingar núna. Þar munar mikið um að mikið hefur dregið úr ættleiðingum frá Kína, sem er það land sem Íslensk ættleiðing hefur verið í hvað bestu sambandi við. Þegar allt situr fast þeim megin frá segir það sig sjálft að það er óhægt um vik hér á landi. Forsvarsmenn ættleiðingarfélaga hafa bent á nokkrar leiðir, til dæmis þær að fólk geti verið á bið- lista í fleiri en einu landi í einu. Kemur það til greina? Það er eitt af því sem við höfum verið að skoða. Fyrr í sumar skrif- uðum við þeim löndum sem eru í ættleiðingarsambandi við íslensk ættleiðingarsamtök, og spurðum hvort þau fyrir sitt leyti samþykktu slíka breytingu. Það er ekki víst að svo verði, en það tekur tíma að fá svör við svona erindum, þó það taki vonandi ekki allt of langan tíma. Nú stefnir í að um 30 pör detti út af biðlistum vegna íslenskra aldurstakmarka, en til dæmis kín- versk stjórnvöld fella fólk ekki út af biðlistum sökum of hás aldurs. Hvernig verður brugðist við þess- um vanda? Það hefur mikið verið rætt um aldurshámörkin, og ég hef verið treg til að endurskoða þau. Hins vegar er það þannig að við erum að vinna að breytingum sem miða að því að forsamþykkið svokall- aða geti gilt í fjögur ár eftir að aldurshámarki er náð. Samþykkið getur fólk allt upp í 45 ára fengið, og hefur þá fjögur ár til viðbótar. Þá getur fólk verið allt að 49 ára þegar það ættleiðir börn. Það ætti að koma til móts við einhvern hluta þess hóps sem nú er að renna út á tíma. Ég bendi bara á að hámarks- aldurinn er töluvert hærri hér en á hinum Norðurlöndunum. Ég tel að með því að teygja þetta í allt að 49 ár séum við búin að ganga ansi langt. Annað mál sem mikið hefur verið rætt um eru ættleiðingar sem einstaklingar sjá alfarið um sjálfir, í stað þess að fara í gegn- um ættleiðingarfélög eins og ber að gera hér á landi. Þegar eru ein- hver dæmi um að fólk hafi ættleitt án milligöngu félags, hver er þín afstaða til þess? Ættleiðingarfélögin leggja mikla áherslu á að gefa þetta frjálst, og það er til skoðunar í ráðuneytinu eins og annað sem varðar þetta mál. Okkar lagaumhverfi er svip- að og á hinum Norðurlöndunum, og við byggjum á hinum svokall- aða Haag-samningi. Ættleiðingar- félögin hafa bent á að prívat ætt- leiðingar stangist ekki á við þann samning, en slíkar ættleiðingar eru engu að síður mikið álitaefni. Tilgangurinn með regluverkinu er fyrst og fremst sá að gæta að hag barnsins, til dæmis með því að koma í veg fyrir mansal. Á sama tíma má kerfið ekki vera þannig að það sé allt of stíft og óréttlátt. Við höfum nokkur dæmi um fólk sem hefur ættleitt barn hingað til lands án milligöngu ættleiðing- arfélaganna, svo það verður að skoða hvert mál fyrir sig út frá jafnræðisreglu. Forsvarsmenn ættleiðingarfélaga segja fólk sem nú bíður eftir því að geta ættleitt börn erlendis frá líða fyrir að málaflokkurinn hafi verið í fjársvelti í góðærinu undanfarin ár. Voru það mistök að styrkja ekki ættleiðingarfélög til þess að fjölga þeim löndum sem íslenskir foreldr- ar geta ættleitt frá? Ég skal ekki segja hvaða ástæð- ur liggja þarna að baki. Kannski gæti ein ástæðan verið sú að Íslensk ættleiðing einblíndi um of á Kína. Það gekk vel svo kannski fannst mönnum ekki ástæða til að huga að fleiri samböndum. Ég skal ekki segja til um það, þetta er ein skoðun og ég tek í sjálfu sér ekki afstöðu til þess. - og utanþingsráðherra sem eru þingmenn og sem ekki heyra undir upp er ég ekki þátt- rð auðvitað að kanna ar þarf að móta stefnu okkanna. Þeir hafa að u í samstarfsyfirlýsingu, ð leita fyrir mér,“ segir er það sama og annarra, en ég þarf að hafa meira fyrir því að kanna hvaða skref á að taka, ég get ekki gert hlutina alger- lega ein og úr tengslum við meirihluta þingsins. Ég starfa í umboði meirihluta þingsins.“ Hún hefur að eigin sögn alltaf haft mikinn áhuga á stjórnmálum, en aldrei tekið þátt í pólitík sjálf. „Ég fékk vinnu á Alþingi strax eftir að ég útskrifaðist sem lögfræðingur, og þurfti að vinna með fólki úr öllum flokkum. Þar komst ég að því að það eru margar hlið- ar á öllum málum. En ég hef aldrei hugleitt að leggja stjórnmálin fyrir mig.“ Þótt þeir málaflokkar sem falla undir dómsmálaráðuneytið séu fyrirferðar- mestir í umræðunni þessa dagana er Ragna Árnadóttir einnig ráðherra kirkjumála. Umræðan um aðskilnað ríkis og kirkju hefur lengi verið hitamál í íslensku samfélagi. Ragna hefur ákveðnar skoðanir á því máli, en hún segist sjálf vera trúuð, og í þjóðkirkjunni. „Ég er þeirrar skoðunar að fyrirkomulagið sem er á þessum málum í dag sé gott. Ríkisvaldið hefur ákveðnum skyldum að gegna gagnvart kirkjunni samkvæmt stjórnarskrá, og á að vernda og styðja þjóðkirkjuna. Prestar þjóðkirkjunnar eru embættismenn sem hafa skyldum að gegna við fleiri en bara safnaðarmeðlimi þjóðkirkjunnar. Þeir hafa skyldu gagnvart öllum í þessu landi,“ segir Ragna. „Ég tel að það séu góð rök fyrir því að halda óbreyttu ástandi. Það er auðvitað búið að skilja á milli að ákveðnu leyti, kirkjan ræður algerlega sínum eigin málefnum, og það fer vel á því.“ HAFNAR AÐSKILNAÐI RÍKIS OG KIRKJU
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.