Fréttablaðið - 29.08.2009, Síða 64

Fréttablaðið - 29.08.2009, Síða 64
36 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR Verð kr. 265.000.- Hrein fjárfesting ehf Dalbraut 3 105 reykjavík • rainbow@rainbow.is Sími verslun 567 7773 . kvöld og helgar 893 6337 www.rainbow.is Rainbow Bjóðum nokkrar Rainbow á 186,000 Eða gömul Rainbow upp í nýja tilboð 155,000 Eigum einnig notaðar yfi rfarnar rainbow með ábyrgð verð 80.000 tilboð 58.000 meðan byrgðir endast. Ef þú værir ekki dansari, hvað værir þú þá? Rík. Hver er þinn eftirlætislista- maður? Það eru svo margir en David Lynch er einn af uppáhalds. Draumadagurinn í stuttu máli? Sofa út, gott að borða með góðu fólki og margir kokkteilar. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur nokkurn tímann gert? Vann einn dag í svona færibanda- vinnu, þar sem ég stóð og sneri pulsubrauðum rétt. Gat það ekki. Hvaða myndi fullkomna líf þitt? Að geta lifað af listinni minni. Ertu með einhverja kæki? Já, ég bít stundum innan í kinnarnar á mér en frænka mín er dugleg að skamma mig fyrir það. Ef þú mættir nefna götu í Reykja- vík, hvaða nafn fengi hún? Snæstígur eða kannski Pæju- port. Ertu orðin það sem þú ætlaðir að verða þegar þú yrðir stór? Ekki alveg enda mér finnst mér ég ekki orðin stór ennþá. Hvenær fékkstu síðast hláturs- kast og hver olli því? Ég hlæ dálítið mikið en ég held að síðasta alvöru hláturskast hafi verið í byrjun ágúst og það var af minni eigin vitleysu og Superhero Frenzy. Hvernig hljómar síðasta SMS í símanum þínum? Var að klára. Sorrý. Farnar? Hvað veist þú sem við hin megum ekki missa af? Rough Sea. Hver heldur þú að gæti bjargað Íslandi? Ég veit ekki hvort það er einhver einn sem gæti bjargað Íslandi en hann/hún þyrfti að eiga nóg af peningum. Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörð- unni? Ætli það verði ekki að vera heima hjá mömmu. Ef þú ættir tímavél, hvert mynd- irðu fara og af hverju? Ég myndi fara nógu langt aftur í tímann til að geta séð risaeðlur. Áttu þér leynda nautn sem þig langar að deila með lesendum? Hmmm… ég held að ég verði að halda henni leyndri aðeins leng- ur … búbb. Hryllingsmynd eða rómantísk gamanmynd? Rómantísk gamanmynd, ég get ekki sofið ef ég horfi á hryllings- mynd. Uppáhaldsorðið þitt? Búbb. Hvaða lag á að spila í jarðarför- inni þinni? Blower‘s Daughter. Af hverju ertu stoltust? Af sköpunarverkum mínum. Hvaða þrjá staði gætir þú heim- sótt aftur og aftur og aftur? Barcelona, París og auðvitað íslensku náttúruna. Hleypir skrímslinu út Í kvöld hleypir Snædís Lilja Ingadóttir sínu innra skrímsli út úr búri sínu og gerist sýndarþræll dýrslegra hvata. Herlegheitin munu eiga sér stað í Batt- eríinu, þar sem sköpunarverk hennar, Rough Sea, verður sýnt á sviðs lista- hátíðinni artFart. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir tók Snædísi Lilju í yfir- heyrslu. ÞRIÐJA GRÁÐAN FULLT NAFN: Snædís Lilja Inga- dóttir. FÆÐINGARÁR: 1980. FERILLINN Í HNOTSKURN HING- AÐ TIL: Skóli, skóli, vinna, skóli og svo Listaháskólinn. HLÁTURMILD Snædís Lilja Ingadóttir segist hlæja frekar mikið. Síðasta hláturskast var afleiðing eigin fyndni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ■ Á uppleið Dans Um þessar mundir er sviðs lista- hátíðin ArtFart í gangi auk fjölda annarra dansverkefna. Gósentíð fyrir spriklunnendur. Veitingastaðir Þrátt fyrir kreppu spretta þeir upp um allan bæ. Auðvit- að verður fólk líka að lyfta ser upp á leiðinlegum tímum. Bjór frá Færeyjum Föroyabjór er dásamlega góður, í fallegum umbúð- um og bráðum fáanlegur á Íslandi. Hlöllabátar og Nonnabitar Vissuð þið að það er hálft kíló af mat í Nonnabitabát? Hann ætti að duga út alla vikuna. ■ Á niðurleið Leti. Nú eru skólarnir að byrja og tími til að taka sig taki, fara snemma í háttinn og vera duglegur að mæta. Djammlæti í unglingum í mið- bænum Annar hver maður virðist heita Siggi og allir eru að leita að honum. Dularfullt. Harðlínuhnakkar Mæta á djammið með derhúfu og í íþróttaskóm og vilja aðeins hlusta á tónlist þegar það er búið að taka allt burt nema taktinn. Slettureifpeysur Við viljum ekki sjá fleiri American Apparel hettupeysur með skræpóttu drasli yfir allt saman. Oj bara. MÆLISTIKAN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.