Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.08.2009, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 29.08.2009, Qupperneq 66
38 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is Ný bók með fimmtíu mismundi vett- lingamynstrum eftir Ágústu Jónsdótt- ur, líffræðing og rekstrarhagfræð- ing, er væntanleg í búðir innan fárra vikna. „Ég hef sjálf alltaf verið handköld og þurft á vettlingum að halda frá því ég var barn á Ísafirði,“ segir Ágústa. „Amma prjónaði mikið og ég hef lengi haft auga fyrir eigulegum vettlingum. Í fyrra fór ég að prjóna þá í jólagjafir því ég vil að allir njóti hlýrra handa en fann þá engar uppskriftir. Vissi að það kom út bók með slíkum mynstrum fyrir mörgum árum, rosalega falleg en hún er bara ófáanleg og ekki einu sinni til á bókasafni. Svo ég fór að búa til mínar eigin uppskriftir. Það var gaman og gekk vel. Þá sagði maðurinn minn: „Af hverju gefur þú ekki bara út bók?“ Þannig kom hugmyndin. Því ekki að gefa út bók? Og ég fór á fullt að teikna og prjóna.“ Ágústa segist ekki geta eignað sér öll mynstrin en hún raði þeim upp á sinn hátt og velji saman litina. „Ég er með eina hefðbundna rósavettlinga sem ég gerði eftir öðrum. Þeir eru með átta- blaðarósinni og mér fannst ekki hægt að gefa út íslenska vettlingabók án þess að hafa þá með,“ útskýrir hún. Vettlingarnir eru allir símynstraðir og úr kambgarni. „Ég vildi nota íslenskt garn og kambgarnið er mjúkt og hlýtt,“ útskýrir Ágústa. „Það er til önnur bók yfir lopavettlinga en þessir eru litrík- ari og prjónið fínna.“ Hún viðurkennir að vettlingar úr kambgarni henti ekki í hörkufrosti, nema hafa aðra utan yfir. „Þessir notast meira við aðrar aðstæður, þegar farið er út að labba, skroppið niður í bæ, út að keyra og svona. En þó að garnið sé fínt þá er það úr hreinni ull og svo er það víðast tvöfalt og þrefalt vegna mynstranna og það gerir prjón- ið þykkra.“ Flestir vett- linganna í bók- inni eru í milli- stærð sem passar á konur og unglinga en líka nokkrir á herra og börn. „Börn týna auðveld- lega vettlingum en auðvelt er að prjóna nöfnin þeirra í þá og sýnishorn af því kemur fram í bókinni,“ tekur Áslaug fram en prjónaði hún alla vettlingana sjálf? „Ekki alveg alla. Móðir mín á nokkra en svo bauð ég henni á skauta í febrúar og það kom mér í koll því hún handleggsbrotnaði og gat ekki prjónað meira þann veturinn en ég fékk hjálp frá vinkonu minni.“ Ágústa segir gaman hversu mikill prjónaáhuginn sé hjá þjóð- inni. „Margir eru eins og ég að taka upp þráð- inn aftur eftir langt hlé og aðrir eru að prjóna sínar fyrstu lykkjur. Þeim hent- ar vel svona bók. Vettlingar eru létt- ir á prjónum og það er hægt að ljúka við þá á skömm- um tíma. Maður er svona eitt til tvö kvöld með hvern ef maður situr svo- lítið vel við. Því er minni tilhugsun að byrja á þeim en heilli peysu. Það er líka skemmti- legt að prjóna sokka, bara verst hvað þeir endast illa.“ Það er bókaforlagið Salka sem gefur Vettlingabókina út. Ágústa segir verið að leggja lokahönd á umbrot. „Bókin kemur út í næsta mánuði,“ segir hún. „Við erum að tala um miðjan september.“ gun@frettabladid.is ÁGÚSTA ÞÓRA JÓNSDÓTTIR: ER HÖFUNDUR NÝRRAR VETTLINGABÓKAR Vill að allir njóti hlýrra handa MÆÐGUR Margrét Sól Aðalsteinsdóttir og Ágústa með álitlegan stafla af útprjónuðum vettlingum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR MERKISATBURÐIR 1862 Akureyri fær kaupstaðar- réttindi í annað sinn. 1910 Fyrsti keisaraskurður á Íslandi, þar sem bæði móðir og barn lifa, er framkvæmdur í Reykjavík. 1944 Á Ísafjarðardjúpi veiðist 300 kílógramma túnfisk- ur. 1945 Hafin er bygging húss fyrir Þjóðminjasafn Íslands við Hringbraut í Reykjavík. 1948 Baldur Möller verður skákmeistari Norður- landa, fyrstur Íslendinga. 1971 Kirkjan á Breiðabólstað á Skógarströnd brennur til kaldra kola og kviknar í bíl sóknarprestsins. 2005 Fellibylurinn Katrín fer yfir suðurströnd Bandaríkj- anna, 1.600 manns láta lífið. MICHAEL JACKSON POPPTÓNLISTAR- MAÐUR VAR FÆDDUR ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1958. „Ef þú kemur inn í þennan heim vitandi að þú ert elskaður og ferð úr þessum heimi með sömu fullvissu í hjarta er hægt að ráða við allt sem gerist þar á milli.“ Michael Jackson var söngvari, leik- ari, dansari og lagahöfundur. Hann var barn að aldri þegar hann hóf feril sinn með fjölskylduhljóm- sveitinni Jackson 5 en varð síðan sóló listamaður og stundum kallað- ur konungur poppsins. Kynning á tækjum og búnaði Hjálparsveitar skáta í Kópa- vogi verður í Vetrargarðinum í Smáralind í dag frá klukk- an 12 til 16. Viðburðurinn er einn af mörgum sem sveit- in heldur í tilefni af fjörutíu ára afmæli sínu á þessu ári, að sögn formannsins Írisar Marelsdóttur. Hoppkastali og klifurveggur verða í garðin- um líka svo börnin sem koma í heimsókn ættu að geta feng- ið útrás fyrir hreyfiþörfina. Hávaðaseggur nágranni verður á staðnum og aðrar óvæntar uppákomur á heila tímanum. Óhætt er að fullyrða að skátarnir í Kópavogi haldi úti einni öflugustu hjálp- arsveit landsins og eflaust hafa margir gaman af að líta á græjurnar þeirra. „Fyrir utan leitir og aðra aðstoð við samborgarana er alltaf eitt- hvað um að vera hjá okkur í sveitinni, ekki síst á afmæl- isárinu,“ segir Íris Marels- dóttir. - gun Skátar kynna björgunarbúnað SKÁTAR Báturinn verður eflaust til sýnis ásamt bílum og sleðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 MOSAIK Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför Guðmundar Karls Jónssonar Strikinu 4, Garðabæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameins- deildar 11e, Landspítala. Rannveig Björnsdóttir Jón Örn Guðmundsson Björn Þór Guðmundsson Kvikmyndin Svo á jörðu sem á himni eftir Kristínu Jóhann- esdóttur var frum- sýnd þennan dag árið 1992. Mynd- in fjallar meðal ann- ars um strand franska rannsóknarskips- ins Pourquoi pas? við Mýrar árið 1936. Lítil stúlka sem heit- ir Hrefna blandar saman fortíð og fram- tíð með ímyndunarafli sínu og reynir að hafa áhrif á atburðarásina. Því fléttast inn í myndina skörungskonan Straumfjarðar- Halla sem var uppi á 14. öld og þótti þá forn í skapi og fjölkunnug. Meðal þess sem hún kunni fyrir sér var að vinna járn úr mýrar- rauða í smiðju sinni. Svo á jörðu sem á himni var að miklum hluta tekin upp við Höfn í Hornafirði. Horn- firskir áhugaleik- arar komu þar við sögu og félagar í Karlakórnum Jökli voru í hlutverki hinna látnu skip- brotsmanna í fjör- unni. Í myndinni léku einnig lands- frægir leikarar, meðal annars Álfrún Örnólfsdóttir, þá tíu ára, Tinna Gunnlaugsdóttir, Helgi Skúlason, Jón Sigur- björnsson, Sigríður Hagalín og Guðrún Gísladóttir. ÞETTA GERÐIST: 29. ÁGÚST 1992 Svo á jörðu sem á himni frumsýnd
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.