Fréttablaðið - 29.08.2009, Síða 70

Fréttablaðið - 29.08.2009, Síða 70
42 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR menning@frettabladid.is kl. 21 í Batteríinu Hafnarstræti 1. Rándýr eftir breska leikskáldið Simon Bowen í leikstjórn Heiðars Sumarliðasonar. Verkið fjallar um átta manneskjur í mismunandi þrep- um góðærisstigans, sem eiga þó allar sameiginlegt að vilja meira. Meiri peninga, meiri virðingu, meiri ást. En einhvers staðar mun þó bólan springa og allt hlýtur að enda með ósköpum. Á dagskrá artFart. > Ekki missa af Sýningunni um tvær af okkar mikilvirkustu myndlistar- konum um miðja síðustu öld, þær Nínu Tryggvadóttur og Louisu Matthíasdóttur á Kjarvalsstöðum. Henni lýkur á sunnudag. Feikilega góð aðsókn hefur verið að sýningunni en ásamt verkum Nínu og Louisu er þar að finna verk eftir samtímamenn þeirra í New York. Sýningar- stjóri er Hrafnhildur Schram. Myndir af látnum börnum eru daglegur við- burður í vestrænum fjölmiðlum. Hungur, stríð, og slys tortíma þeim langt fyrir aldur fram. Nú stendur yfir í Þjóðleikhúsinu í samstarfi við ASSITEJ, samtök barnaleikhúsa, námskeið þar sem tekist er á við hvernig leikhúsið megni að ræða dauðann við börnin okkar. Verkefni leikhúslistafólksins verður að kanna hvernig leikhúsið getur á áhrifaríkan og „lifandi“ hátt tekist á við þetta erfiða viðfangsefni. Leikstjórar, leikarar og leikskáld frá Finnlandi, Spáni, Svíþjóð og Íslandi sem eiga það sameiginlegt að trúa á uppeldislegan og listrænan mátt leikhússins til að takast á við jafnvel allra erfiðustu viðfangs- efni. Allt þekkt fólk í sínu landi af störfum sínum í barnaleikhúsi. Alþjóðleg vinnusmiðju á vegum ASSITEJ í Venesúela í fyrra um tabú í leikhúsi var hvatinn að vinnusmiðjunni í Þjóðleikhúsinu nú. Íslensku þátttakendurnir eru reynsluboltar úr íslensku barna- og unglingaleikhúsi. Fimm og tíu ára börn frá Grunnskóla Hjallastefnunnar og Vesturbæjarskóla verða þátttakendur í verkefn- inu og gegna hlutverki rýnihópa og álitsgjafa. Börnin og dauðinn mætast LEIKLIST Börn á námskeiði um dauðann FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Kvikmyndin The Amazing Truth About Queen Raquela hefur hlot- ið tilnefningu í ár til Kvikmynda- verðlauna Norðurlandaráðs. Leik- stjóri og handritshöfundur er Ólafur Jóhannesson, meðhöfundur er Stef- an Schaefer og framleiðendur eru þeir Ólafur og Stefan ásamt Helga Sverrissyni og Arleen Cuevas. Alls eru fimm myndir tilnefndar, ein frá hverju Norðurlandi, og eru sigur- verðlaunin 350.000 danskar krónur (um 8,7 milljónir íslenskra króna), sem skiptast á milli leikstjóra, hand- ritshöfunda og framleiðenda. Sjón og varamaður hans, Sif Gunnarsdóttir, sitja í dómnefnd- inni: Þau segja í umsögn um mynd- ina: „The Amazing Truth About Queen Raquela er hrífandi og ögr- andi kvikmynd sem segir sögu titil- persónunnar, stelpustráks frá Fil- ippseyjum. Á hógværan máta er áhorfandanum boðið inn í veröld Raquelu án fordóma, en þó ekki án þeirrar forvitni sem lífshættir henn- ar hljóta að vekja. Með því að má út mörk heimildarmyndar og leikinn- ar myndar hefur leikstjórinn, Ólaf- ur de Fleur Jóhannesson, fundið leið til þess að taka mannlega afstöðu til harðneskjulegs raunveruleika sögu- persónunnar um leið og hann nýtur þess að vinna með alla frásagnar- möguleika „góðrar sögu“. Hvort sem Raquela er að selja sig á götunni eða framan við vefmyndavélina til sið- lauss fjölskylduföður/klámkóngs í New York, eða sóla sig á ströndinni og versla með vinkonunum, minnir raunsæ og vonglöð afstaða Drottn- ingarinnar til lífsins okkur á, að það er ekki okkar að dæma hvort líf ann- arra er þess virði að lifa því.“ Þær fjórar myndir sem eru að auki tilnefndar eru: Frá Danmörku, Andkristur (Anti christ), leikstjóri og handrits- höfundur Lars von Trier og fram- leiðandi Meta Louise Foldager (Zentropa). Frá Finnlandi, Sána (Sauna), leik- stjóri AJ Annila, handritshöfund- ur Iiro Küttner, og framleiðendur Tero Kaukomaa og Jesse Fryckman (Solar films). Frá Noregi, Norður (Nord), leik- stjóri Rune Denstad Langlo, hand- ritshöfundur Erlend Loe og fram- leiðandi Sigve Endresen (Motlys). Frá Svíþjóð, Ljósár (Ljusår), leik- stjóri og handritshöfundur Mikael Kristersson og framleiðandi Lisbet Gabrielsson (Lisbet Gabrielsson Film AB). Græna ljósið sýnir allar mynd- irnar fimm 11.-13. september í Háskólabíói og þær verða sýndar í öllum höfuðborgum Norðurland- anna á næstu vikum. Almenningi gefst þar með í fyrsta skipti tæki- færi til að sjá allar þær myndir sem hljóta tilnefningu í ár. - pbb Raquela tilnefnd Þær eru ekki margar sinfóníu- hljómsveitirnar sem starfa í land- inu. Tvær þeirra eru skipaðar atvinnumönnum, tvær áhugafólki, önnur ungum hljóðfæraleikurum og hin fullnuma tónlistarfólki sem starfar sem áhugamenn. Sinfóníu- hljómsveit áhugamanna var stofn- uð 1990 og hefur starfað óslitið síðan. Hljómsveitina skipa að jafn- aði fjörutíu til sextíu manns. Hún starfar frá september og fram í maí ár hvert. Nú er nýtt starfsár að hefjast í þessum hóp. Á þriðjudagskvöldið verður fyrsta æfing nýs starfsárs. Hljómsveitin mun nú sem fyrr tak- ast á við mörg helstu verk tónbók- menntanna og halda minnst fimm tónleika á starfsárinu. Fyrstu tónleikar verða 18. október og eru þeir framlag sveitar- innar til Heimsgöngu í þágu frið- ar og tilveru án ofbeldis. Þá verða frumflutt tvö verk eftir Oliver Kentish og kynntir tveir ungir og upprennandi einleikarar, Baldvin Oddsson og Magnús Pálsson. Einn- ig verður flutt Sinfónía nr. 9 eftir Dvorák, „Frá nýja heiminum“. Á aðventunni gengur hljómsveit- in til samstarfs við kór Neskirkju og flytur Messías eftir Händel. Eftir áramót verða þrennir tón- leikar og leikin verk eftir Haydn, Samuel Barber, Bach, Mozart, Mendelssohn, Dvorák og Brahms, meðal annarra. Einnig verður leikinn konsert fyrir pákur eftir átjándu aldar tónskáldið Georg Druschetzky, og verður það í fyrsta sinn sem þetta verk er flutt hér á landi. Einleikari verður Frank Aarnink. Gunnar Kvaran sellóleikari mun leika einleik með hljómsveitinni í maí og Michael Clarke verður ein- söngvari á tónleikum í mars. Aðal- hljómsveitarstjóri sveitarinnar er Oliver Kentish. Æfingar eru eitt kvöld í hverri viku, á þriðjudagskvöldum frá hálfátta til tíu, og fara fram í Sel- tjarnarneskirkju. Hljómsveitin getur bætt við sig hljóðfæraleik- urum, einkum í strengjadeildum. Þeir sem áhuga hafa geta haft samband við stjórnandann, Oliver Kentish, eða einfaldlega mætt á æfingu og athugað málið á þriðju- dagskvöld. - pbb Sinfónískir áhugamenn TÓNLIST Sinfóníuhljómsveit áhugamanna er að hefja æfingar og hana vantar strengjaleikara. MYND/SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT KVIKMYNDIR Queen Raquela og Ólafur Jóhannesson. Í gær var ný samsýning opnuð í Hafnarborg helguð hafinu í myndlist. Sýningin nýtur stuðnings Hafnar- fjarðarhafnar sem nú fagn- ar 100 ára afmæli sínu. Lífróður – Föðurland vort hálft er hafið, kalla sýningarstjórarnir safn- ið en þar eru verk eftir tæplega þrjátíu listamenn sem endurspegla hafið á ýmsan hátt. Mörg verkanna eru ný, sum hafa ekki áður verið sýnd hérlendis en flest eru þau frá síðustu tíu árum. Hér er á ferðinni áhugaverður hópur listamanna á ýmsum aldri og undrar ókunnugan hversu margir listamenn af yngstu kynslóðinni kjósa hafið sem efnivið. Sýningarstjórar eru þau Dorothée Kirch og Markús Þór Andrésson. Í tengslum við sýninguna standa Þjóðfræðistofa og Kvikmyndasafn Íslands að málþingi og kvikmynda- sýningum sem tengjast efninu. Verður kvikmyndadagskráin sam- sett af kvikmyndum sem tengjast sjósókn og hafinu en þær verða í Bæjarbíói: sjá www.kvikmynda- safn.is. Kveikja sýningarinnar var sú sjálfsmynd sem birtist í orðræðu Íslendinga í kjölfar efnahagshruns- ins síðastliðið haust þegar mynd- líkingar sem tengdust hafinu urðu áberandi. Gripið er til myndlíkinga úr sjómannamáli þegar eitthvað bjátar á og aðstæður verða óvæntar og illskiljanlegar. Heiti sýningarinn- ar, Lífróður, vísar orðrétt til hafs og sjómennsku en nú á tímum er hug- takið fyrst og fremst notað í yfir- færðri merkingu í daglegu máli. Tit- illinn Föðurland vort hálft er hafið er sóttur í sálm Jóns Magnússonar (1896-1944). pbb@frettabladid.is Föðurland vort hafið MYNDLIST Áhöfn eftir Hrafnkel Sigurðs- son er eitt verkanna á sýningu sem helguð er hafinu í Hafnarborg. MYND/HAFNARBORG/HRAFNKELL SIGURÐSSON í Hafnarfjarðarleikhúsinu miðasala á midi.is eða í síma: 555 2222 ég og vinir mínir PBB, Fréttablaðið “Ekki missa af þessari fegurð” ÞES, Víðsjá “Stunning, Powerful, Arousing” CF, Grapevine Tryggið ykkur miða í tíma, allt seldist upp í vor 5.sept kl.16 (English-LÓKAL Theater Festival) 10.sept kl.21 fimmtudagur 11.sept kl.21 föstudagur 18.sept kl.21 fimmtudagur 19.sept kl.21 föstudagur Aðeins þessar sýningar! Örfáar aukasýningar í september 9 grímutilnefningar ro sa ro sa .o rg
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.