Fréttablaðið - 29.08.2009, Síða 72

Fréttablaðið - 29.08.2009, Síða 72
 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR Þegar kom að því að Einar Falur Ingólfsson, ljós- myndari og blaðamaður, fór að velja tíu bestu ljós- myndara Íslands lenti hann fljótt í vanda. Og á endan- um urðu þeir þrettán. Til- tækið kom upp í samstarfi Einars við Hannes Sigurðs- son, safnstjóra Listasafns Akureyrar. Á Akureyrarvöku í dag kl. 15 verður sýningin „Úrvalið: íslenskar ljósmyndir 1866-2009“ opnuð í Listasafninu á Akureyri. Einar Falur hefur valið verk eftir þrettán kollega sína á sýninguna, og skrifar jafnframt um þá, sem og rökin fyrir vali sínu, í texta sem birtist í vandaðri sýningar- skrá. Er þetta í fyrsta sinn sem tilraun er gerð til þess að gefa markvisst yfirlit á einni sýningu yfir sögu skapandi ljósmyndunar hér á landi, frá upphafi til dags- ins í dag. Á sýningunni eru verk níu látinna ljósmyndara og fjögurra sem enn starfa. Sýningarstjórinn setti sér þau mörk að velja ekki verk ljósmyndara sem fæddir eru eftir 1960 og einungis fólk sem gerði ljósmyndun að ævistarfi og starfaði því við fagið um langt skeið. Verk ellefu karlmanna og tveggja kvenna eru á sýningunni, en fram á síðustu áratugi heyrði það til undantekninga að konur störfuðu markvisst við ljósmynd- un lengur en í örfá ár. Ljósmyndararnir eru: Sigfús Eymundsson, Nicoline Waywadt, Magnús Ólafsson, Pétur Brynj- ólfsson, Sigríður Zoëga, Jón Kaldal, Ólafur Magnússon, Vigfús Sigurgeirsson, Ólafur K. Magnússon, Guðmundur Ingólfsson, Sigurgeir Sigurjóns- son, Ragnar Axelsson og Páll Stefánsson. Sigfús Eymundsson (1837–1911) kom heim til Íslands árið 1866 eftir að hafa lokið ljósmyndanámi í Noregi. „Sagt hefur verið að heimkoma Sigfúsar marki þátta- skil. Hann var fyrsti íslenski ljósmyndarinn sem náði að gera ljósmyndun að lífsstarfi – og var frábær ljósmyndari, einn sá allra merkilegasti sem hér hefur starfað, til þessa dags,“ skrifar Einar Falur í sýningarskrá. „Hvað gerir ljósmynd góða?“ spyr hann. „Eða áhrifamikla? Hvaða ljósmyndari er góður og hver síðri? Þar koma margir þættir inn. Fagurfræðilegt mat, sem er huglægt og persónu- legt, skiptir líklega mestu þegar myndverk eru metin út frá form- rænum eigindum sínum. Og vissulega þarf að setja sköpun- arverkin í sögulegt samhengi. Hugsa um stefnur og strauma í tímanum, hugmyndafræði í list- um yfirleitt og afstöðu listamann- anna – ljósmyndaranna. Það þarf einnig að skoða heildarverkið. Hvað liggur eftir ljósmyndar- ana? Náðu þeir, og jafnvel fyrir tilviljun, nokkrum góðum mynd- um, en voru annars bara þokka- legir iðnaðarmenn? Eða lögðu þeir mikinn metnað í sköpunina, stefndu að því að skapa einstæð myndverk? Það eru slíkir gripir sem við viljum sjá, myndir sem láta okkur staldra við og benda: svona var þetta og enginn gat sýnt það betur.“ Í vali sínu á ljósmyndurum og myndum þeirra beinir Einar Falur einkum sjónum að mannin- um, mannlífi og hinu manngerða í umhverfinu. Hann segir að ekki sé þó hægt að líta fram hjá því að hér hefur ætíð búið fátt fólk í stóru og margbrotnu landi, og náttúru- og landslagsljósmynd- un hefur skipað stærri sess hér en víðast hvar. „Ljósmyndavélin gerir það sama á Íslandi og ann- arsstaðar. Þetta er aðeins skrán- ingartæki. Það eru afstaða og sýn ljósmyndarans á heiminn sem skipta öllu máli.“ Val á sýningu sem þessa er erfitt, ekki síst í ljósi þess að söfn sumra þessara ljósmynd- ara eru enn ekki að fullu könn- uð: þannig hafa myndir Kaldals aðrar en hin þekktu portrett hans ekki verið kannaðar að gagni. Má í því sambandi nefna mynd- ir hans frá Héraðsskólanum á Laugarvatni á þriðja áratugnum sem eru ólíkar því sem hann er kunnastur fyrir. Ekki eru því öll kurl komin til grafar í íslenskri ljósmyndasögu. Ljósmyndirnar á sýningunni í Listasafninu á Akureyri eru í eigu Ljósmyndasafns Íslands, Ljósmyndasafns Reykjavíkur, Morgunblaðsins og ljósmynd- aranna. Sýningin er gerð í sér- stöku samstarfi við bókaútgáf- una Sögur ehf. og Þjóðminjasafn Íslands. Sýningin stendur til 18. október. Listasafnið á Akureyri er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17. Ókeypis aðgangur er í boði Akureyrarbæjar. pbb@frettabladid.is Þau þrettán bestu saman HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Laugardagur 29. ágúst 2009 ➜ Tónleikar 22.00 Hljómsveit Ingu Eydal flytur gömul Akureyrarlög á Græna hattinum við Hafnarstræti á Akureyri. Aðgangur er ókeypis. 22.00 Hrund Ósk Árnadóttir, Gulli Briem, Kjartan Valdimars og Pálmi Gunn. flytja rólega og blúsaða tónlist á 1. árs afmæli veitingastaðarins Krydd- legin hjörtu við Skúlagötu. ➜ Töðugjöld Í Viðey verður fagnað Töðugjöldum með fjölbreyttri dagskrá. Grænmetismarkað- ur, víðavangsleikur, dansleikur o.fl. Nánari upplýsingar og dagskrá á www.reykjavik.is. ➜ Artfart 21.00 Leikverkið Rándýr í leikstjórn Heiðars Sumarliðasonar verður flutt í Leikhúsbatteríinu við Hafnarstræti 1. Sýningin er hluti af artFart háðinni sem nú stendur yfir. Nánari upplýsingar á www. artfart.is. ➜ Landbúnaðarsýning Hátt í 50 fyrirtæki verða með sýningar- bása á Landbúnaðarsýningu sem fram fer í Reiðhöllinni við Vindás í Borganesi um helgina. Nánari upplýsingar og dag- skrá á http://reidholl.123.is. ➜ Opið hús Heilsudrekinn og Wu-Shu félag Reykja- víkur verða með opið hús að Skeifunni 3J milli kl. 9 og 16. Frí ráðgjöf í kín- verskri heilsumeðferð, Tai Chu og Kung- Fu, kínverskt heilsu te o.fl. ➜ Síðustu Forvöð Sýningunni „Frá Unuhúsi til áttunda strætis“ á Kjarvalsstöðum við Flóka- götu, lýkur á sunnudag. Verk Nínu Tryggvadóttur og Louisu Matthíasardótt- ur ásamt verkum eftir samtímamenn þeirra í New York. Opið kl. 10-17. Skartgripasýningu útskriftanema í gull- smíði sem stendur yfir í Suðurgötuhús- inu í Árbæjarsafni, lýkur á sunnudag. Opið lau. og sun. kl. 10-17. ➜ Dansleikir Már & Nielsen og Dj Combó af gamla skólanum á Jacobsen við Austurstræti 9. Hljómsveitin Á móti sól verður á Play- ers við Bæjarlind í Kópavogi. Papar og Egó verða í íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ. ➜ Leiðsögn Dóra Árnadóttir verð- ur með leiðsögn um sýninguna „mín sýn“ í Listasal Iðu við Lækjar- götu 2, milli kl. 12-15. Sýningin er opin alla daga kl. 9-22. ➜ Fjölskylduhátíð Bæjarhátíð Mosfellsbæjar laugardag og sunnudag. Nánari upplýsingar og dag- skrá á www.mosfellsbaer.is. Akureyrarvaka á Akureyri: tónleikar, sirkus, ópera, sýningar og margt fleira. Dagskrá og nánari upplýsingar á www.visitakureyri.is Mímir - vináttufélag Vesturbæjar safnar fyrir fiskabúri sem standa á í anddyri Vesturbæjar laugar. Í tilefni af því verður fjölskylduhátið við og lauginni milli kl. 14- 16. Fjölmargir lista- menn koma fram og boðið verður upp á sælgæti og leiktæki fyrir börnin. Sunnudagur 30. ágúst 2009 ➜ Tónleikar 16.00 Einar Jóhannesson klarínettu- leikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari flytja verk eftir W.A. Mozart, Gerald Finzi og Áskel Másson á tón- leikum í Gljúfrastein, húsi Skáldsins í Mosfellsdal. 20.00 Á tónleikum á Kjarvalsstöðum við Flókagötu munu koma fram fjórtán hljóðfæraleikarar sem flytja verk Áskels Mássonar. ➜ Artfart 21.00 Leikverkið Rándýr í leikstjórn Heiðars Sumarliða- sonar verður flutt í Leikhúsbatteríinu við Hafnarstræti 1. Sýningin er hluti af artFart háðinni sem nú stendur yfir. Nánari upplýsingar á www.artfart.is. ➜ Dansleikir Danleikur Félags eldri borgara í Reykja- vík og nágrenni verður haldinn að Stangarhyl 4 kl. 20-23.30. Borgartríó leikur fyrir dansi. ➜ Burstabær Burstabærinn Krókur á Garðaholti í Garðabæ verður opinn milli kl. 13 og 17. Í Króki má sjá húsakost alþýðufólks á þessum landshluta á fyrri hluta 20. aldar. Krókur er í nágrenni samkomu- hússins í Garðaholti. Aðgangur er ókeypis. ➜ Leiðsögn 14.00 Guðrún Ásmundsdóttir leik- kona og Ólöf Arnalds söngkona verða með fjölskylduleiðsögn um sýninguna Rím sem nú stendur yfir í Ásmundar- safni við Sigtúni. Aðgangur er ókeypis. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. LJÓSMYNDIR Ein mynda Sigfúsar Eymundssonar á sýningunni úr safni hans hjá Ljós- myndasafni Íslands í Þjóðminjasafni. Hún er tekin í fjörunni í Reykjavík um 1875. MYND ÞJÓÐMINJASAFN/SIGFÚS EYMUNDSSON DRENGJAKÓR REYKJAVÍKUR Í HALLGRÍMSKIRKJU - auglýsir eftir áhugasömum kórdrengjum - Drengjakórinn 9-12 ára. Undirbúningsdeild 7-8 ára. Inntökupróf fara fram í Hallgrímskirkju mánudaginn 31. ágúst frá kl. 17.00-19.00 Nánari uppl. www.drengjakor.is og s. 896-4914 Drengjakór Reykjavíkur með tónleika í Montserrat klaustrinu á Spáni, sumarið 2008 Sögur án orða Ólöf Erla Einarsdóttir sýnir listrænt endurskapaðar ljósmyndir. Í fréttum var þetta helst Halldór Baldursson sýnir skopmyndateikningar frá árunum 2007-2009. Landið í lit Guðráður Jóhannsson sýnir málverk og teikningar. Athugið að lokað er um helgar í ágúst. 2009 Vissir þú... að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir veislur, fundi, ráðstefnur og námskeið? Einstaklega notalegt umhverfi og gott næði. Kynnið ykkur þjónustuna á www.gerduberg.is Fundarherbergi fyrir minni fundi, 8 -20 manns. A-salur 80 -100 manns við borð eða 120 manns í sæti. Upphækkanlegt svið og því tilvalinn fyrir tónleikahald, leiksýningar, fyrirlestra og veislur. B-salur 40 manns við borð, hentar vel fyrir ýmiskonar námskeið. Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 Leiðsögn fyrir hópa ı Netfang: gerduberg@reykjavik.is Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík ı Sími 575 7700 ı www.gerduberg.is Gallerý fiskur í Gerðubergi Ljúffengur heitur matur í hádeginu alla virka daga, hlaðborð, súpa og salat. Veisluþjónusta, upplýsingar á www.galleryfiskur.is S ý n in g a r - Betri kjör á bankaþjónustu - Húsaleiguábyrgð - Framfærslulán - Lán fyrir skólagjöldum o.fl. Kaupþing námsmenn - þegar námið skiptir höfuðmáli ÍS L E N S K A S IA .I S K A U 4 67 83 0 8/ 09
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.