Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1963, Page 20

Andvari - 01.06.1963, Page 20
18 SÍMON JÓH. ÁGÚSTSSON ANDVARI Persónuleikaþroskann á að setja ofar öllu: ,,Ég vil kenna honum (Emil) listina að lifa. Sá maður, sem lifað hefur mest, er ekki sá, sem elztur er að árum, heldur sá, sem dýpst hefur fundið gildi lífsins." Hið náttúrlega uppeldi krefst hreyf- inga- og athafnafrelsis barninu til handa. Það má ekki hindra hreyfingar þess með því að reifa það. Barnið er ekki fyrr í heiminn komið en það er lagt í fjötra. Þessi siður er táknrænn fyrir ónáttúr- legt uppeldi. Móðirin á ennfremur að hafa barn sitt á brjósti, það er þeim báð- um eðlilegast. Henni er eðlilegt að gegna þeim móÖurskyldum, sem náttúran hefur ótvirætt lagt henni á herðar. Hún á að annast það, vera fóstra þess. Rousseau leggur mikla áherzlu á mikilvægi upp- eldisins í frumbernsku og þátt móður- innar í því. Fyrsta uppeldið er mikil- vægast og það á að hvíla á móðurinni. Ef höfundur náttúrunnar hefði ætlazt til þess, að það hvíldi á karlmönnum, hefði hann komið því svo fyrir, að þeir hefðu mjólk í brjóstunum til þess að næra börnin. Á sama hátt og móÖirin á að vera fóstra barnsins, á faðirinn að vera kenn- ari þess. Rousseau hugsar sér þó í Emil, að þessu hlutverki gegni heimiliskennari. Til þess að framkvæma hugsunartilraun sína, gerir hann ráð fyrir ímynduðum lærisveini og hugsar sér kennarann á þeim aldri og gæddan þeirri þekkingu og hæfileikum, sem með þarf til þess að annast uppeldi hans, þar til hann er full- orðinn maður og þarfnast engrar leið- sögu. Ernil er heilsuhraustur, af góðri ætt, en foreldralaus. Kennarinn hefur, að svo miklu leyti sem unnt er, öll uppeldis- áhrif, sem Emil verður fyrir, í hendi sér, enda þótt starfsfólk sé á sveitasetri því, þar sem hann elst upp. Gert er ráð fyrir góðum efnahag. Emil er ekkert afhurða- barn að gáfum, en frá fyrstu tíð veitist honum tækifæri til athafna. Vanlíðan sína og þarfir lætur barnið í ljós með gráti. Fullnægja skal þörfum barnsins, en varast skal að ofgera. Fyrstu tárin eru bænir, en ef látið er eftir barn- inu í öllu, verða þær brátt að skipunum. Ef ekki eru hafðar gætur á, vcrður barnið brátt að miskunnarlausum harðstjóra. Við byrjum með því að vera lijálparmenn barnsins, en endum mcð því að verða þrælar þess. Á þennan hátt stuðlar upp- cldið í frumbernsku að röngu viðhorfi barnsins og er hægara sagt en gert að breyta því seinna. Barninu á að veita athafnafrelsi. Því meir sem það spilar á eigin spýtur, því óháðara verður það öðrum og sjálfstæð- ara gagnvart umhverfinu og nær betri tökum á því. Óþekkt og illska barna stafa mest af vanmætti þeirra. Gerið barnið sterkt og þá mun það líka vera gott. Líkamleg hreysti og þjálfun hafa því siðferðilegt gildi. Auk vanmáttarins er óttinn cinnig uppspretta ýmissa skap- gerðargalla. Þess vegna á að ala barnið upp í óttaleysi. Með varúð á að kynna því hið óþekkta, þá mun það síður skelf- ast óvænta atburöi. í 1. og 2. bókinni lýsir Rousseau upp- eldi Ernils til 12 ára aldurs. Þetta er tími hins neikvæða u'p'peldis, en það er í því fólgið, að menn eiga að láta hneigðir og hæfileika barnsins þróast í friÖi, án beinn- ar íhlutunar, það er aðeins verndað gegn illum áhrifum. Neikvætt uppeldi bygg- ist á réttu mati á því, hvcnær heillavæn- legast er að láta eðli barnsins ráða ótruflað. Að láta eðli þess ráða, þýðir að koma að- stæðunum í það horf, að barnið fái neytt þroskamöguleika sinna. Rousseau veitir um þetta eftirfarandi reglu: Gerðu öfugt við það, sem venjulega er gert, og þú munt oftast hitta á hið rétta.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.