Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1966, Page 110

Andvari - 01.06.1966, Page 110
108 ÞORVALDUR SÆMUNDSSON ANDVARI V Mörgum lesendum íslendingasagna hefur orðið hugstæð frásögnin af skáld- unum Gunnlaugi ormstungu Illugasyni frá Gilsbakha í Hvítársíðu og Hrafni Ön- undarsyni frá Mosfelli og konunni, er þeir unnu báðir, Helgu hinni fögru Þorsteins- dóttur frá Borg á Mýrum. Sú ástarsaga mun vera einna frægust í íslenzkum bók- menntum, og hafa þó mörg skáld bæði fyrr og síðar gert líku efni dágóð skil. Báðir voru þeir garpar, glæsimenni og skáld góð. Sagan lýsir Gunnlaugi svo: „Svá er sagt frá Gunnlaugi, at hann var snemmendis bráðgerr, mikill ok sterkr, ljósjarpur á hár, ok fór allvel, svarteygr ok nökkut nefljótr ok skapfellingr í and- liti, miðmjór ok herðimikill, kominn á sik manna bezt, hávaðamaðr mikill í öllu skaplyndi ok framgjarn snemmendis ok við allt óvæginn ok harðr ok skáld mikit ok heldr níðskár ok kallaðr Gunnlaugr ormstunga." Hrafni er svo lýst, að hann hafi verið „mikill maðr og sterkr, manna sjáligastr ok skáld gott," en auðséð er, að höfundur sögunnar gerir hlut Gunnlaugs meiri og dregur því mynd hans skýrari dráttum en Hrafns. Er og einkar eftirminnileg skapgerðarlýsing höfundarins á þeim skáldunum, er þau stóðu frammi fyrir Ólafi Eiríkssy ni Svíakonungi og fluttu honum kvæði sín. En sá atburður varð upphaf óvináttu þeirra og síðar hörmu- legra æviloka. Um ‘Helgu hina fögru kemst höfundur sögunnar svo að orði: „Helga var svá fögr, at þat er sögn fróðra manna, at hon hafi fegrst kona verit á Islandi. Hár hennar var svá mikit, at þat mátti hylja Iiana alla, ok svá fagrt sem gull barit, ok engi kostr þótti þá þvílíkr sem Helga in fagra i öllum Borgar- firði ok víðara annars staðar." Þegar Gunnlaugur var átján vetra, reið hann eitt sinn norður að Ási í Vatns- dal ásamt öðrum manni, Þorkeli svarta. I þeirri för kvað Gunnlaugur sína fyrstu vísu, sem sagan greinir. Um það segir svo í Gunnlaugs sögu: „Ok er þeir riðu norðan, gistu þeir í Grímstungum at auðigs bónda, er þar bjó. Ok um morgininn tók smalamaðr hest Gunnlaugs, ok var þá sveittr mjök, er þeir fengu. Gunnlaugr laust smalamann- inn í óvit. Bóndi vildi eigi svá búit hafa ok beiddi bóta fyrir. Gunnlaugr bauð at gjalda bónda mörk. Bónda þótti þat of lítit. Gunnlaugr kvað vísu: Mörk bauðk mundangs sterkum manni, tyggja ranna. Grásíma skaltu góma glóðspýtis þat nýta. Iðrask munt, ef yðrum allráðr flóða ór sjóði lætr eyðanda líða linns samlagar kindar. Merking vísunnar er: Eg bauð meðalsterkum manni, hinum heimaríka bónda, mörk. Þú skalt þiggja þetta silfur hins blóðuga (smala)-manns. Þú rnunt iðrast, ef þú lætur að sjálfráðu fjársjóð þennan ganga þér úr greipum. Þessi var sætt þeira, sem Gunnlaugr bauð, ok riðu þeir suðr heim við svá búit.“ Hér kemur fram ofstopi og óvægni hins unga hávaðamanns í samskiptum hans og bóndans. Þessi illi eiginleiki fylgdi Gunn- laugi æ síðan, þar til sverð hins helsærða Hrafns klauf höfuðskel hans austur á Dinganesi í Noregi og þeir garparnir féllu fyrir höggum hvors annars. Þar ineð hafði líka rætzt frægasta draumspá sem íslenzk- ar bókmenntir greina. VI Sjálfsagt þætti bókmenntaunnendum skemmtilegt, ef höfundur Sturlunga sögu hefði fest á skinn fyrstu vísu Snorra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.