Andvari - 01.01.1989, Blaðsíða 198
196
SIGURJÓN GUÐJÓNSSON
ANDVARI
Matthías er ánægður með dóm Einars, skrifar Valdimar: „eini marktæki dóm-
urinn.“
Heima á Fróni birtust tveir ritdómar, sem vöktu athygli. Annar var eftir rit-
stjóra Suðra, Gest Pálsson skáld. Hann mælir fast gegn bókinni. Gestur mun
hafa verið afskiptalítill um trúmál og raunar neikvæður í garð kirkju og kristni
allt frá Hafnarárum sínum, enda einn af Verðandimönnum. Maðurinn, sem
gaf út sálmabókina á sinn kostnað, var kunnur borgari, Sigfús Eymundsson
bóksali og ljósmyndari. Sá orðrómur hefur verið uppi að með honum og Gesti
hafi verið óvild um þessar mundir. Er svo talið, að Gestur hafi viljað gera Sig-
fúsi grikk og spilla fyrir sölu nýju sálmabókarinnar. Gerir Gestur m.a. veður
út af því hve bókin sé dýr.
Sá dómur er vakti hvað mesta athygli birtist í Austra og var merktur Styr-
birni, sem var dulnefni. Hefur höfundur hans jafnan verið talinn sr. Pórleifur
Jónsson, prestur á Skinnastað. Er dómurinn einkar harður í garð formanns
sálmabókarnefndar, Helga Hálfdánarsonar. Styrbjörn gerir lítið úr skáldskap
hans og kemst jafnvel svo harkalega að orði, að hann sé „merglaust hnasl“. Er
engu líkara en höfundur skrifi greinina fullur gremju í garð læriföður síns.
Dóm Styrbjörns um sálmakveðskap Helga hefur kynslóð af kynslóð í heila öld
gert að engu. Enn á hann fleiri sálma en nokkur annar í íslensku sálmabók-
inni.
Eins og að líkum lætur brá Helga, sem borið hafði hita og þunga starfsins,
við þennan harða og ósanngjarna dóm. Og af bréfi hans til Valdimars má sjá,
að hann hefur farið fram á það við Valdimar að hann svaraði Styrbirni. Hvort
Valdimar hefur skrifað varnargrein er ekki vitað, en svo mikið er víst að hún
kom hvergi fram. í nafnlausri grein í Pjóðólfi er Styrbirni þó að nokkru
svarað.
í sálmabókinni 1886 eru 650 númer sem fyrr sagði. Sálmum hefur því veru-
lega fjölgað frá 1871. Kemur inn fjöldi nýrra sálma, frumsaminna og þýddra.
Nefndin telur 408 frumsamda en 242 þýdda. Af þessum 650 sálmum eru 250
í einu eða öðru formi í fyrri sálmabók, svo að niðurfelling hefur ekki verið
lítil, mun meira en helmingur strikaður út. Af þeim sem halda velli eru aðeins
98 óbreyttir, 18 með minni háttar breytingum. Átta eru styttir, en óbreyttir að
öðru leyti, 62 breyttir, en upphafsorð óbreytt, 64 umortir.
Ég tel, eftir nokkur kynni af sálmum nágrannaþjóða, að frumsamdir sálmar
séu oftaldir. Og á meðal þeirra séu ýmsir erlends uppruna að meira eða
minna leyti, sumir stældir, svo að nálgast þýðingu á köflum. Valdimar á lang-
flesta frumsamda, en Helgi þýdda sálma í bókinni. Um útlögðu sálmana er
það annars að segja, að flestir, 127, eru þýddir úr dönsku, þó að uppruni meiri
hluta þeirra sé þýskur, þá eru 61 sálmur þýskur, 11 norskir, 8 sænskir, 9 enskir
og 8 latneskir.