Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1989, Page 202

Andvari - 01.01.1989, Page 202
200 ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ANDVARI Heimildir eru fyrir því, að á árunum 1914 og 1915 er Jónas farinn að undir- búa stofnun flokks með svipaðri stefnuskrá og Framsóknarflokkurinn setti sér formlega síðar. Jónas taldi nauðsynlegt að tryggja nýjum flokki málgagn og að útgáfa þess yrði fyrsta skrefið að stofnun hans. Á árinu 1915 var hafist handa um að undirbúa útgáfu blaðsins. Eins og skýrt er frá í áðurnefndri rit- gerð Helga Skúla er til frá árinu 1915 lítill miði, sem Jón H. Þorbergsson dreifði, er hann ferðaðist um landið á vegum Búnaðarfélags íslands. Hann hljóðaði á þessa leið: „Nokkrir utanflokkamenn hafa komið sér saman um að gangast fyrir stofn- un vikublaðs. Það á að koma út í Reykjavík og vera að stærð og dýrleika svip- að Ingólfi. Pað á að flytja greinar um landsmál, fréttir innlendar og útlendar, ritdóma og góðar sögur. Blaðið byrjar að koma út svo fljótt sem undirbúning- urinn leyfir. Það á aðallega að beitast fyrir nokkrum bráðnauðsynlegum fram- faramálum, en mun annars láta til sín taka önnur mál, er á dagskrá verða með þjóðinni, eftir því sem verðleikar eru til. En þetta eru aðalmálin: Að beitast fyrir þeirri stefnu að gera landið alfrjálst og sjálfstætt, þegar á- stæður leyfa, og að ná þessu takmarki með innanlandsframförum, í stað þess að eiga í deilum og samningum við Dani um málið, fyrr en þjóðin hefur mátt til að taka þann rétt, sem hún nær ekki nú, fyrir sinni eigin sundrung, fátækt og kunnáttuleysi. Að beitast af alefli fyrir viðreisn sveitanna og framförum landbúnaðarins: Nýbýlum, áveitum, efldum ræktunarsjóði, bættri búfjárrækt og markaði er- lendis. Að auka og bæta menntun alþýðu. Að styðja samvinnufélögin af alefli.“ Höfundar þessa miða voru Jónas Jónsson, Sigurgeir Friðriksson bókavörð- ur, sem var mjög handgenginn Jónasi á þessum tíma, og Jón H. Þorbergsson. Augljóst er af efni miðans, að hann rekur ættir til Skinfaxagreina Jónasar. í bréfum frá Jónasi Jónssyni til Jóns Sigurðssonar á Reynistað og eru nú geymd á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga á Sauðárkróki, er að finna frekari heimildir um þetta. Bréfin eru frá 1908-1920, en þeir Jónas og Jón höfðu áður verið skólabræður í Askov og orðið nánir vinir. Fljótlega eftir 1914 byrja þeir á því að semja stefnuskrá fyrir væntanlegt blað. Bersýnilegt er af bréfunum að uppkastið gengur milli fleiri manna um allt land og er í þeim hópi að finna ýmsa helstu forystumenn ungmennafélaganna. Fljótlega mun þessi hópur hafa hlotið nafnið Hringurinn. Yfirleitt voru menn sammála um stefnuskrár- uppkastið, en ágreiningur virðist þó hafa risið um nokkur atriði, eins og járn- brautarmálið og skattamálin og því talin ástæða til að taka sér lengri undir- búningstíma, enda dróst það að Héðinn Valdimarsson, sem hafði verið ráð- gerður ritstjóri hins nýja blaðs, kæmi til landsins, en hann var við nám í Kaup-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.