Andvari - 01.01.1999, Page 28
26
VÉSTEINN ÓLASON
ANDVARI
III. Fræðistörf
Þjóðfræði
Einar Ól. Sveinsson er án efa merkasti þjóðsagnafræðingur íslenskur
á þessari öld, en rannsóknir hans á þessu sviði fléttast mjög rækilega
saman við bókmenntarannsóknir hans, og veldur því bæði hið nána
samband bókmennta og fræða sem varðveittust á manna vörum í
þessu landi, en einnig vafalaust sérstök áhugamál hans sjálfs. Þessar
rannsóknir hófust þegar á háskólaárum Einars, þegar hann valdi sér
íslensk ævintýri sem kjörsvið til meistaraprófs. Þær báru ávöxt í
meistaraprófsritgerð um jötna, sem skrifuð var á dönsku, og í skrá
hans um íslensk ævintýri sem birtist á þýsku árið 1929 með rækileg-
um inngangi í hinni merku ritröð FF Communications, sem gefin er
út af finnskum þjóðfræðingum í Helsinki. Þótt rannsóknir og útgáfur
fornsagna, einkum íslendingasagna, yrðu brátt fyrirferðarmeiri,
mynda störf Einars á sviði þjóðfræða mikla og samfellda heild.
Merkilegt og ágætt er rit hans Um íslenzkar þjóðsögur, sem kom út í
Reykjavík 1940, en þar snýr hann sér til íslenskra lesenda og gefur í
senn fræðilega traust og aðgengilegt yfirlit yfir hið mikla efni ís-
lenskra þjóðsagnasafna.9 Áður hafði hann annast útgáfu á stórmerku
verki séra Jónasar Jónassonar frá Hrafnagili, íslenzkir þjóðhœttir.
Það rit kom fyrst út 1934, og stendur á titilblaði að það sé búið undir
prentun af Einari Ólafi; sannast að segja mun þar hafa legið mjög
mikil vinna að baki af hans hálfu, og má fræðast nokkuð um það í
formála.10
Einari Ólafi var mjög hugleikið að búa þjóðfræðaefni í hendur al-
menningi þannig að vel mætti nýtast, og er sérstök ástæða til að
nefna úrval hans, íslenzkar þjóðsögur og ævintýri, sem kom út 1944
og tvisvar hefur verið endurprentað, og kvæðasafnið Fagrar heyrði
eg raddirnar þar sem birt er margvíslegt efni með þjóðkvæðablæ,
bæði fornt og nýtt. Sú bók kom fyrst út 1942 og var endurprentuð
1974. Söfnin lýsa í senn mikilli þekkingu Einars á efninu, prentuðu
og óprentuðu, og fjölbreytni þess, en einnig smekkvísi hans og til-
finningu fyrir skáldskapargildi. Þau eru sígildar bækur og verða von-
andi lengi á bókamarkaði.
Ástæða er til að staldra hér við þau þrjú verk sem þegar voru