Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1999, Page 76

Andvari - 01.01.1999, Page 76
74 KRISTJÁN ÁRNASON ANDVARI sem orð hafa það sér til ágætis að geta, auk svo margs annars, verið tengi- liðir eða einskonar leiðarar manna í milli. f einu ljóði bókarinnar, sem vissulega má flokkast sem ástarkvæði og það ekki af verri endanum, er því lýst er það undur gerist að í handtaki tveggja einstaklinga verða hendur og orð „lifandi og fullkomin en ekki aðeins hendur og ekki aðeins orð“. Og í öðru ljóði, sem hefst á orðunum „Horfnu þúsundáralönd smánæturinnar“, er orðunum beitt að hætti symbolista til að kalla fram sæluástand hugans með því að finna þessari kennd samsvörun í öræfakyrrð íslenskrar sumar- nætur og með vísun út fyrir hana til handanlægs, horfins og kyrrstæðs veru- leika: fullkomni sofandi alheimur sem glitrar ennþá handan við síkvik vötn. En í þessu kvæði er ákall höfundar um að tungu sinni sé veitt „skírsla í eldi“ og við skynjum glímu skáldsins við orðin, enda eru einkunnarorð bókarinnar þau að öll tunga sé erlend, og á öðrum stað hefur skáldið kvæði með þeim orðum að það segi „alltaf færri og færri orð“ og ráðleggur mönn- um í framhaldi af því að fara varlega með orð. Ekki verður annað sagt en að skáldið fylgi eftir þeim einkunnarorðum sín- um að fara varlega, ef ekki beinlínis sparlega, með orð, því næsta bók sem ber heitið Fá ein Ijóð kemur fyrst út átján árum síðar og fylgir nafni, þar sem ljóðin sem bókin hefur að geyma eru jafnmörg og árin eða átján tals- ins. Það er ljóst að Sigfús er ekki í hópi þeirra skálda sem kappkosta að sýna sem mest „afköst“ á sviði ljóðlistarinnar og gefa helst út eina bók á ári við mikinn fögnuð fjölmiðla og launasjóða, en vera má að þegar upp er staðið vegi átján ljóð eftir Sigfús þyngra en átján bækur annarra. En Fá ein Ijóð bera þess merki að skáldið hefur setið meira en átján ár í heimahög- um. Það skynjar sig ekki lengur sem þátttakanda í heimsátökum og stadd- an í iðu stórborgarlífs heldur sem varbúinn og varnarlausan móttakanda frétta sem líkt er við óhroða og berast utan úr hinum stóra heimi á vegum vorvindanna: Vorið blés óhroða, vorið blés óhróðri í augu mér. Vorkvæði Sigfúsar verður að teljast einstakt í sinni röð, því hér á landi hef- ur vorið og vorkoman löngum verið uppspretta mikils kveðskapar þar sem gætir óblandins fagnaðar, og við skynjum í því að eitthvað mikið hefur breyst hér í tengslum manns og náttúru á síðustu tímum. En þetta kvæði er ekki ort úti í guðsgrænni náttúrunni heldur í gráma þess staðar sem Sigfús nefnir í einu ljóði sínu „The City of Reykjavík“ þar sem:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.