Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1999, Page 91

Andvari - 01.01.1999, Page 91
andvari GUÐFEÐUR ÍSLENSKS FLOKKAKERFIS 89 hans á „sanna“ menntun og trúin á gæsku sveitanna. Kjörorðið „ræktun lands og lýðs“ var honum mjög tamt, enda trúði hann því af einlægni að ,,við sveitalíf og sveitakjör [alist] upp sá mannstofn, sem heldur uppi heim- inum.“29 Af þessum sökum hefur Jónas verið kenndur við „varðveislu- stefnu“ og fjandskap við bæjarlífið,30 en það er ekki fyllilega réttmætt. í fyrsta lagi var Jónas alls ekki einn um það að trúa á mikilvægi sveitanna fyrir uppeldi ungmenna - sennilega hafa þeir verið fáir á fyrsta þriðjungi aldarinnar sem töldu bæi holla uppeldisstaði fyrir börn og unglinga. Jón Þorláksson var t. d. Jónasi alveg sammála um þetta efni, en hann skrifaði eitt sinn að landbúnaðurinn væri „uppáhalds-aXv'mnuvQgm landsmanna að því leyti, að allir, er á slík mál minnast, óska, að hann megi halda áfram að skipa öndvegissætið meðal atvinnuveganna“. Helstu ástæðu þessa sagði hann þá „að friðsemi og festa sveitalífsins [væri] miklu betri gróðrarstöð fyrir borgaralegar dyggðir hjá hverri upprennandi kynslóð heldur en hring- ^ða fjölmennis í borgum og fiskiverum.“31 Hér var því einfaldlega um við- tekna skoðun að ræða sem átti sér djúpar rætur í uppeldisviðhorfum ís- lendinga en var alls ekki nein sérviska Jónasar frá Hriflu.32 I öðru lagi bjó Jónas sjálfur í Reykjavík í nálægt því sex áratugi og þótt hann hafi hvatt til þess að skólar yrðu byggðir í sveitum, fluttist Sam- vinnuskólinn, sem hann veitti forstöðu í hartnær 40 ár, ekki úr höfuðborg- inni fyrr en að Jónas sjálfur lét af stjórn hans, og þá gegn hans vilja.33 Hon- um þótti því greinilega vænt um borgina þrátt fyrir að hann hafi oft hnýtt í hana. Að lokum má benda á að því fór fjarri að Jónas væri eindregið á móti verkamannavinnu og sjómennsku. Honum fannst reyndar ekki glæsilegt Um að litast í Reykjavík við upphaf togaraaldar, en aðbúnaði verkafólks í bænum lýsti hann svo í Skinfaxa um svipað leyti og hann lagði drög að stofnun verkamannaflokks í Reykjavík: Almenn fátækt, húsakynni, fatnaður og fæði af lélegasta tagi. Stundum heil fjölskylda í einu kjallaraherbergi, og ekkert eftirlit af hálfu þjóðfélagsins. Bækur litlar sem eng- ar. Skólar engir né uppfræðsla eftir að barnaskóla sleppir.. . . Á togurunum [er] verri vinna en nokkurn tíma hefir þekkzt áður hér á landi, og er viss leið til bráðrar úrkynj- unar, ef ekki verður við gert. . . . Og til að kóróna allt, eru skattarnir til almennings- þarfa lagðir langþyngst á þessa niðurbældu stétt. Og það var einmitt á þessu sviði sem hann vildi láta gott af sér leiða. Skuggahliðar bæjarlífsins stöfuðu af misskiptingu auðsins, en voru alls ekki °hjákvæmileg afleiðing af eðli vinnunnar sem þar var unnin eða ævarandi fylgifiskur bæjarlífs sem slíks. Verkamenn á sjó og landi sköpuðu auðinn til jafns á við bændur í sveitum, og báðum var nauðsynlegt að mynda með sér samtök til sjálfshjálpar. Því minnti hann bændur á að framfarir í sveitum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.