Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1999, Page 121

Andvari - 01.01.1999, Page 121
andvari HVAÐ ER RÓMANTÍK? 119 Konráðs, - sé rómantískt. Þeir virðast að eðlisfari alveg eins mikið vera gagnrýnir skarfar eins og hugsjónaríkir guðspjallamenn nýs boðskapar um fegurð, siðgæði, frelsi og ættjarðarást. Tíðarandinn knýr þá til að sitja á strák sínum.51 Hér setur Stefán lesendurna í raun og veru í hálfgerða klemmu. Voru þeir Jónas og Konráð rómantískir eða voru þeir fjarri því að vera rómantískir? Eða gilda hér kannski svipuð rök - bara eilítið umsnúin - og höfð voru um helsta forvígismann raunsæisstefnunnar á Norðurlöndum, rómantíska eld- hugann Brandes, þ.e. þau að menn geti verið aðalboðberar rómantísku stefnunnar án þess að vera alltaf sérstaklega rómantískir? Og hvað er Stef- án eiginlega að fara í lokaorðum sínum, «Tíðarandinn knýr þá til að sitja á strák sínum»? Er hann kannski að gefa í skyn að þeir Jónas og Konráð hafi baelt niður raunverulegar skoðanir sínar, tilfinningar og gagnrýnisanda í þeim textum sem þeir birtu opinberlega, eins og svo oft er sagt um hina borgaralegu og siðavöndu höfunda Biedermeier-tímans, - sem reyndar var nánasta samtíð þeirra Fjölnismanna? 5. Forsendur íslenskrar rómantíkur Eitt af brýnustu verkefnum þeirra sem rannsaka íslenska bókmenntasögu 19. aldar er að reyna að skýra þversagnakennd ummæli á borð við þessi. I því samhengi hljótum við að hugleiða hvaða þættir hafa mótað sýn okkar tíl rómantíkurinnar, og þar skiptir auðvitað miklu máli hvaða viðmiðanir eru hafðar í huga þegar rætt er um hana. Aðhyllumst við sömu viðhorf og Eogi Th. Melsteð, sem taldi að við yrðum að «leita til útlanda og athuga þar hinar andlegu hreifingar, er vjer viljum fá rjettan skilning á upphafi nú- tíðar bókmennta vorra»,52 eða tökum við undir þau sjónarmið sem Einar Olafur Sveinsson hélt fram í grein sinni «íslenzkar bókmentir eptir sið- skiptin» frá 1929: «Ekki er þörf að ræða hér um hina rómantísku hreyfingu 1 öðrum löndum. Það eitt skiptir máli sem að íslandi veit» (142). Og ef við leitum til útlanda, til hvaða landa og höfunda horfum við þá? Er t.d. nóg að einblína á þýskar og enskar bókmenntir frá þremur fyrstu aratugum 19. aldar, eins og allflestir hafa gert, eða verðum við að beina sjónum okkar í fleiri áttir? Ef við veljum fyrrnefnda möguleikann, þá verð- urn við líka að vera viðbúin að taka þeim afleiðingum sem Kristinn E. Andrésson víkur að í bók sinni, Ný augu. Eftir að hafa gert grein fyrir hinu þekkta kvæði Novalis «Lofsöngvum til næturinnar» frá 1797, og birt nokk- Ur brot úr því í þýðingu sinni segir hann: Þetta sýnishorn fleygasta skáldskapar ætti að gera mönnum ljóst að á Islandi hafa aldrei verið rómantísk skáld. Þó má segja að Bjarni Thorarensen komist því næst.53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.