Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1999, Page 148

Andvari - 01.01.1999, Page 148
146 BIRNA BJARNADÓTTIR ANDVARI vinnukonu fyrir kynþroskaaldur. Hann rifjar upp orð móður sinnar, þau sem voru ekki laus við beiskju. En hver er hún? Hún vissi eiginlega aldrei hvað hún var, nema það að hún var ekki barn. Líkt og hjá föðurnum fór til- finningalífið að mestu forgörðum í uppvexti hennar. í húsinu rifjar maðurinn upp sögur af lífi þessarar konu sem var búin að fá sig fullsadda af börnum löngu áður en hún átti sjálf börn og varð óhjá- kvæmilega móðir, að minnsta kosti líkamlega séð, segir sonur hennar. Og hvað finnur hann? Hann finnur vitneskjuna um þá nytsemi sem er ekki sprottin af mannúð eða tillitssemi, hvorki í lífi einstaklinga né þjóða, og hvernig nytsemishugsunin er sprottin af foreldravaldinu. Líkt og í lífi föð- urins, fékk móðirin aldrei tækifæri til að sækja rétt sinn. Hlutskipti hennar var að lifa örlög móður sinnar, konu sem háði lífsbaráttuna í skynleysi manns og náttúru. Það sem maðurinn finnur í hugsun um líf móður sinnar eru mótsagnakenndar setningar hennar eins og „Móðir mín tók mig fram yfir aðra. Öllu var kyngt á mig“ (38). Fyrir vikið finnur hann aftur sam- viskubitið gagnvart örlögum móður sinnar, hvað honum fannst undarlegt að vera sonur móður sem hafði mátt þola glæp náttúrunnar gegn konum: að fæða börn í heiminn sökum eðlis en ekki vilja og hann hugsar: Fæðingin varð að eins konar synd, almennur glæpur gegn konum yfirhöfuð, og kannski er getnaðurinn og fæðing mannsins í heiminn ekkert annað en illvirki, alls- herjar glæpur náttúrunnar gegn frelsi kvenna. (38) Það sem maðurinn finnur einnig í sögum af móður sinni er tregðulögmál mannlegrar reynslu; hvernig foreldrar sá í börnin sín einsemd og tómi vamar- leysis, þetta sem maðurinn kallar eilífa sáningu foreldra í sál barna sinna. Guð og sonur hans mega sín lítils í samanburði við áhrifamátt þessa mann- lega og sínálæga frjókorns. Eins og maðurinn greinir líka frá, tekur hvísl móðurinnar í eyra sonarins á kvöldin, rétt fyrir svefninn, fjarlægu fagnaðar- erindi kristninnar fram. Mamma, skynjar drengurinn, fyllir tóm guðs. Og það er þess vegna sem honum ber að vara sig á henni. En skaðinn er skeður og maðurinn endursegir söguna sem hann heyrði móður sína fara með, aftur og aftur, þegar hann var barn, söguna um það þegar afi hans rak konu sína burt frá sér: Þú átt ekki lengur heima hér. Móðir mín hrökk í kút. Bernska hennar var skyndilega á enda við að heyra þessi orð. Hún fann það einhvern veginn á sér. Þær námu staðar, stóðu kyrrar og biðu, næstum að sligast undir þunganum frá saumavélinni. Þú átt ekki lengur heima hér, endurtók hann lægra í þetta sinn og horfði rólega á ömmu. Hún svaraði engu en hann gekk burt og virti hvoruga viðlits. Nú, hvað er þetta eiginlega? spurði amma út í loftið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.