Andvari - 01.01.1958, Page 7
ANDVARI
Guðmundur Hannesson
prófessor.
9. sept. 1866 — 1. okt. 1946.
Eftir Níels Dungal.
Af öllum þeim mönnum, sem ég hefi kynnzt um ævina,
innanlands og utan, er varla nokkur, sem hefir orðið mér eins
minnisstæður og GuSmundur Hannesson. Og svo hefir fleirum
fariS, sem þekkt hafa fleiri og meiri menn en ég. Þegar ég kom
fyrst til New York, í ársbyrjun 1944, hitti ég þar dr. Alan
Gregg, forstjóra læknavísindadeildar Rockefellerstofnunarinnar,
sem styrkir læknavísindi í öllum heimsálfum. Hann þekkti alla
helztu vísindamenn í læknisfræði út um allan heim, svo að senni-
lega hefir enginn í víðri veröld haft kunningsskap við jafnmarga
merka lækna og hann. Það fyrsta sem dr. Gregg spurði mig
um, er ég hitti hann, var, hvernig Guðmundi Hannessyni liði,
en þeir liöfðu hitzt í Reykjavík 1930. 1 hádegisverði, þar sem
nokkrir af helztu mönnum Rockefellerstofnunarinnar voru við-
staddir, sagði dr. Gregg, að af öllum þeim mönnum, sem hann
hefði hitt, teldi hann Guðmund Hannesson meðal þeirra almerk-
ustu sem hann hefði nokkurn tírna kynnzt.
Þegar ég settist í læknadeild, haustið 1918, eftir tveggja
ára byrjunarnám í læknisfræði í Kaupmannahöfn, varð ég strax
hrifinn af Guðmundi Hannessyni. Þetta var eitthvað svolítið
önnur kennsla í anatomi en okkur hafði verið boðið upp á í
Kaupmannahöfn. Guðmundur Hannesson var þá á bezta aldri,
52 ára gamall, fullur af fjöri og áhuga, sem smittaði stúdentana,
svo að það var dauður maður, sem gat ekki lært hjá honum.