Andvari - 01.01.1958, Síða 52
48
Þorkell Jóhannesson
ANDVARI
Havsteen til dauðadags 1856, en síðan Sigmundur Pálsson; en í
Grafarósi Chr. L. Möller. Á þessu árabili voru þeir Thaae og
bræðurnir Jakobsen öllu ráðandi í Llofsósi og Grafarósi, nema
ef telja skyldi, að verzlun Llillebrandts í Hólanesi rak verzlun
noldcra í Hofsósi 1859 og 1860, undir stjórn Jakobs Holms.
Árið 1860 varð verzlun Jakobsensbræðra gjaldþrota, og var
engin föst verzlun í Grafarósi það ár. En árið 1861 keypti enskt
firma, Henderson í Glasgow, verzlunarstaðinn í Grafarósi. Tók
Jósef Blöndal við stjórn þeirrar verzlunar. Þetta sama ár urðu
verzlunarstjóraskipti við Thaaesverzlun í Hofsósi, er Signmndur
Pálsson bætti en við tók danskur maður, J. C. Jakobsen. Um
þau skipti orti BóluTIjálmar vísu þessa:
Illt er þetta aldarfar,
ýmsir klakann bíta,
þegar í sæti Sigmundar
seppa danskan líta.
ITendersonsverzlun í Grafarósi stóð til 1868. 1869 verzlaði
Sveinbjöm Jakobsen í Grafarósi, en litlu síðar keypti Vcrzlunar
félagið við Húnaflóa Grafarósverzlun.
Akureyri. Þegar konungsverzlunin hætti, 1788, var svo ráð
fyrir gert, að þrír menn keypti eignir verzlunarinnar á Akureyri
og í Siglufirði, þeir Cbr. Redslew, Friðrik Lynge og maður að
nafni Lauritzen. Friðrik Lynge hafði verið forstöðumaður kon-
ungsverzlunarinnar á Akureyri síðan 1776. Redslew bafði og
starfað allmörg ár við Akureyrarverzlun. En Lauritzen átti beima
í Korsör og mun að líkindum ekki liafa fengizt við verzlun
bér áður. Þær urðu bér lyktir á, að Redslew ílentist ekki á Akur-
eyri, beldur fór hann til Siglufjarðar og tók að verzla þar, enda
bafði farið heldur ólaglega með þeim Fr. Lynge á Akureyri áður.
Verzlunin á Siglufirði lá áður undir Akureyrarverzlun og kom
nú úthöfn þessi í hlut Redslews. ITins vegar skiptu þeir Lynge
og Lauritzen með sér búsum konungsverzlunarinnar á Akureyri